laugardagur, maí 15, 2010

Fyrsta fótboltaæfingin - Áfram Þróttur

Hún Sigga Bára fór í morgun á sína fyrstu fótboltaæfingu (mamman búin að grátbiðja hana lengi að fara á æfingu) hjá Þrótti. Hún á góða vinkonu sem heitir Elísabet sem skoraði á hana að mæta og viti menn, inn á völlinn gekk Frammari en út af vellinum gekk Þróttari, búin að skora sitt fyrsta mark, búin að taka Þróttarahring með félögunum og öskra saman LIFI ÞRÓTTUR!!
Bless í bú

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Pabbinn hlýtur að skila inn Fram skirteininu!!

Nafnlaus sagði...

Áfram Sigga Bára !!!

Hlakka til að koma á leik með landsliðinu eftir nokkur ár og hrópa áfram Sigga Bára :-)

Blómvangurinn

Nafnlaus sagði...

Nú vantar bara svona eina flotta mynd af stóru fótboltastelpunni í Þróttarabúning. Hermann væri vís til að ramma hana inn en setja hana fyrst inn í photoshop og skipta rauða og svarta litnum yfir í bláan og hvítan.
Knús Þóra