

Mikið er nú skemmtilegt þegar vorið kemur. Tvær stórar frænkur voru í næturgistingu og ekkert smá gaman að fylgjast með öllu sem þeim datt til hugar. Eftir skemmtilegt kvöld sofnuðu þær frænkurnar undir meistarastykkinu um súkkulaðiverksmiðju Kalla og vöknuðu kátar og hressar í morgunverkin. Þá fórum við öll í laugina þar sem Sigga Bára var á heimavelli og naut sín reglulega vel enda orðin mikil sundgarpur. Eftir lúrinn var farið í Hreyfiland þar sem við hittum fullt af skemmtilegum krökkum og nutum þess svo vel að hoppa og skoppa og síðan er ekki slæmt að eiga þokkalega útisinnaða foreldra því eftir garðskoðun hjá frænkunum í Grafarholtinu þá tóku við garðverkin með Pabba þar sem við byrjuðum vorverk og lögðum línuna fyrir næstu daga. Sigga Bára er alveg klár á því að þegar kjóll eða skokkur er dreginn fram þá er afmæli í gangi. Svo mikið hefur verið í gangi að undirbúa afmælin undanfarið að Sigga Bára er búinn að syngja afmælissönginn í tíma og ótíma. Foreldrarnir voru hálf vandræðanlegir þegar nágrannar fóru að óska okkur til hamingju með afmæli hennar og þurfti smá útskýringar um að söngurinn hjá SBM væri bara undirbúningur fyrir afmæli hennar í sumar, en ætti ekki við rök að styðjast. En kvöldið endaði síðan með skemmtilegu kvöldboði hjá Palla og Höllu þar sem undirbúningur var hafinn fyrir Ítalíuferðina í sumar. Ammmalída
2 ummæli:
Sæl Sigga Bára
Gaman að hitta þig á laugardaginn í Hreyfilandinu, svona líka ótrúlega spræka og sveitta. Þú ert líka svo svakalega dugleg ;o)
Rosalega flottar myndirnar af þér í albúminu.
Hafðu það gott í góða veðrinu. Bæjó, Anna Bíbí og mamman
uuu Ítalíuferðina? Vantar ykkur túlk? ;)Ítalirnir eru engir sérstakir tungumálagarpar sko...:D
Skrifa ummæli