Myndir
Sú stutta var orðin úthvíld og krafðist þess kl 03:00 í nótt að fá eitthvað að borða enda klukkan þá 11 að morgni í Peking og allar keisaraynjur búnar að fá þá marga góða rétti. Svo foreldrarnir urðu að skella sér framúr og útbúa kræsingar fyrir hana og bera á borð og halda henni félagsskap uns auglokin voru orðin þung á ný eftir um tveggja stunda vöku og þá var sofið til 09. Foreldranir eru ennþá að ná sér eftir tímamuninn og voru hreinlega búin á því í gærkvöldi og afboðuðu fjölskylduheimsóknir sem höfðu verið samþykktar. Við hreinlega vorum tekin úr sambandi og sváfum meðan gefið var tækifæri til. Morguninn hófst síðan með því að koma við á Þjóðskrá til að skrá dömuna en það var svo mikil röð af fólki þar að við urðum frá að hverfa því við áttum bókaðan tíma hjá Gesti barnalækni sem skoðaði allar Kínasysturnar í dag. Þær Landlystarsystur geta nú verið stoltar af Siggu Bára því hún lét nú þennan lækni ekki vaða yfir sig þrátt fyrir hvítan slopp og margar gráður. Hún á mjög afgerandi hátt (orgaði) sýndi honum fram á það að þessi stund væri henni ekki þóknanleg til flókinnar læknisskoðunar eins og blóðsýna eða þvagtöku því það bara hentaði henni bara ekki þá. Enda herber dónaskapur ef maður hugsar það í botn að ganga svona langt við fyrstu kynni. Þannig að Gestur fullyrti að það amaði nú ekki mikið að þessari snót hún var bara vigtuð og mæld og gert berklatest en öðru frestað og þarf að hefja samningaviðræður við fulltrúa hennar hátignar um þóknanlegan tíma aftur. Gestur á hrós skilið fyrir fagmennsku, tillitsemi og þær tilraunir sem hann gefur hennar hátign.
Þegar litla fólkið var að mestu búið að jafna sig heldum við mjög spennt til Ömmu Ernu í nýju íbúðina á Strandvegi og mikið gladdi það nú ömmu að fá bros frá nýjasta barnabarninu sem er ekki þekkt fyrir að útdeila því neitt sé ekki tilefni til. Hún var alsæl á nýja parketinu og raðaði síðan í sig kræsingum hjá ömmu enda hún þekkt fyrir góða húsmæðrarétti. Þá tók við heimferðin og þegar komið var á Hofteiginn biðu Bína, Telma og Þórey frænkur í garðinu spenntar að hitta dömuna og gátu þær leikið sér aðeins í garðinu. Nú síðan koma Bára sem daman er nefnd í höfuðið á og miklir fagnaðarfundir voru nú hjá okkur öllum. Bára er stödd hér í stuttri heimsókn frá Svíþjóð þar sem hún býr og ljómaði af ánægju að fá tækifæri að hitta nöfnu sína fyrir brottförina.
Nú síðan tók við matseld þar sem hún borðaði bland að alþjóðlegum og þjóðlegum réttum en hún fékk í fyrsta skipti skyr og rjóma og líkaði vel. Nú er hún sofnuð og við bíðum spennt eftir hvenær dagskráin hefst á morgun.
föstudagur, júlí 22, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ Sigga Bára
Hæ Sigga Bára
Júhú...lífið á Íslandi er sko frábært :-) Ég er einmitt líka búin að fara út að labba í góða veðrinu og kíkja á ömmu og afa og frænkur mínar...og þau eru öll æðisleg !!! Ég orgaði líka svoldið á hann Gest...skil ekkert í því af hverju hann var að stinga mig svona. Líst vel á hitting sem fyrst.
Knús knús, Matthildur
Kæra fjölskylda!
Velkomin heim til Íslands og bestu þakkir fyrir að fá að fylgjast með ferðalaginu ykkar á heimasíðunum.
Ég sendi ykkur mínar bestu hamingjuóskir og gangi ykkur vel saman í framtíðinni.
Kveðja frá Ísafirði
Laufey og Ásgerður Jing
sigridur Båra min Tad verdur Gaman ad Få Tig i heimsokn i morgunkaffi å Fostudaginn Tann 29. kvedja Thordis.
Skrifa ummæli