mánudagur, maí 01, 2006

Fyrsti maí og maður bara mokar og mokar



Hæ hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn fyrsti maí!!!! Mikið er nú gaman þegar fjölskyldan fær svona auka dag og getur notið hans í þvílíkri veður blíðu í Garðabæ á ylströndinni. Við höfum eytt síðustu tveimur dögum þar að moka, láta bát sigla í litlum læk og skoða fallegar skeljar sem eru þar í þúsundatali. Amma hennar Siggu Báru og afi búa þarna rétt við ströndina og njótum við þess að koma þangað, fara út og svo heim þar sem afi og Siggi frændi hafa útbúið eitthvað gómsætt!!! Heppin eða hvað?
Þar sem mamman er að jafna sig eftir bruna er lítið um sundferðir þessa dagana/vikurnar og biðjum við því að heilsa sundfélögugum okkar sem munu hittast á morgun í Salarlaug - hugur okkar verður hjá ykkur :-(
Bless í bú

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku vinkona

Takk fyrir komuna í dag. Það var svo gaman að sjá þig og ekki laust við að ég hresstist aðeins við það :-) Nú ætla ég bara að fara að henda þessum veikindum út í hafsauga svo ég geti farið með þér í Húsdýragarðinn og kíkt á litlu kiðlingana

knús
Matthildur

p.s. Sólgleraugnamyndin er ÆÐI !!!

Nafnlaus sagði...

Hæ Sigga Bára !
Þín var sárt saknað í sundinu en það var fámennt í dag, bara ég, mamma og Lind, systir en það var samt gaman :)
Mikið átt þú flott hjól og hjálm, ég á líka hjól en það hefur alveg gleymst að kaupa hjálm - verð að biðja þau að bæta úr því hið fyrsta.
Það er ljóst að þið látið ykkur ekki leiðast - myndirnar þínar eru frábærar.
Sjáumst fljótlega,
Berta Rögn og mamma.

Nafnlaus sagði...

HOWDY!!!!! Á aldrei að kíkja í heimsókn til Ausu og Ragnheiðar frænku, hvernig er það? Sólgleraugnaskvísan er flott á myndinni!! Þetta er rétti fílingurinn! Sól og sumar...Við hlökkum til að sjá ykkur í útskriftarveislunni ;D;D;D

Nafnlaus sagði...

hæ Sigga Bára,
aldeilis að þú hefur stækkað stelpuskott.
Þú ert mjög fín með hjálminn og ert aldeilis fyrirmynd fyrir okkur hinar litlu stelpurnar (svo er líka gott að gleðja hann pabba gamla og nota hjálminn).
sjáumst fljótt í sundinu,
bestu kveðjur til foreldranna, vona að bruninn hjá mömmu þinni sé að jafna sig.
Díana og Guðrún Edda