fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Það verður leikskóli á morgun



Já núna fer að styttast óðum í að litla daman labbi sér yfir götuna og byrji á leikskólanum. Á morgun er fyrsti aðlögunar dagurinn og mikil spenna búin að magnast hér á heimilinu bæði hjá Siggu Báru og foreldrunum. Við erum viss um að þetta gangi vel þar sem Sigga Bára hefur fengið að fara nokkrum sinnum út að leika þegar leikskólinn er með útiveru á morgnanna. Sigga Bára hefur meira að segja ekki alltaf viljað fara heim með þeirri gömlu heldur viljað fara beint inn að leika!!!!!
Annars hefur ágúst mánuður einkennst af miklum heimsóknum út á land. Við eyddum nokkrum dögum í sumarbústað með Bínu, Olgu og stórfjölskyldum sem var hreint út sagt frábært auk þess sem við fórum í heimsókn til ömmu, afa og Sigga Val þar sem þau voru í bústað. Auðvitað var svo farið á tónleika með Stuðmönnum um verslunarmannahelgina. Sigga Bára sofnaði að vísu yfir honum Valgeiri en ..............
Jæja látum þetta nægja í bili
Bless í bú!!!!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur vel á morgun :-)

Nafnlaus sagði...

ohhh...nú er klukkan að verða hálf ellefu og væntanlega eruð þið handan götunnar í aðlögun :-) Sendum ykkur súperstrauma~~~~~ Pabbinn í Blómvangi var að labba með heimasætuna í leikskólann...annan dag í aðlögun.

Við erum viss um að allt gangi vel hjá dömunum okkar....þær eru leikskólastelpur af lífi og sál...enda búnar að æfa sig svo vel að leika saman ;-)

knús í krús
Kristín....og Matthildur sem er í leikskólanum :-)

Nafnlaus sagði...

Sæl sæta skvís
Vonandi hefur þér bara litist vel á leikskólann þinn og ert öruggleg spennt að byrja. Hugsaðu þér bara, þetta verður örugglega erfiðara fyrir foreldrar okkar en okkur ;o)
Hlakka til að frétta hvernig þér gengur.
Knús, knús, Anna Bíbí (sem er líka að byrja í leikskóla) og mamman

Nafnlaus sagði...

Áfram Sigga Bára!!!
Engin smá tímamót að byrja í leikskóla. Nú byrjar fjörið fyrir alvöru.....jihúú :)