sunnudagur, ágúst 13, 2006

Bíddu - hef ég ekki verið hér áður???




Fyrsti leikskóla dagurinn var nú eiginlega þannig að það var eins og Sigga Bára hafi verið þarna áður. Sú stutta gekk inn eins og hún ætti skólann, ekkert sjálfsagðara en að hengja upp úlpuna og töskuna á nýja kisu snagann og tölta sér inn á ganginn. Á móti okkur tók Sigrún skólastjóri og þær Sigga Bára skoðuðu fiskabúrið sem hefur fjársjóð á botninum!!!!! Svo hittum við hana Láru sem er svo indæl og þær Sigga fengu sér síðar labbitúr og leiddust hönd í hönd. Svona til að gera langa sögu stutta þá fór Sigga Bára að gráta þegar móðirin þurfti að fara með hana heim!!!! Svona var þetta nú - svo héldum við upp á daginn með því að fara í bakaríið og fara með skúffuköku til ömmu og afa - Sigga Bára var orðin stór stelpa.
Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir - það er svo gaman að lesa orðsendingarnar frá ykkur!!!
Bless í bú - á morgun verður snæddur morgunmatur með öllum krökkunum ............

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh - en gaman að heyra hvað þetta gengur vel hjá skvísunni :) - Svona á þetta að vera - er það ekki annars ;)

bestu kveðjur - Kitta

Nafnlaus sagði...

Halló Sigga Bára

Mikið ertu nú dugleg stelpa, enda ekki við öðru að búast. Vonandi gengur allt saman vel áfram, góða skemmtun í leikskólanum

kv. Stina, Nonni og Friðrik Daði Deb

Nafnlaus sagði...

Jemundur minn hvað þú ert búin að stækka mikið!! Til hamingju með áfangann litla vinkona:D

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá hvað ykkur gengur vel litla fjölskylda, það skín gleði út úr hverri mynd. Bestu kveðjur frá Ísafirði, og takk fyrir að fá að fylgjast með Siggu Báru.

Nafnlaus sagði...

Hæ Sigga Bára.
Voðalega er langt síðan við hittumst síðast, en það er nú svona þegar þessar mömmur okkar þurfa að fara að vinna. Gaman að heyra að vel gengur á leikskólanum, það er svo gaman að vera með öllum krökkunum.

Bestu kveðjur til foreldranna.
Bjarni Anton og mamma

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera byrjuð á leikskólanum og gaman að heyra hversu vel gengur. Ég spurði mikið um þig alltaf þegar ég fór út á leikvöll í sumarfríinu, eftir að við hittumst á leikvellinum einn daginn í sumarfríinu. Mamma hvar er Sigga Bára? Núna hittumst við bara úti í garði á hverjum degi ;o).
Kveðja Guðný Sigurrós og mamma