mánudagur, apríl 13, 2009

Páskarnir


Núna eru páskarnir liðnir. Sigga Bára hafði hlakkað mikið til þessa helgidaga. Þetta byrjaði allt á afmælisveislu hjá Sigga Val en kappinn er núna orðinn 36 ára og ber aldurinn vel. Svo voru Bláfjöllin mikið heimsótt og hefur dömunni farið mikið fram, hætt að vera í beisli niður brekkurna og skíðar oft alltof hratt finnst mömmu!!! Á páskadagsmorgun hafði pabbinn útbúið skemmtilegan ratleik sem endaði niðrí þvottahúsi en eggið hennar Siggu var falið inni í þvottavél sem henni fannst mjög fyndið - en fyndnast af öllu var staðurinn sem hún hafði valið fyrir páskaeggið hennar mömmu - ÓHREINATAUSKARFAN var valið hennar og skríkti hún mikið þegar mamma þurfti að kafa langt niður til að finna fjársjóðinn!!

Núna er lítil dama mikið þreytt í rúminu sínu, búin að vera í fjöllunum, fara í sund og spila fótbolta með Telmu frænku OG horfa á Kína þáttinn í sjónvarpinu sem hún fylgist reglulega mikið vel með. Hún vill samt ekki búa í Kína því það er barasta ekkert vatn til þar (þátturinn fjallaði mikið um eyðimörkina) sussum svei.

Myndina tók afi af ljósinu okkar og fegursta páskaunga heims á afmælisdegi frænda heima á Strandvegi.

Bless í bú

Engin ummæli: