fimmtudagur, júní 30, 2005

Styttist í brottför

Jæja oft finnast okkur hjónum dagarnir vera langir núna, úff.... en þetta er líka stundum dálitið óraunverulegt að vera að fara út að hitta loksins þessa litlu prinsessu. Svo er því ekki að leyna að það er líka að mjög mörgu að hyggja, búið að huga aftur og aftur að því hvað á að taka með og hvað er óþarfi. 'I því ferli þurfum við stöðugt að minna okkur á að í Kína eru líka verslanir og það víst ansi margar segja menn.
Núna er Ágústa vinkona okkar að sannfæra Gyðu um hversu mörg "dress" hún þurfi að taka með, ég heyri í þeim úr barnaherberginu og ætla ekki að hafa þau leyndarmál eftir. Ég stalst aftur á móti til að taka straujárnið úr sambandi eftir að hafa farið mjög mjúkum heitum "höndum" um einstaklega falleg náttföt sem höfðu verið keypt á prinsessuna. Taldi mér trú um að það væri gott að kæla járnið aðeins enda á mikið eftir að reyna á það síðar í sumar.
Best að setja járnið aftur í samband og halda áfram með verkefnið

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er hverri konu eðlislægt að taka með sér fullt fullt af fötum sem aldrei verða notuð - gott ef einhver hefur vit fyrir systur minni!