sunnudagur, júlí 10, 2005

Þvílík fegurð

Þetta er alveg ólýsanlegt, þessi fallega prinsessa er komin til okkar. Það var ólýsanleg spenna búin að vera hjá okkur og öðrum í hópinum í dag. Fyrst að bíða eftir þeim og auðvitað var seinkun á þeim þannig að við fengum þær ekki í hendur fyrr en rétt undir kl 16:00 að staðartíma. En vægt til orða tekið margra ára bið er þess virði. Stundin rann upp og lítil falleg en svolitíð óvær dama grét talsvert fyrst hjá okkur. Var ekki alveg sátt við allt þetta ljósa hár (móðirn nýja- sá ekki gráa "hárið" hjá pabbanum) og óskiljanlegt tungumál. Fyrst var hún bara í fangi pabba og það var ólýsanlegt að finna hjartslátt hennnar smá róast og fara að vekja athygli hinu margbrotna umhverfi í kringum sig. Við kveiktum á sjónvarpinu svo hún myndi halda áfram að heyra sitt tungumál og Minmin eins og hún hefur verið köllum á heimilinu smá braggaðist. Við höfum verið að reyna að koma mat í hana en gengið ílla ennþá. Læknirinn kom og skoðaði hana, taldi að hana vantaði meira kalsíum en annað er í góðu lagi. Við heyrum ekka sog við og við og þá grettir hún sig og lítur út eins og gömul kona....
Jæja látum þetta nægja núna en setjum meira inn kannski síðar í dag.

45 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku bestu Gyða, Kalli og Sigríður Bára, við fylgjumst spennt með frá Húsatóftum. Hugurinn er hjá ykkur öllum. Hafið það sem allra best. Heiðrún og Gestur

Nafnlaus sagði...

Gaman að vera fyrstur til að kommentera á þetta. Maður er alveg að tapa sér ur spenningi yfir að sjá myndirnar.
Heyrði í Kalla áðan, heyrði í litlu frænku og var þar með fyrstur held ég til að heyra hljóðin í henni. Gott ef það er bara ekki einhver Landlystartónn í þeirri stuttu alla vega dálítið hávær heyrðist yfir hálfan hnöttinn..
Don

Nafnlaus sagði...

Til hamingju, hamingju, hamingju :)með dóttur ykkar hún er svooo falleg og gaman að sjá þessar frábæru myndir. Nú er bara að bíða eftir því að geta knúsað frænku sína í kaf.
Kossar og knús til ykkar allra.
Kveðja, Olga og fjöldskylda.

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með hana siggu Báru sit hér með tárin í augunum :)
Gerður

Flintebakken fjölskyldan sagði...

Gaman að sjá loksins myndir af ykkur með Siggu Báru. Myndarlegasta stelpa ;-) Við erum að bíða eftir okkar 3ja prinsi en hann kemur á föstudaginn 15 Júlí.

Góða ferð og hafið það sem allra, allra best.

Gummi, Tóta, Einar Kári, Guðni Þór og bumbus.

Nafnlaus sagði...

Verð nú að taka það fram að dætur okkar eru næstum jafn gamlar, Freyja er fædd 3.apríl 2004, þær verða kannski góðar saman einhvertíma ;)
Gerður

Nafnlaus sagði...

ELsku fjölskylda til hamingju með litlu prinsessuna hún er algjört æði vá hvað ég hlakka til að fá að knúsa hana :D:D:D, bíð spennt eftir ykkur :D
haha ég var á undan pabba og Magga :p

Nafnlaus sagði...

Gyða og Kalli.
Innilega til hamingju með litlu,fallegu Sigríði Báru. Gaman að fá að fylgjast með.
Gangi ykkur ávallt allt í haginn.
Rúna og Guðm. M.

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða og Kalli til hamingju með dótturina. Ég samgleðst ykkur innilega og hlakka til að sjá ykkur aftur. Góða ferð áfram.
pussar og kramar,
Ágústa

Nafnlaus sagði...

Kæru nágrannar,
Hjartanlega til hamingju með litlu dúlluna ykkar,hún ersvo falleg. hlökkum til að hitta Sigríði Báru í garðinum,
Bestu kveðjur til allra,
Óskar, Adda og co

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju. Hún er æðislega sætt og bara þó nokkur svipur. Alveg magnað. Við fylgjumst spennt með. Bestu hamingju óskir frá okkur
Hemmi, Þóra, Maggi og Erna Hrund

Nafnlaus sagði...

Já ég skal viðurkenna að ég er grátandin núna - það kom að því:-) Þetta er ein fallegasta stund sem ég hef upplifað (og það í gegnum tölvu). Sigga Bára Min ber nafnið vel, er yndisleg og falleg. Gaman að sjá hversu vel hún hefur braggast frá þeim tíma sem þið fenguð fyrstu myndina. Hemmi frændi er að drepast úr spenning - það æði að fylgjast með honum.
Kær kveðja,
ykkar Þóra úr Gvendó

Nafnlaus sagði...

Vá vá vá vá vá.Hún er svo sæt og fín og flott og æðisleg og frábærlegaflott. Ég held að hún fái nafnið keisaraynja hjá ömmu eða miss World.
bæ í bili Maggi Valur (frændi) :-)

P.S Og ég held að pabbi hafi rétt fyrir sér með svipinn

Nafnlaus sagði...

Til hamingju elskurnar. Við hlökkum mikið til að sjá prinsessuna. kv. aggi og magga

Nafnlaus sagði...

Kæru foreldrar !
Innilegar hamingjuóskir með fallegu dóttur ykkar.
Gangi ykkur vel í framhaldinu.
Bestu kveðjur
Þórir, Freyja, Lind og Berta Rögn - sem kom frá Kina 18. mai 2005

Nafnlaus sagði...

Flottust, auðvitað verður Landlystar tónn í dömunni - ef hann er ekki þegar þá lærist hann fljótt -
Ástarkveðjur frá Bínu og co

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda,
má bara til með að óska ykkur til hamingju með að vera búin að fá hana Sigríði Báru í fangið:) Var mikið búin að brjóta heilann um af hverju í ósköpunum ég kannaðist svona við pabbann og svo uppgötvaði ég að hann var með fyrirlestur í bekknum mínum í vor (hjúkrunarfræði í HA), að ég held;)
Gangi ykkur allt í haginn:) Yndislegt að fá að fylgjast með:)
Kær kveðja,
Gígja mamma hennar Maríu Mistar sem kom heim frá Kólumbíu 10. júní sl.

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Innlega til hamingju hvert með annað. Stoltið leynir sér ekki á svip foreldranna, enda ekkert skrítið, stúlkan er yndisleg.
Gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján, Hjalti stóri bróðir og Hildur Björg sem kom heim frá Kína í maí 2002.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju elsku Gyða og Kalli, hún er svoo falleg hús Sigríður Bára :)) Ég segi eins og Þóra, maður situr yfir tölvunni með tárin í augunum, það er búið að vera yndislegt að fylgjast með þessu öllu saman og ég hlakka svo til að fá ykkur öll heim. Kær kveðja, Júlíana Siggi, Gabriela og Dagur frændi :))

Nafnlaus sagði...

Mikið er hún Sigríður Bára Min falleg og sæt, innilega til hamingju með stelpunni.
Gangi ykkur sem best saman.
Kveðjur
Susanne, Einar, Anna Xing, Sámur og Kassanrdra úr hóp 11

Nafnlaus sagði...

Vá ég tárast bara nánast! Innilegar hamingjuóskir með að vera búin að fá hana Sigríði Báru til okkar - Þið takið ykkur ótrúlega vel út í foreldrahlutverkinu og litla líka svona rosalega falleg :) henni finnst greinilega puttarnir sínir mjög góðir :) Gangi ykkur vel með restina af ferðinni...

Nafnlaus sagði...

Kæru Gyða og Kalli. Hjartans hamingjuóskir með litlu snótina. Hún er yndisfríð.
bestu kveðjur
Díana (hóp 13)

Nafnlaus sagði...

Elsku Kalli og Gyða.
Óskum ykkur innilega til hamingju með þessa prinsessu. Við erum alveg sammála um að hún er kínverska útgáfan af Kalla!! Það verður líka fínt fyrir Guðrúnu Dís að fá jafnöldru til að leika við í vinahópnum.

Kveðjur af Rauðalæknum.
Jóhann, Árný og afsprengi.

Nafnlaus sagði...

VÁÁÁ HVAÐ HÚN ER SÆT:D:D:D:D:D:D
til hamingju með sætustu! hlakka geðveikt til að sjá ykkur:D:D

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda. Innilega til hamingju með hana litlu Minmin, hún er yndisleg. Hún er eiginlega "tvöföld nafna" Sigríðar Önnu þar sem kínverska nafnið hennar er Min Dan. Njótið næstu daga saman sem best.
Bestu kveðjur,
Helga og Sigríður Anna Dan sem hittust í Nanchang 8. ágúst 2004

Nafnlaus sagði...

frabært og til lukku med ungann
hlakka til ad fa ykkur

kvedja fra køben
torhildur og alfheidur

Nafnlaus sagði...

Gyða Kalli og Sigríður Bára Min þið eruð öll allveg yndisleg og falleg og glöð á svipin á myndunum sem engin er sko hissa á Sigríður Bára Min er alveg yndisleg er sko lík ykkur báðum bæði með Berndsen svip og Landlistar svip þetta er sko stórkostlegt að geta fylgst með þessu öllu og við hlökkum til að sjá ykkur og koma við Siggu Báru
Min . Bestu kveðjur og við vonumst til að komast í tölvusamband á morgun en núna erum við í mat hjá Þóru og Hemma og fengum að nota tölvuna þeirra. Bestu kveðjur frá öllum Amma og afi og allir hinir.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Sigríði Báru Min frænku mína. Ég hlakka til að sjá ykkur. Af því að þú varst ekki heima Gyða þá fékk ég ís hjá Þóru.
Kær kveðja, Siggi Valur

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með dótturina - hún er guuuulllllfalleg, ólétta konan fór´að gráta þegar hún sá myndirnar ;-)
Hafið það sem allra best.
Nína, Flosi og Eyrún

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda. Innilegar hamingjuóskir með að vera sameinuð. Það er yndisleg tilfinning. Þetta er falleg lítil stúlka sem þið eigið stoltið leynir sér ekki í svip foreldranna sem von er. Gangi ykkur allt sem best í framtíðinni.
Bestu kveðjur.
Fríða, Örnólfur og Dóróthea Gerður Bin, í hópi 6 og 15

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með litlu dömuna - hún er alveg yndisleg -
Bestu kveðjur - Kitta og Svenni, hópi 15 ;)

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda. Innilega til hamingju með gullmolann ykkar hún er yndisleg og yndislegt að sjá ykkur saman. Hún notar greinilega puttana eins og Katrín Lára gerði og gerir enn! Þeir eru svo góðir!!
Njótið ævintýrisins áfram. Takk fyrir að fá að fyljgast með ykkur.
Kveðja
Kristín, Jens og Katrín Lára hóp 9

Nafnlaus sagði...

Jæja - Nú er stundin kominn - loksins - og liðin. Elsku Kalli og Gyða nú eruð þið PABBI og MAMMA, til hamingju og velkomin í hópinn.
Nú tilheyrir ykkur líf lítillar stúlku, sú er heppinn.
Nú farið þið að vakna - kanski sváfuð þið lítið !!!
Hugsum stöðugt til ykkar og hlökkum til að sjá ykkur.
Kobbi og Edda Huld

Nafnlaus sagði...

Kæri Kalli, ég hef aldrei séð þig jafn spenntan og þegar þú sagðir mér að þú færir til Kína eftir nokkra daga til að ættleiða lítið barn. Eftir að hafa fylgst með þessum hluta ferðarinnar get ég rétt gert mér í hugarlund hamingjuna sem þið hljótið að vera að upplifa núna. Gyða og Kalli innilega til hamingju með foreldrahlutverkið og allt sem með því fylgir.
Kveðja, Svavar G.

Nafnlaus sagði...

Það er mikið búið að fletta myndunum síðustu klukkutímana. Það er ekki hægt að segja annað en að þið takið ykkur vel út. Gott að sjá að hún "Minfríður" litla er farin að brosa þegar ljóshærða skellan tekur hana í fangið. Falleg og hugljúf mynd þegar mæðgurnar liggja saman og Min er sofnuð á mallanum á mömmu sín...
Send some more send some more fótos please..
Don se Min : )

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með þessa GULLFALLEGU stúlku! Hún er SVO sæt, það er ekkert venjulegt! Ég varð bara klökk þegar ég sá myndirnar! :) Hlakka mikið til að fá Sigríði Báru í heimsókn til okkar! Kær kveðja,
Signý (utl).

Nafnlaus sagði...

Gyða og Kalli.

Innilegar hamingjuóskir frá frændfólki í vesturbænum.
Vona að allt gangi vel á heimferðinni. Sé ykkur ef þið stoppið í CPH.
frændi

Nafnlaus sagði...

Innilegar hamingjuóskir með litlu skottuna, þvílíkt beauty!
Óska ykkur góðrar heimferðar.
KV Bára (utl)

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð og innilega til hamingju með dótturina fallegu og lífið.
Það er dásamlegt.

Kv. Kjartan Örn

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búin að fá dótturina til ykkar. Vona að þið eigið góða ferð heim kæru vinir. Hlakka til að hitta Sigríði Báru.

Nafnlaus sagði...

Við erum búin að fletta og fletta til að skoða myndirnar, það er ekki annað hægt að segja en að þið takið ykkur vel út, og þetta er yndisleg stúlka. Til hamingju enn og aftur. kveðjur frá Ísafirði

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir, hjartanlega til hamingju með Sigríði Báru. Hlökkum til að hitta ykkur hér í Reykjavík.
Bestu kveðjur
Einar Örn og Margrét.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með fallegustu stelpuna! Hafið það sem allra best!
(það er nú einhver grallara svipur á henni Sigríði Báru) :)
Kveðja
Hildur G (utl)

Nafnlaus sagði...

Elsku Kalli og Gyða til lukku með litlu snúlluna ykkar. Vonandi gengur heimferðin vel.

Bestu kveðjur frá Forvarna- og
fræðsludeild LR.

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda,
Við gátum nú ekki annað en brosað útað eyrum þegar við skoðuðum myndirnar og sáum hamingjuna geisla af ykkur öllum. Hildur Sigrún sagði að Sigríður Bára Min væri algjör dúlla og við hin erum alveg sammála því.
Njótið lífsins í Kína. Hlökkum til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur,
Einar, Inga Lára, Hildur Sigrún og Hrannar