
Í gær var loksins riðið á vaðið og Aldís ljósmyndari mætti á svæðið og tók myndir af prinsessunni. Við höfum verið að trassa það að láta fagmann taka myndir af heni og vorum farin að hræðast það að ekkert yrði gert fyrr en á fermingardaginn hennar Siggu Báru- en hjúkk og púff og sjúkk þetta hefur verið gert og lítur vel út. Sigga Bára var bara alls ekkert feimin við hana Aldísi sem kom hingað heim og leyfði Siggu Báru meira að segja að taka nokkrar myndir. Hún Aldís er sannkarlaður proffs. Svo var farið í afmælisveislu til Sigga Vals en ykkur að segja þá er hann Siggi frændi ekta veislu maður því þetta var önnur veislan hans í tilefni af afmælinu þetta árið. Eftir að hafa borðað vel þar á bæ löbbuðum við í kirkjugarðinn og settum páskaliljur á leiði ömmu Gunnu og afa Olla og héldum svo heim á leið. Um kvöldið var svo farið í grill til Olgu frænku og haldið þið að Sigga Bára hafi verið þreytt eftir daginn? Já, hún vaknaði kl. 9 í morgun og hefur verið værukær í náttfötum að leira og leika við pabba sem er enn í náttfötunum núna kl. 12!!!
Bless í bú
1 ummæli:
Sæl Sigga Bára, Gyða og Kalli,
voðalega tekur Sigga Bára sig vel út sem ljósmyndafyrirsæta. Eins og fædd í hlutverkið.
Vildum bara óska ykkur gleðilegra páska og láta vita hvað það er skemmtilegt að skoða myndirnar af ykkur.
Kveðja.
Tóta (sem er reyndar sofandi), Kristín og Reynir
Skrifa ummæli