

Hugsa sér að það sé liðið eitt ár síðan við Kalli fengum upplýsingamyndirnar frá Kína af henni Siggu Báru okkar. Við erum að tala um 365 daga sem hafa liðið ótrúlega hratt en einhvernveginn samt svo langt síðan því okkur finnst hún Sigga hafa verið með okkur alveg frá upphafi. Við erum þakklát fyrir að lífið hafi verið svona gjafmilt og leitt okkur öll saman . Hér eru myndirnar frá því fyrir akkúrat einu ári síðan og svo dömunni í dag. Þú ert best Sigga Min!!!
8 ummæli:
sæl fjölskylda,
til hamingju með daginn - góður dagur,
góða ferð út með ykkar fallegu Siggu Báru Min.
kveðja frá sundfélögunum
Díönu og Guðrúnu Eddu.
Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með daginn í dag sem og aðra daga. Það er frábært að fá að fylgjast með dömunni þroskast og dafna. Það hefur hún svo sannarlega gert á þessu tæpa ári sem þið hafið átt saman.
Vonandi sjáumst við fljótlega.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján, Hjalti og Hildur Björg sem er sko orðin 5 ára!!
Halló fallega Sigga Bára
Okkur langaði bara að óska þér og foreldrum þínum til hamingju með daginn. Heilt ár liðið frá því þau fengu fyrstu upplýsingar um þig og myndir, fyrsta staðfesting á að þú værir sko virkilega á leiðinni ;o) Svei mér þá hvað þú ert lík sjálfri þér á myndunum, bara stærri, þroskaðri og öruglega hamingjusamari ;o)
Vonandi hafið þið gert eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins.
Knús, knús, Anna Bíbí, Sigurbjörg og Axel
erum í sárum hér á Háaleitisbrautinni að geta ekki séð ykkur núna í nokkrar vikur.
Hugsum til ykkar í góða veðrinu á ítalíu.
nebbaknús.Og takkk fyrir frábæra veizlu áður en þið fóruð.
Brói Edda og family.
Innilega til hamingju með daginn kæra fjölskylda og hafðið það sem allra best á Ítalíu.
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.
Hæ hæ Gyða mín,
Vorum að tala um hvað hún Sigga Bára er orðin falleg hérna í vinnunni UTL. Gaman að fylgjast með.=) Endilega kíktu við hérna með hana í sumar einhvern tímann svo maður sjái hvað hún er orðin stór.
Bestu kveðjur,Unnur Edda
Hæ hæ nágrannar!
Hún verður bara sætari og sætari hún litla Sigga Bára. Til hamingju með árið ykkar og ótrúlegt hvað tíminn er afstæður í þessu samhengi svo stutt síðan en samt eins og hún hafi alltaf verið.
Kveðja frá Laugateig 36
Sigga Bára, ferðu ekki að koma heim?? Ertu bara endalaust úti á Ítalíu..??? ...þú ferð þangað sem skiptinemi eftir 15 ár...eins og ég;)
Skrifa ummæli