þriðjudagur, júní 02, 2009

Fjögur ár síðan við litum prinsessuna fyrst augum - á mynd










Það er eins og gerst hafi í gær að símtalið langþráða barst. Pabbinn var sá heppni sem svaraði í símann því mamman var ekki í símasambandi. Það var sól, fallegt veður og tréin græn.



Í dag skín sólin, kannski ekki úti en hérna heima svo sannarlega :-)



Kæru vinir í hópi 12 til hamingju með þennan merka dag, daginn sem við brostum hringinn og urðum ríkust í heimi!!!



Sara til hamingju með 5 ára afmælið þitt - Sigga Bára getur varla beðið eftir að verða jafngömul.



Bless í bú



2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með daginn, sannkallaður sólskinsdagur...í sinni.

Bestu kveðjur frá Hildur Björgu, mömmunni og pabbanum.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þennan fallega dag ... daginn sem veröldin öll breyttist:)
Knús og kremjur frá Akureyri,
Gígja, Tommi og María Mist.