fimmtudagur, júní 09, 2005
Ein vika síðan
Tíminn líður hratt. Í dag er ein vika síðan við fengum myndirnar af henni Sigríði Báru Min. Á þessari einu viku höfum við foreldrarnir verið að dáðst af litlu tátunni, látið stækka ljósmyndir af henni og komið þeim að bókstaflega út um allt. Hópur 12 hittist hjá Sigrúnu á mánudaginn síðasta og komu allir foreldrar með myndirnar af dætrum sínum. Þann dag fengum við líka nýjar upplýsingar um Sigríði Báru Min, hún hefur stækkað frá því í janúar en þá var hún 64 cm og 7 kg. en nýjustu tölur segja að hún sé núna 72 cm og 8,2 kg. Hún er ólík pabba sínum en hann var nánast tannlaus fram að tveggja ára aldri, daman er í dag komin með 8 tennur, en var með 4 í janúar. Það er skemmst frá því að segja að í dag fengum við þykka möppu frá Íslenskri Ættleiðingu sem innihalda nauðsynlegustu upplýsingar um ferðina, hvernig undirbúa skal ferðina, hvað á að taka með sér, hvað má og hvað má ekki. Þetta er virkilega flott mappa hjá henni Guðrúnu sem hefur staðið sig eins og hetja. Í kvöld er handlagni heimilisfaðirinn búinn að setja saman rúm eftir eigin hugmyndum, nokkrar skrúfur rötuðu ekki á rétta staði (afgangur semsagt) og honum hulin ráðgáta hvar þeim var ætlað hlutverk svo ekki sé talað um gormana sem liggja í gluggakistunni (ennþá). Enn hann reynir sitt besta og við tökum viljan fyrir verkið. Næsta þriðjudag er áætlaður ferðafundur þar sem farið verður yfir ferðina, fardagar og dvalarstaðir ákveðnir. Fram að þeim tíma munum við undirbúa okkur undir verslunarleiðangur, kaupa snuð, pela, krem, samfellur og allt það sem hún Sigríður mun þurfa á að halda þegar hún hittir okkur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Til hamingju með stelpuna! Voða spennandi að loksins geta séð myndir af henni, algjör rúsina!
Jara
Guð hvað þetta er allt saman spennandi :)
Ég er gjörsamlega dottin í myndirnar Gyða mín. Mikið óskaplega er þetta skemmtilegt. kv.khs
Til lukku með Sigríði Báru. Endalaus hamingja ;-)
K.kv Frá Gumma,Tótu, Einari Kára og Guðna Þór í Århús.
Skrifa ummæli