Myndir
Jæja þá er litla fjölskyldan loksins komin heim til sín. Ferðalagið var frekar erfitt og strangt. Tók rétt tæpan sólarhring frá því við lögðum af stað frá hótelinu í Peking þar til komið var á Hofteiginn. Sú stutta var nú ekkert að sofa neitt mikið kannski 3-4 tíma í heildina í ferðinni allri þannig að hún var nú ansi hreint þreytt eftir þetta allt saman. Hún svaf svo ágætlega í nótt vaknaði kl 06:00 (Pabbinn ánægður með það) og var núna að ná sér í smá blund þannig að við læddumst í tölvuna.
Vegabrefið hennar Siggu Báru hefur hvarvetna vakið mikla athygli enda myndin með eindæmum og landamæraverðir helgið mikið og sagt þegar þér sjá þetta fallega barn að hún hafi nú braggast mikið frá myndatökunni. Þetta skilja menn betur þegar þeir sjá vegabréfið.
Það var ólýsanlegt að ganga með hana í fanginu um íbúðina og sjá brosið sem færðist yfir hana þegar hún þekkti sig af myndum á veggnum í herberginu hennar auk þess sem henni finnast útsaumuði álfarnir sem Amma Sí (Sigríður Karlsdóttir) hafði saumað á sínum tíma alveg svakalega sniðugir og fallegir.
Núna er stefnt að því að taka upp úr töskunum í rólegaheitum og láta dömuna sjá sem mest af hlutum sem hún þekkir þannig að aðlögun hennar gangi sem best fyrir sig. Fjölskyldan fær síðan smá saman að koma og hitta hana eftir því sem styrkur hennar og aðlögun leyfir.
Biðjum kærlega að heilsa öllum og við erum í skýjunum að vera komin heim eftir langt ferðalag
fimmtudagur, júlí 21, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
16 ummæli:
Gott að allt gekk vel á heimleið. Velkomin heim kæru Gyða, Kalli og Sigga Bára, njótið vel næstu daga :)
Velkomin heim og gott að allt gekk vel...hlökkum til að sjá ykkur!!!
Velkomin heim elsku Gyða Kalli og Minfríður litla.
Við looofum að gefa ykkur andrými eins og forsetum og keisaraynjum hefir verið veitt á Íslandi á tilfinningaþrungnum stundum... Þetta getum við sagt sem þegar höfum fengið að njóta með ykkur ,og ömmu og afa ,fyrstu augnablikanna í lífi ykkar þriggja heima hjá ykkur á Hofteignum.
Corleones...
Kæra fjölskylda, velkomin heim.
Nú er um að gera að njóta samvistanna heima og styrkja tengslin ykkar á milli. Vonandi hittumst við einhvern tíman, okkur finnst við eiga smá í henni Sigríði Báru!! Það er gaman að sjá hvað hún líkist foreldrunum, sérstaklega föðurnum, einnig minnir hún okkur á eina Kínasystur hennar Hildar Bjargar, aðallega munnsvipurinn.
Gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján, Hjalti og Hildur Björg.
Velkomin heim! Hlakka til að fá að hitta Sigríði Báru..:)
Velkomin heim! Hlakka til að fá að hitta Sigríði Báru..:)
Velkonin heim elskurnar, og gangi ykkur allt í haginn. Kveðja frá Ísafirði.
Velkomin heim í hofteiginn yðar keisaralega tign og Gyða. Bíddu er ég ekki að gleyma einhverjum =-/
....... jjááá kalli velkominn heim líka.
kv. Maggi frændi
Velkomin heim með Siggu Báru. Hafið það sem allra, allra best.
K.kv 5 manna fjölskyldan í Århus. Gummi, Tóta, Einar Kári, Guðni Þór og Jón Gauti.
Velkomin heim. Ég skal gera mitt til þess að þið fáið tilfinningalegt svigrúm og ætla ekkert að bögga! : ) Er að fara út á morgun en verð komin heim á þiðjudag. kær kveðja, Heiðrún
Halló sætasta Sigga Bára
Ég er strax farin að sakna þín sæta og hlakka rosalega til að hitta þig aftur sem fyrst.
Þín vinkona og kínasystir
Matthildur mandarína :-)
Velkomin heim kæra fjölskylda hlakka til að sjá ykkur öll þrjú :D
já gott þið séuð öll komin heim.svona ykkur öðrum að segja þá´er ég búin sjá litla apaungann og hún er ............það er ekki hægt að nota nóg af orðum maður verður bara að sjá hana.svo langar manni að fá að taka hana og klípa smá í hana en það verður að bíða úfff.já en ein fegurðin komin í landlystarættina og sigga trónir þar í efstu sætunum eins og þórhildur frænka ójá:))velkomin á toppinn
egóið
Verið innilega velkomin heim. Við erum óskaplega fegin að vita af ykkur á Hofteignum. Ég þori ekki að hringja Kalli minn svo þegar þú mátt vera að langar mig að heyra í þér. Þú veist að ég get ekki verið lengi án þín.
Kærar kveðjur frá okkur á stöðinni
Geir Jón
Velkomin heim litla fjölskylda....hlakka til að fá að hitta Siggu Báru
Bestu kveðjur
Eygló
Mér var bent á bloggsíðuna ykkar. Innilega til hamingju með hana dóttur ykkar, gaman að geta séð að allt hefur gengið vel og þið öll átt góða heimkomu. - enn og aftur- til hamingju.
Jói (áður hjá UTL)
Skrifa ummæli