Þetta er búinn að vera viðburðaríkur dagur hjá okkur þremur. Daman svaf auðvitað eins og eftir pöntun frá níu til sex og var síðan bara nokkuð ljúf alla vega munum við ekki betur núna um kvöldið þegar þegar þetta er ritað, það er svo mikil gleði hjá okkur. Pabbinn fór í ferð sem skipulögð var af okkur á barnaheimilið til að skoða aðstæður og reyna að finna þá staði sem stúlkurnar fundust. Gyða og Sigga Bára voru heima og það gekk vel, daman er orðin verulega hænd að mömmu og réttir fram þessa fínlegu fingur sína í áttina til hennar og segir mama og grettir sig líka af og til.
Ferðin á barnaheimilið var viðburðarrík, þetta er myndarstofnun þar sem um 300 börn fara um árlega og þar af um 100 sem eru ættleidd til Vesturlanda á hverju ári. Mikill minnihluti þeirra er á staðnum eða um 50 en önnur eru hjá fósturforeldrum. Tvö börn úr okkar hópi voru nokkra mánuði á heimilinu fyrir síðustu viku og gaman var að sjá brosið þeirra þegar þær sáu starfsstúlkurnar. En þetta er ekki átakalaust að skoða svona staði, allt er mjög fínt fannst okkur, snyrtilegt og reynt að hafa eins heimilislegt og hægt er en mörg barnanna eru þarna til táningsára og mörg hver þeirra þurfa á sérstakri hjálp að halda. Þau komu og föðmuði þau börn sem þau þekktu og það snerti verulega hjartað að sjá þessi fallegu börn og geta hreinlega ekki tekið einhvern þeirra með sér. Við gáfum heimilinu mikið magn af mjólkurdufti sem síðan er gefið frá heimilinu til fósturforeldrana en við fengum lýsingu á þvi hvernig fylgst er með uppeldi þeirra og umönnun. Síðan var okkur boðið í mat af aðstoðarforstjóranum sem er vingjarnleg kona. Maður gat ekki greint annað en að menn væru mjög stoltir af þeirra starfsemi og þeirri umönnun sem þau standa fyrir. Það tókst hins vegar ekki að finna staðina, margir þeirra eru svo langt frá heimilinu að við höfðum ekki tíma auk þess sem það rigndi svo mikið og miklar þrumur að rafmagnið fór af veitingastaðnum. Þannig að við höfum ekki séð staðinn sem Sigga Bára fannst en það þýðir bara að við munum koma hingað aftur með dömuna og ferðast um. Landslagið er ólýsanlega fallegt, mikið af ökrum um allt og fólk að vinna og ennþá eru notaðar fornar aðferðir eins og að láta uxa draga áfram búnað til að vinna akrana. Síðan eru líka miklar andstæður þar sem upp úr ökrunum rísa voldug umferðarmannvirki þar sem verið er að byggja hraðbrautir og símamöstur. Verð að segja eins og er að akramyndin af Kína mun lifa lengur í minningunni.
Nú eftir kvöldmatinn, sem varð skammur endir á þar sem sú stutta skilaði frá sér þannig að ekki var hægt að leggja á gesti 5 stjörnu hótelsins að borða við lyktina, þá fórum við í góðan göngutúr meðfram ánni sem líður hérna um borgina. Fjölmargir Kínverjar gáfu sig á tal við okkur og þrátt fyrir mikið fingramál sáum við að þeir voru ánægðir að sjá okkur með litlu sætu snúlluna sem skellir nú upp brosi oftar og oftar. Það eru að koma ansi hreint skemmtileg persónueinkenni hjá henni, er alvörugefin og íbyggin. Tekur sér góðan tíma til að ákveðna hvort hún taki fólk í sátt eða ekki en gefur mikla hlýju þegar þangað er komið. Nú síðan vantar ekki skapið í þá stuttu eins og áður hefur komið fram, kemur svona létt "systra sveifla" hjá henni sem ég veit að sumir þekkja. Þetta allt og síðan ótrúleg fimi hennar sannfærðu okkur í kvöld að hún mun aðlagast vel í Landlystarhópinn.
Jæja látum nægja í dag og biðjum kærlega að heilsa og þökkum enn og aftur allar þessar hlýju kveðjur sem við erum að fá það er virkilega gaman að lesa þær yfir á kvöldið þegar sú stutta er sofnuð.
þriðjudagur, júlí 12, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
13 ummæli:
Var svo spennt að sjá myndir af telpunni ykkar að ég fékk Þórhildi til að gefa mer upp bloggið ykkar. (vonandi var það allt í lagi). Alla vega langaði bara til að segja innilega til hamingju með fallegu dótturina.
Þið eigið eftir að verða super góðir foreldrar. Myndirnar af ykkur segja allt sem segja þarf.
Kær kveðja frá Hamburg
Lilja
Gaman að heyra að hún sé farin að brosa til ykkar og sættast.
Við erum spennt að fá fleiri myndir manni finnst endilega að við verðum að fá eitt slædsjó á hverjum degi...
Kveðjur frá familinunni
Corleones.
Þetta er frábært! Innilega til hamingju, kv.Ágúst frá VKS
Segi nú eins og margir í gestabókinni takk fyrir Gyða og Kalli að leyfa okkur hér að fylgjast með þessari lífsleynslu ykkar allra, hún Sigríður Bára er alveg hreint gullfalleg get ekki hætt að skoða myndirnar!
Kveðja
Gerður
það er frábært að fá þessar myndir á hverjum degi.takk fyrir það.ég hef aldrei séð þig gyða svona brosandi og hamingjusama.og auðvitað líka kalla.við systurnar vorum í kaffi áðan að RÆÐA málin og undirbúning fyrir komu ykkar-búa um og svona............
gangi ykkur vel og stór koss yfir á siggu báru min
xxÞórhildur
Hæ elsku fjölskylda. Þetta eru góðar fréttir sem þið látið frá ykkur. Hún er fljót sú stutta að skynja hvaða mann þið hafið að geyma. Sú er lánsöm að eiga ykkur að.
Hemmi og Þóra komu við hjá mér í gærkvöldi því famelían þarf að sjálfsögðu að tala um ykkur - það er ekki nóg að skrifa inn á bloggið.
Myndirnar eru skoðaðar oft á dag og maður reynir að lesa úr myndunum hvaða karakter litla snúllan hefur að geyma. Miðað við myndir og ykkar lýsingar þá veðja ég á athafnasaman drullumallara...híhíhí - það verður gaman hjá henni að göslast utandyra.
Ég verð að taka undir það hjá henni Þórhildi að þú ljómar eins og sólin á myndunum sem settar voru inn í dag. Þið takið ykkur frábærlega vel út.
Kossar og knús.
Olga.
Elsku þið, þessi frásögn var bæði skemmtileg og áhugaverð. Lýsingarnar og myndinar segja okkur mikið um Kína - sem er mikilvægt fyrir okkur hin sem tökum á móti litlu hnátunni þegar til Íslands kemur. Ég segi eins og „systurnar“ ég held ég hafi aldrei séð ykkur tvö eins hamingjusöm svo hamingjusöm að brosin ná alla leið frá Kína heim í tölvuna hans Magga La. Við erum alltaf að prenta út myndir og hengja upp - nýjar á hverjum degi.
Hermann frændi er að springa úr stolti og satt best að segja hef ég ekki séð hann svona spenntan í mörg ár. Hann á ábyggilega eftir að stofna íþróttafélag fyrir frænku sína ef þið biðjið hann um. Alla vega held ég að hann verði fúll ef hann fær ekki að koma nálægt íþróttaiðkun hnátunnar.
Kær kveðja, Þóra
Vá vá vá jíbbý jó jíbbý jei minnið mig á að koma með ykkur til kína. Því þetta er allt annað en ég hafði hugsað mér þegar ég heyrði orðið Kína. Þetta er bara nokkuð flott land. Ég vill nota tækifærið til að bjóða Siggu Báru velkomna í hóp Brúneygðu barnabarnanna (BB) (ég, Sigga Bára, Erna Hrund, Védís, Steinunn Vala og svo Álfrún þegar hún kaupir sér brúnar linsur...aftur).
kv.Maggi valur (Ég þarf varla að að seija frændi aftur er það nokkuð? =-))
Hæ hæ, þetta eru svo æðislegar myndir af henni Siggu Báru og það er svo gaman að sjá hvað þið eruð hamingjusöm á myndunum, bara bros :))maður sér á myndunum að hún er að taka mömmu og pabba í sátt :))
Hlakka til að fá ykkur heim,
Kær kveðja,
Júlíana
Elsku vinir. Yndislegar fréttir. Dásamleg lítil stúlka. Innilega til hamingju. Við fylgjumst spennt með ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur. Fjölskyldan Smáragötu 1.
Úff ég er að deyja úr spenningi vá hvað ég hlakka til að sjá litlu snúlluna hún er æðisleg og greinilega brosmild hnáta. Pabbi er það spenntur að hann talar um hana á hverjum degi og á eflaust eftir að taka hana að sér þegar kemur að íþróttum og ekki kæmi mér það á óvart ef hann keypti ekki einn lítinn Arsenalbúning handa henni þegar við förum til London í haust áður en Palli frændi nær henni yfir í Manchester hópinn svo hún fái nú að sjá almennilega menn spila fótbolta ;)
Hæ og til hamingju aftur. Frábært að geta fylgst svona með hvernig ykkur gengur, skoðað myndir og þess háttar. Mikið er litla frænka sæt alveg hreint dásamleg þið eigið eftir og eruð þegar orðnir frábærir foreldrar til hammmminggju. kv. Sigr. Ósk
Þetta er tær snilld að blogga sona, ótrúlegt hvað hún hefur tekið við sér á stuttum tíma. Foreldrarnir eru að standa sig frábærlega, ekki við öðru að búast.
Kv.
Bína og co
Skrifa ummæli