laugardagur, júní 25, 2005

Eins árs afmæli Sigríðar Báru Min

Sigríður Bára átti eins árs afmæli föstudaginn 24 júni og þótti foreldrunum tilefni til að baka eina súkkulaðitetru af tilefni dagsins. Við fengum margar afmæliskveðjur frá vinum og fjölskyldu af þessu tilefni og glatt var á hjalla á Hofteignum.
Sigurður Valur stjórnaði afmælissöng af þessu tilefni með tilheyrandi húrrahrópum, en hann er orðinn ansi hreint sjóaður í stjórnun á fjöldasöng af svona tilefnum.
Dagurinn var einnig merkilegur fyrir þær sakir að Gyða hætti að vinna, byrjar í sumarleyfi og fer síðan í fæðingarorlof vegna þessa merku tímamóta. Þá fer að styttast í að heimilisfaðirinn fari líka í frí og síðan orlof en miðað við upphaf ferðar þann 4 júli má vænta þess að síðasti starfsdagurinn verði að minnsta kosti að kvöldi hins 3 júli en mikil pressa er á honum að hefja töku orlofs eitthvað aðeins fyrr.
Mikið þökkum við öllum þeim sem hafa verið að senda okkur kveðjur og hamingjuóskir undanfarið en það hefur verið ómetanlegt.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með eins árs afmæli dóttur ykkar. Góða ferð út, hlakka til að fylgjast með ykkur öllum að sækja þessar flottu stelpur.
kv Díana í hóp 13.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litlu dömuna ;)
Það verður gaman að fylgjast með ykkur öllum þegar farið verður að sækja litlu skvísurnar - bestu kveðjur - Kitta í hópi 15

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju Gyða og Kalli með þessa fallegu stúlku, Jómmi sagði okkur frá þessari síðu og nú fylgjumst við spennt með framvindunni. Megi heill og hamingja fylgja ykkur út og aftur heim með Sigríði Báru Min. Kveðja Gróa og Önundur Ísafirði.

Nafnlaus sagði...

Hjartanlegar hamingjuóskir með Sigríð Báru og afmælið hennar. Þegar ég las að þið búið á Hofteignum gat ég ekki annað en sent ykkur kveðju þar sem við erum nágrannar búum á Laugarteig með litlu yndislegu Guðnýju Sigurrós sem kemur einmitt líka frá Kína. Þannig að við eigum kannski eftir að rekast á ykkur á röltinu um hverfið. Gangi ykkur vel í ferðarundirbúningnum og í ferðinni. Bestu kveðjur Rós og Jói Laugateig

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju með litlu dóttur ykkur og eins árs afmælið hennar. Var í ykkar sporum fyrir tveimur árum síðan....þið eigið framundan frábært ævintýri. Gangi ykkur allt í haginn og hlakka til að fylgjast áfram með ferðalaginu ykkar.
Kær kveðja frá Ísafirði
Laufey og Ásgerður Jing sem kom heim frá Kína í júlí 2003

Nafnlaus sagði...

Við Stína erum auðvitað búin að fylgjast með síðunni og óskum ykkur til hamingju með þetta allt saman og góðrar ferðar. Eina sem ég myndi vilja koma að, í tilefni af umræðu annars staðar á síðunni, að það er nauðsynlegt fyrir ykkur foreldrana að innræta stúlkunni víðsýni, og það gerið þið best með því að kynna alla kosti. Ég nefni t.d. enska boltann. Það gengur auðvitað ekki að það verði við hana talað eins og það sé bara til eitt knattspyrnufélag, Arsenal, eða kannski tvö, ef Fram er talið með. Ég nefni t.d. Manchester United. Víðsýnir foreldar myndu kynna þetta allt.

Kveðja,

Jómmi og Stína

Nafnlaus sagði...

Innilegar hamingjuóskir með eins árs afmæli Sigríðar Báru Min.
Vonandi verður tíminn fljótur að líða þar til hún kemst í mömmu og pabba fang.
Bestu kveður
Þórir, Freyja, Lind og Berta Rögn - sem kom frá Kína 18 mai 2005.

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða og Kalli,til hamingju með afmælið. Mér finnst ómetanlegt að fá að fylgjast með ykkur. Gangi ykkur vel í undirbúningnum. kv.Kristbj.Hrund

Nafnlaus sagði...

Sæl veriði Kalli og Gyða.
Var að frétta af síðunni og kíkja þangað í fyrsta sinn. Ég og Hafrún viljum nota tækifærið og óska ykkur alls hins besta og innilega til hamingju.

Vildi í lokin geta þess að ef heimilisfaðirinn er í vandræðum með einhver verk á heimilinu þá er ég boðinn og búinn að hjálpa til enda með minnst 14 þumalputta. Vil þó taka fram að þeim fer fækkandi en þeir voru um tuttugu talsins er ég bjó í Noregi.
Góða ferð.
Steinar Adolfs og Hafrún

Nafnlaus sagði...

Kæru hjón.
Innilega til hamingju með eins árs afmæli Sigríðar Báru Min sem enn bíður eftir því að komast í mömmu- og pabbafang. Þegar þangað er komið er það allra best, það þekkjum við af eigin raun (enda orðin ansi handleggjalöng :-)).
Gagni ykkur allt í haginn og góða ferð til Kína.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján, Hjalti bró og Hildur Björg fjögurra ára Kínasnúlla.
P.S. Vorum við ekki í sömu ferð og þið á Ítalíu í fyrrasumar?