miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Fréttir af Siggu Báru

Myndir
Þar sem við höfum fengið nokkrar kvartanir yfir því að hafa hætt að segja fréttir af okkur, þeas mest þeirri stuttu, á netinu var ákveðið að setja nokkra nýja punkta um hvernig miðar. Sigga Bára en nátturulega búin að vera alveg frábær finnst okkur og allt hefur gengið ljómandi vel. Hún hefur aukið styrk sinn mikið enda mikið matargat en þó vandlát á hvað henni er boðið uppá þannig er hún t.d. ekki hrifin af "vegalambi" spýtir því útúr sér og vill frekar eitthvað annað en rolluna. Kannski er hún bara matgæðingur og við höfum ekki verið að bjóða henni rétta bragðið.
Við förum með hana í góða göngutúra á hverjum degi og erum að verða búin að ganga um allan bæ og sú stutta situr eins og keisaraynja í kerrunni sinni og baðar út höndum ef sá háttur er á henni en annars situr hún og horfir vel í kringum sig skoðar umhverfið.
Við fórum aftur í sund í dag, núna í laugardalslaugina, og þar var mikið buslað og skemmt sér og ekki mikil hræðsla við vatnið hjá henni.
Hennar hátign féllst loks í dag á beiðni yfirvalda að láta í té þvagsýni en formleg beiðni barst henni fyrir um tveimur vikum síðan og allmargar tilraunir yfirvalda til að ná niðurstöðu í málinu hafa farið út um þúfur. Hún er sem sagt þrátt fyrir allt kona sátta!
Núna bíðum við spennt eftir að hún sleppir sér og kannski standi ein en við teljum að það geti verið stutt í slíka stund hjá henni. Hún hreinlega vill ganga með stuðningi okkar um alla íbúð og foreldrarnir eru orðnir ansi hreint "bognir" í baki og verða að skipta þessu hlutverki á milli sín.
Látum nægja að sinni

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra frá ykkur, ég var farin að hafa áhyggjur, farið að berja og hrista nýju tölvuna mína, hélt að hún virkaði ekki. Gott að allt gengur vel. kv. Ósk

Nafnlaus sagði...

Hún er nú meira krúttið :) - frábært að sjá myndir af henni og hvað allt gengur vel hjá nýju fjölskyldunni ;)


Bestu kveðjur - Kitta, hópi 15 :)

Nafnlaus sagði...

Já við bíðum spennt á ÚTL að fá að berja prinsessuna augum! Frábært að heyra hvað vel gengur :)

Nafnlaus sagði...

Mikið óskaplega var gaman að fá ykkur í heimsókn á Laugarvatn og fá að hitta hennar hátign. Hún er dásamleg. Ella og Óli Maggi komu á mánudeginum. Ella var var koma úr næst síðustu meðferðinni og var mjög styrk og glöð. Við í Funafold 31 vöknum snemma um helgar svo ykkur er alveg óhætt að koma til okkar í morgunkaffi anytime.
Bestu kveðjur Krisbjörg Hrund og co

Nafnlaus sagði...

Sæl Gyða, Kalli og Sigga Bára

Ég hitti ykkur í Laugardalslauginni áðan. Þar varð mér bara svo skvakalega um að hitta svona unga fallega Kínadömu að ég gleymdi að kynna mig. Ég heiti Pálína og maðurinn minn Jökull og við verðum í hópi númer 16.

Við eigum ábyggilega eftir að hittast á einhverju grillinu.

Pálína

Nafnlaus sagði...

Gott að allt gengur vel hjá ykkur, vonandi hittumst við nú fljótlega í Gvendargeislanum hef á tilfinningunni að þær verði góðar saman Sigríður Bára og Freyja :)