laugardagur, júlí 23, 2005

Laugardagurinn 23 júli

Myndir
Í dag fengum við morgunheimsókn frá Bróa og Eddu og eftir smá hressingu fórum við saman í göngutúr út í Grasagarðinn í laugardalnum. Ótrúlega þægilegt að hafa svona fallegt útivistarsvæði rétt við heimilið. Nú síðan fórum við að leika í garðinu og ennþá finnst þeirri stuttu gras svolitið ógeðfelt viðkoma og það fer um hana þegar hún snertir það alla vega berfætt. Palli og Halla komu síðan í stutta heimsókn með Védísi og Steinunni Völu og færðu Siggu Bára svo fallega peysu sem Halla hafði prjónað. Fjölskyldan var síðan ennþá þreytt og er ekki búin að ná sér eftir tímamuninn og ferðalagið þannig að feðginin sofnuði um átta og húsmóðirin stuttu síðar eftir að hafa "sett í eina hjónabandsælu" Landlystardugnaðurinn alltaf til staðar

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.

Ég hef verið að fylgjast með ferð hóps 12 til Kína þar sem ég þekkti fyrir þau Valentínu og Kalla.
Mig langaði bara að senda hamingjuóskir til ykkar allra og óska gæfu og gengis með litlu fallegu prinsessuna ykkar.

Kær kveðja,

Erla Kristófersdóttir í Iowa, USA (frænka Ingu Dóru hans Símonar!)