mánudagur, ágúst 08, 2005

Örugg stjórn á Hofteignum

Myndir
Óhætt er að segja að það sé fjörugt lífið á Hofteignum og enginn vafi hver ræður þar ríkjum. Ungfrú Sigríður Bára Min hefur tekið við stjórnartaumum og heldur fast um þá og örugglega. Svefn og vaka á bænum fer eftir hennar ákvörðun og tekur þá jafnt til hennar og foreldrana sem snúast í kringum þá stuttu enda ekki annað hægt. Við höfum fengið mikið af heimsóknum en við fylgjumst vel með þegar við sjáum þreytumerki á henni því ekki má fara of hratt í hlutina til að þetta aðlögunarferli verði sem best.
Við vorum að skoða eldri myndir af Siggu og sjáum að hún hefur dafnað mikið og þyngst enda mátti hún við því. Einn frændinn sem kom á matmálstíma missti út úr sér að "það væri eins og að koma á Múlakaffi" að lenda hjá okkur í hádeginu. Þá var á boðstólum, grautur, lifrapylsa, rúgbrauð og kæfa svo fátt eitt sé talið upp. Allt er þetta auðvitað gert með ráðnum hug til að koma nokkrum kílóum á Siggu en hún hefur styrkst mjög mikið undafarna daga.
Í gærdag fórum við í heimsókn til Afa á spítalann og sú stutta rak upp öskur þegar pabbinn settist með hana á sjúkrarúmið hjá afa, hélt ábyggilega að þarna stæði til að fara í einhverja læknisaðgerð og var ekki tilbúin að taka þátt í því. En við sáum að það lyftist brúnin á Afa við að sjá hana og við förum næst í heimsókn til afa þegar hann er kominn heim aftur.
Annars gengur allt vel og mikið er frábært að geta átt svona góðan tíma með henni þessar fyrstu vikur

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Það er gaman að fylgjast með og sjá hvað allt gengur vel með draumadísina. Ég var að skoða nýjustu myndirnar, rosalega fínar. Langar reyndar að heyra aðeins í ykkur varðandi myndir. Getið þið sent mér tölvupóst á netfangið thordisi@simnet.is
??
Gangi ykkur áfram jafn vel og bestu kveðjur, Þórdís Í. mamma hennar Hildar Bjargar.

Nafnlaus sagði...

frænka mín er sú sætasta!!!! kyssið hana frá mér...kv íris huld;)

Audur sagði...

Sæl
Það er gott að geta litið inn á ykkur til að sjá hvað allt gengur vel. Mamma biður að heilsa, okkur þætti gaman að fá að hitta keisaraynjuna persónulega ef hún skyldi einhverntíman veita okkur áheyrn.
kv.
Auður og Ásta

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá ganginn í þessu, höfum verið að fylgjast með í laumi.
Flottast að sjá hvað hún stutta líkist ömmu sinni og stjórnast í afa Val: mynd hér.

Förum að koma í heimsókn, núna þegar sumarvertíðin fer að klárast.

Kveðjur af fjöllum:
Sveinn & Sirrý