

Það er í eitt ár liðið frá því við fengum sólargeislann í lífi okkar. Lítill ungi sem saug fingurna, strauk vinstra eyrað sitt og grét. Mikið var lagt á hana Siggu Báru þennan dag fyrir ári síðan, meira en okkur getur grunað. Hún grét allan þennan dag en leyfði okkur að halda á sér, hún gat gleymt sér við að maula mat í stutta stund en áður en við vissum af kom gráturinn aftur og benti hún á hurðina – út vildi hún. En það hefur mikið vatn runnið til sjávar og gráturinn hefur breyst. Í dag grætur Sigga ef hún fær ekki sínu fram eða grætur vegna þess að við erum ekki hjá henni. Það er stór munur á þeim gráti í Kína. Elsku litla Sigga hefur vaxið og dafnað. Hún hefur glatt hjörtu margra en þó mest foreldra sinna. Takk fyrir þetta fyrsta ár kæra dóttir – fyrst við gátum þennan dag í fyrra getum við allt saman ;-)
14 ummæli:
Ótrúlega er tíminn fljótur að líða, árið er liðið.
Það er deginum sannara að Sigga hefur glatt fjölskylduna svo um munar - hennar sess í fjölskyldunni hefur víkkað sjóndeildarhringinn og gefið nýja sýn á lífið.
Við erum bara stolt af frænku okkar.
Elsku Sigga Bára og fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með árið ykkar og okkar saman. Það hefur verið ævintýri líkast.
Sigga Bára er þvílíkur gleðigjafi og ótrúlegt að sjá hvað hún hefur dafnað og þroskast á þessu ári í faðmi sinna frábæru foreldra :-)
Njótið dagsins.
Matthildur, mamma og pabbi
Elsku Sigga Bára, Kalli og Gyða
Innilega til hamingju með daginn. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Vonum að þið hafið átt góðan dag.
Bestu kveðjur
stína, Nonni og Friðrik Daði
Elsku fjölskylda
Hjartanlega til hamingju með eins árs fjölskylduafmælið. Við vitum sko alveg hvað þetta fyrsta ár er fljótt að líða og hvað mikið er að gerast.
Yndislegt að fá að fylgjast svona með ykkur, megi hamingja hrista ykkur áfram ;o)
Knús í tilefni dagsins, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Úps, já og takk fyrir samveruna í útilegunni um helgina. Þetta var sannarlega gaman ;o)
Sjáumst, Anna Bíbí og foreldrarnir
Kæra fjölskylda,
innilegar hamingjuóskir með árið ykkar saman:) Ótrúlegt að það sé komið eitt ár!
Bestu kveðjur að norðan,
Gígja og María Mist.
Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með árið ykkar saman. Það er svo merkilegt hvað maður man alla hluti í smáatriðum frá þessum fyrsta degi. Megi þið eiga fjöldann allan af árum saman til að gleðjast saman.
Kveðja,
Bjarni Anton og foreldrar
Innilegar hamingjuóskir kæra fjölskylda með fyrsta samveru árið. Jii hvað þetta er fljótt að líða :)
Bestu sumarkveðjur -
Kitta, hópi 15 :)
Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með árs samveruafmælið ykkar, megi næstu ár-atugir) vera jafn yndislegir, það fer sko ekki á milli mála hver er sólargeislinn á heimilinu ;)
Kveðjur úr Mosó
Langar til að óska ykkur til ahmingju með 1 árs samveruafmælið ykkar....tíminn líður svo ótrúlega hratt. Sigga Bára er líka algjör gullmoli!
Kveðja
Sigga og Lóa Guðrún hópi 10 til Kína
Elsku Sigga Bára og fjölskylda
Innilegar hamingju óskir með árs afmælið.
Og takk fyrir samveruna í útilegu ÍÆ.
kv.Auður og fjölsk.
Elsku Sigga Bára og fjölskylda
Innilegar hamingju óskir með árs afmælið.
Og takk fyrir samveruna í útilegu ÍÆ.
kv.Auður og fjölsk.
Kæru grannar!
Til hamingju með með fjölskylduafmælið ykkar. Sigga Bára hefur braggast og dafnað alveg ótrúlega síðan við hittum ykkur í grasagarðinum fyrir um ári síðan. Hafið það sem allra best. Sjáumst!!
Elsku Sigga Bára, Gyða og Kalli
Til hamingju með árið ykkar saman. Þetta er svo ótrúlega fljótt að líða og þegar maður hugsar til baka, til fyrsta dagsins með englunum okkar þá getur maður ekki annað en tárast. Ótrúlegt hvað þau hafa breyst og þroskast og þau þroskað okkur (vonandi til betri vegar). Elsku Sigga Bára megi guð og gæfan vera með þér í framtíðinni. Hlökkum til að sjá þig í sundi. Kveðja Rósa, Pétur og Atli Steinn
Skrifa ummæli