
Foreldrar Siggu vita mæta vel að þau hafa ekki verið dugleg að skrifa upp á síðkastið. Ástæður eru margvíslegar og margar - aðallega þær að við höfum verið mikið iðin við að fara í stutt ferðalög, hitta vini og njóta síðustu daga Siggu Báru og mömmu í barnsburðarleyfinu.
Sigga Bára og fjölskylda fóru í frábæra veislu um helgina til Söru og mömmu hennar. Þar mættust allar stelpurnar úr hópi 12 og héldu upp á afmælin sín eins og þeim einum er lagið. Mæting kl. 15 og farið heim 21 - sannkölluð partýljón!!!! Þetta var hreint út sagt frábær veisla og allir, þá aðallega afmælisbörnin, voru í svo góðu skapi að það hálfa hefði verið nóg. Þær voru duglegar að leika saman úti, meira en venjulega, mikið búnar að þroskast og svo er ein hætt að nota bleyju!!!!! Já svona eru þetta flottar stelpur. Við viljum bara nota tækifærið og þakka öllum vinum okkar fyrir þennan frábæra dag saman og vonandi hittumst við fljótt aftur.
Núna eru bara 10 dagar þar til Sigga Bára byrjar á leikskólanum - hún segist bara hlakka til og kveður mömmu stundum á daginn, þykist labba út um dyrnar og segir " Bess mama e farin leiskolan" - púff og sjúkk
Bless í bú
3 ummæli:
Hæ Sigga Bára stríðnispúki. Vertu góð við mömmu þína næstu daga því það er svo erfitt fyrir mömmur þegar litlar stelpur fara í leikskóla.
Blessi þig og ykkur öll,
Dóra, mamma hennar Sunnu Herborgar, sem er búin að skæla oft og verða afbrýðisöm af því Sunnu þykir gaman á leikskólanum sínum og þykir fóstran sín góð.
Kæra fjölskylda.
Gaman að fá nýjar fréttir og sjá nýjar myndir, takk, takk.
Leikskóladvölin er hluti af þroskanum, jafnt fyrir börn sem foreldra!! Við erum vön, Hildur Björg byrjar brátt sinn lokavetur á leikskóla, síðan er það grunnskólinn, púff.
Vonandi sjáumst við fljótlega.
Bestu kveðjur, Hildur Björg og fjölskylda.
Þið eruð svooo sætar kínasystur - manni langar bara að borða þessar stelpurófur en þó öllu meira til að sjá þær í framtíðinni svo ég sleppi því að borða þær núna.
Fæ nú bara kvíðaverk í magann að heyra frá þessum reyndu leikskólamömmum - úff vil helst ekki heyra um þetta né hugsa -
bestu kveðjur til ykkar og vonandi skellið þið ykkur í sundið á þriðjudaginn.
Guðrún Edda og leikskólafælna mamman
Skrifa ummæli