
Halló vildum bara láta alla vita að það var æðislegt í Húsdýragarðinum. Það eru þrír sætir kiðlingar fæddir og fengum við að klappa þeim. Þeir voru svo gæfir og mjúkir að okkur langað mest til að halda á þeim heim. Svo voru líka tvö lömb fædd í fyrradag sem voru ekki síður gæf og lölluðu sér til okkar til að láta knúsa sig. Svo klikkar ekki að enda góða ferð á kaffihúsinu og fá sér heitt kakó og skúffuköku ( með rjóma)!!!!!
Settum nýjar myndir inn á albúmið.
Bless í bú
3 ummæli:
Gaman gaman....við pöntum sko ferð í Húsdýragarðinn með ykkur sem fyrst !!! Söknuðum ykkar í sundinu í gær. Hafið það gott um páskana :-)
knús
Blómvangsmæðgurnar
Hæ skvís
Gaman að sjá að síðan þín er farin að virka aftur og virkar sko vel.
Frábært að geta fylgst með þér dafna og sjá hvað þú ert að bralla. Svo er líka svo gaman að sjá þessar flottu myndir af þér.
Sjáumst, Anna Bíbí (sem er löngu sofnuð) og mamman
En hvað daman er sportleg og flott á myndinni svaka skvísa :) - jii hvað hefur verið gaman hjá ykkur í Húsdýragarðinum - alltaf gaman að fara þangað.
Bestu páskakveðjur -
Kitta, hópi 15 :)
Skrifa ummæli