miðvikudagur, júlí 14, 2010

Sumarhöllin

Ennþá einn dagurinn er að kveldi kominn.Við fórum og skoðuðum Sumarhöllina sem byggð var fyrir keisaraynju eitthvað um 1400.Glæsilegur staður og svakalega skemmtilegt að ganga um,skoða byggingarnar og þetta fallega umhverfi.Keisaraynjan átti náttulega ekki að þurfa frekar en hún vildi að láta sólina eða rigningu ná til sín og því var byggt yfir hana gönguleið sem síðan er skreytt vandlega með ýmsum merkum sögum sem td má finna í stórkostlegri þýðingu Hjörleifs Sveinbjörnsdonar sem kom út í fyrra um Apaóonginn. Sagan og menningin er eiginlega hvergi meira áberandi en þarna. Enn eitt sem vekur alltaf aðdáun okkar er hversu hreint og fallegt allt er, ekkert rusl á götum og mikið lagt uppúr því að hafa hluti snyrtilega og blómum skreytta. Peking er eiginlega mjög tignarleg borg hvort sem allir leggja sama skilning í það orð og við höfum í huga. Eitt sem ekki er síður aðdáunarvert er að þér líður öruggum allaf hvar sem þú ferð, því þú þarft ekki að ganga með þær áhyggjur að verða rændur eða fjámunum stolið. Vonandi tekst þeim að við halda þessu sem lengst því þetta erekkert í samræmi við þá tilfinningu sem almennt mennhafaþegar gengið erum stórborgir Evrópu sem dæmi


Sigga Bára stóð sem sem hetja í dag og gekk upp og niður þegar við fórum í hæstu hæðir til að skoða húsnæðið, snarbratt og góð æfing fyrir múrinn á morgun. Við lukum þessum degi með því að fara út að borða með Jónu og Jóhanni – þau hafa verið hreint út sagt einstök og þökkum við fyrir gestrisnina og félagsskapinn.

Núna er magnast spennan hjá okkur því það eru ekki margir dagar þar til fjölskyldan stækkar!!
Takk kæra fjölskylda og vinir fyrir falleg comment!

Bless í bú

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bara svo þú vitir það Kalli þá er ljóst að þú getur ekki dulbúið þig sem Kínverji! En eins og venjulega er Sigga Bára lang flottust þótt Edda komi þar sterk inn í sínum skrúða.
Knús frá okkur
Þóra, Hemmi og Maggi La

Nafnlaus sagði...

Kærar þakkir fyrir lykilorðið! :)
Er algjörlega dottin inn í Kínaheimin á ný og ekki laust við að fiðringur fari um mann, enda ótrúlega mögnuð gleðin sem Kína hefur fært okkur! :)...Og ekki nema tæp 2 ár síðan við vorum á svipuðum slóðum! :o) Sigga Bára er þvílíkt yndi og dugnaðurinn í henni og myndirnar, æði! :o)
Auður Edda er bjútý eins og stóra systir, fallegar myndir af henni! :)
Takk fyrir að fá að fylgjast með, ómetanlegt alveg!! :)
Gangi ykkur áfram vel!

Kær kveðja
Sigga, Bjössi, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Nafnlaus sagði...

já ég veit .... hangi á netinu og fylgist með ykkur daglega :)
takk fyrir að vera svona dugleg að uppfæra fyrir okkur spennufíklana hér heima.
knús til ykkar fallega fjölskylda
Día og co

Nafnlaus sagði...

já ég hangi líka á síðunni og fólk spyr mikið um ykkur ......allir forvitnir. Edda glæsileg á myndinni og þú Kalli tek undir það að ekki ertu nu Kínverjalegur þó að þú dulbúir þig!!! Frábært að lesa um ykkur og sjá að allir séu í stuði í Kína. Njótið lífsins :)

Bestu kveðjur frá Kristnibraut 81 og systrum sem koma heim í kvöld úr útilegu

Nafnlaus sagði...

Ömmu finnst hun vera komin hálfa leið til Kína. Þetta er sko frábært að fá bæði myndir og skemmtilega leiðsögn. Ég fót í dag á Hoftieg og þar var allt í lagi veðrið er alltaf jafn gott á íslandi og allt annað í góðu lagi.
Sigga mín alltaf jafn flott og ömmu langaði til að knúsa hana þegar hún var sofandi í kerrunni.
bestu kveðjur til allra
Amma

Nafnlaus sagði...

Júhú!!! Frábært að þettga skuli ganga svona vel!
Bestu kveðjur til gamla liðsins : )

Bína og co

Sigrun og Sara Xiao sagði...

Yndislegt að sjá myndirnar, sammála Sigga Bára lang flottust:) Vildi að við værum með ykkur! Gangi ykkur allt sem best:) Kær kveðja, Sigrún og Sara Xiao

Nafnlaus sagði...

Frábært að fá að fylgjast með ykkur í þessari ævintýraför. Langar svo að sjá myndir - viljið þið senda lykilorðið á ninabs@simnet.is
Hafið það sem allra allra best
Nína og co á bakkanum

Nafnlaus sagði...

Sæl aftur.
Takk fyrir að leyfa okkur að kíkja á myndir, frábærar eru þær, allir svo fallegir og fínir. Og ég (Þórdís) þekki systur hennar Hrundar ferðafélaga ykkar, svona er nú Ísland lítið!!
Já, það styttist í stóra daginn, hlakka til að sjá Auði Eddu í fjölskyldufangi!!
Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.

Nafnlaus sagði...

Innilegar þakkir fyrir lykilorðið:) Ómetanlegt að fá að fylgjast með gæfu ykkar:) Auður Edda er yndisleg ... alveg eins og stóra systir og foreldrarnir!!!:)
Knúúúús og kremjur frá Noregi (í síðasta skipti),
Gígja.

Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra að ferðalagið gengur svona vel. Frúin getur verslað og alið dótturina upp í góðum siðum. Gangi ykkur allt í haginn kæru vinir. Bloggið er stórskemmtilega. Kveðja frá okkur, Aggi, Magga, Unnur María og strákarnir.

Nafnlaus sagði...

Hi hi Bing dao ren´s
Rosalega er gaman að fylgjast með ykkur þarna í kína-landi.
Óneytanlega rifjast upp staðir og stund mín í Kína í oktober 2009.
Svo má ekki klikka á prúttinu á Kína múrnum á morgun ( í dag hjá ykkur) og kaupa litlar og stórar " jólakúlur" og Mao hatt handa Túllanum.
Ég er alveg dottinn inní myndirnar líka og finnst þetta frábært. Vona að Flip camerur komi að góðum notum og við hlökkum mikið til að sjá life action frá ykkur að handann.
Bless í bú ykkar
Kv Hrafnkell " Sólargeisli"
PS: Landsmót 35 ára og eldri í golfi að hefjast á morgun hjá Golf fíklinum

Nafnlaus sagði...

Jæja, þá er maður búinn að fá vítamínskammtinn fyrir morguninn....einn frétta og myndapakka frá flottasta fólkinu í Kína :-)

4 dagar......

knús í kaf
Kristín og kó

Nafnlaus sagði...

Mikið er gaman að fylgjast með ykkur - spennan eykst hinum megin við hafið líka - Halla Elísabet er með það á hreinu að Sigga "Báa stóa fvænka" er í Kína að sækja systur sína! og nú er frasinn "en Sigga Bára gerir svona" vel stimplaður inn í uppeldið á Framnesveginum og reynist vel ! xxx Álfrún, Viktor Og Hallan

Nafnlaus sagði...

Ég er enn ein af þessum sem kýkir á bloggið daglega,gaman að fá að fylgjast með svona úr fjarskanum, en hef engan aðgang að myndum, ef ég má fá hann þá er hægt að senda á ausa@mi.is
Bestu kveðjur til ykkar allra líka frá mömmu
Auður H Sig

Nafnlaus sagði...

Verð nú að vera sammála Þóru og co, Kalli minn þú getur ekki þóst vera Kínverji sorry! Frábærar myndir hjá ykkur elskurnar. Skemmtið ykkur nú vel og hlakka til að sjá meira.
kv. Magga og co í bústaðnum