
Þessa dagana er gaman að vera til og fullt að gera, eiginlega pínu upphitun fyrir sumarið. Þannig er að Sigga á tvær móðursystur sem eru kennarar og núna eru þær báðar í páskafríi og hafa litið við í heimsókn og við til þeirra auk þess sem ein móðursystirin er að vinna vaktavinnu og er mikið heima þessa dagana - þetta er bara ein stór hátíð!!! Svona verður sumarið systurnar með ungana að leika !! Sigga er semsagt mikið að hitta fjölskylduna sína þessa dagana og er stefnan sett á húsdýragarðinn á eftir með frændsystkinum að skoða nýfædda geita unga - góð íslenska væri auðvitað að skoða nýfæddu kiðlingana en ekki "geitungana"!!!!!!!! Jú það er líka búið að vera gaman hjá henni í fermingum - fjórar að baki og tvær eftir. Síðasta ferming var hjá Steinunni Völu stóru frænku sem var svo falleg og fín í fermingarkjólnum og með nýju hárgreiðsluna. Því miður gleymdum við myndavélinni heima og því eru ekki til neinar myndir frá þeirri stórveislu.
Setjum inn myndir af geitungaferðinni inn á apríl albúmið.
Bless í bú
1 ummæli:
Voðalega er gaman að líta inn til ykkar aftur og sjá að það er alltaf nóg að gera.
Ég verð að kýkja til ykkar í alvöru.
kv.
Auður Sig
Skrifa ummæli