

Já hún Sigga Bára fékk að upplifa um helgina að sitja aftaná hjólinu hennar mömmu og var það gleði, gleði, gleði, gleði alla tíð................ Hún er annars að þroskast mikið eða bara góð að herma efitr því um leið og þau gömlu segja "jæja það eru að koma fréttir" rýkur hún af stað skríður upp í sófa á besta staðinn og liggur þar og flatmagar og segir "frétttir"!!!!!
Í dag var farinn maraþon hjólreiðahringur með þeim mæðgum Kristínu og Matthildi sem endaði þannig að dæturnar ákölluðu kerrurnar sínar og þegar heim var komið og kerrurnar komnar í augsýn komu tár á hvarma og þær hlógu uppgefnum hlátri - jú hviss og bang sofnaðar á nóinu.
Jæja höfum það ekki lengra í bili
Bless í bú
2 ummæli:
Ójáááá....það er sko gaman að hjóla :-)
Takk fyrir frábæran hjólatúr í dag....fyrsti hjólatúrinn af mörgum í góða veðrinu í sumar...jeiiiiii. Knús í krús frá Matthildi (sem að vísu sefur á sínu græna inní rúmi) og mömmunni
Ég vissi hreinlega ekki að þið væruð farin að blogga aftur...nú get ég farið að kíkja aftur á ykkur reglulega.
Hún er nú bara guðdómlega falleg hún Sigga Bára...þið eruð svo heppin með hana...og maður getur ekki annað en brosað yfir prakkarasvipnum á henni...alveg eins og mamma sín! ;)
Það er ein hérna lítil sæt á EGS frá Kína sem að heitir Hekla og mér skilst að hún fái vonandi systkini (systur) frá Kína bráðlega.
Annars gengur bara súper vel á EGS og ég fíla mig vel í sveitinni, þið verðið að bjalla á mig ef að þið komið austur...er samt komin með nýtt nr. en þú getur alltaf sent mér mail og fengið það...
Gleðilegt sumar :)
Skrifa ummæli