Þá er komið að lokum þessa dags sem hefur verið virkilega skemmtilegur.Við skiptum liði, konurnar fóru í verslunarferð (Jói og Jóna fóru með dömurnar til klæðskera en afraksturinn verður sýndur við komuna aftur til Peking) en Sigga Bára fékk Pabba sinn og Bróa og síðar um daginn Jóa líka til að stjórna. Það fórst henni vel úr hendi. Við byrjuðumá virkilega skemmtilegur sædýrasafni þar sem allir heimsins fiskar voru til sýnis og ekki var það til að minnka gleðina þegar næstum því alvöru hafmeyjar syntu um innan um hákarla, skjaldbökur og hina ýmsu flat- og skrautfiska. Þetta fannst Siggu ótrulega flott og við áttum góðan dag þarna.Sigga vann svo dæmigerða skrautmynd í verðlaun (gegn vægu gjaldi). Síðan var haldið í smá skoðun í rafeindamarkað en lítið keypt. Mestan hluta dagsins vörðum við síðan í stórskemmtilegum almenningsgarði þar sem fólk sat og spilaði á hljóðfæri, stundaði hinar ýmsu hreyfiæfingar, svaf á bekkjum eða veiddi fiska í tjörnum.Við fórum um allt og Sigga Bára lék sér með börnum á leikvelli og naut vel, nokkrir ísar runnu niður ásamt ýmsu öðru góðgæti. Núna tók hún sér smá lúr og bíður þess að mamma komi heim. Siðan þurfum við að pakka saman dótinu okkar i kvöld og ákveðna hvað við tökum með okkur til Shanghæ þangað sem við fljugum á morgun. Við vitum því ekki alveg hvenær við setjum inn næsta blogg frá okkur en vonandi verður það strax á morgun þegar við höfum komið okkur fyrir á hótelinu.
Bless í bú
föstudagur, júlí 16, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Amma er altaf að kíkja á tölvuna tila að fá fréttir. þetta er allt svo skemmtilegt hjá ykkur og það stórkostlega eftir þegar Auður Edda kemur á mynd með ykkur.Siggi Valur var á púttmót og varð í þriðja sæti og það eru myndir í blöðunum frá því. Hann var mjög ánægður með það.Valur kemur á morgun og þá förum við norður og þóra og Hermenn líka, Hermann kemur með tölvu svo við getu fylgst með ykkur. ÉG bið að heilsa öllum mér finnst Brói flottur í hnébuxunum og táfetunum eins og Pálli segir)jæja elskurnar gangi ykkur vel á morgun og næstu daga allir bíða spenntir.
kveðjur
Mamma
Góða ferð til Shanghai! :)
K.Kv.
Sigga og kó
Hæ hæ ... það á greinilega að slá í gegn í klæðgerasaumuðum fötum á næstu vikum og mánuðum m.v, lýsinguna á verslunarleiðangrinum. Gaman að heyra að allir njóta sín vel jafnt stórir sem smáir. Við biðjum kærlega að heilsa Jóhanni sem var einstaklega lipur þegar við vorum í Kína í maí s.l. Og nú líður að hápunkti ferðarinnar aðeins 2 dagar eða varla það. Við erum hér á Reykhólum í ÍÆ útilegu í glampandi sól en rokið hefði mátt missa sín, en allir skemmta sér vel eins og venjulega. Við söknum ykkar að fá ekki að hafa ykkur með að þessu sinni en hlökkum þess meira til að fá að hafa ykkur "4" með á næsta ári.
Knús og koss frá okkur
Inga, Gummi og stelpurnar
Elsku Gyða og fjölskylda, Guðmundur og Edda, gaman að fylgjast með og lesa ferðasöguna, alveg eins og við sjálf séum komin til Kína. Hvað við værum til í að sjá myndirnar, (gunnarmar@ils.is) Gangi ykkur allt í haginn. knús,
Solla og Gunni.
æði er þetta .........:) góða ferð á morgun öll .......kær kveðja frá okkur á Kristnibraut
hlakka til að heyra og sjá meira af ykkur í næsta bloggi
Vá hvað það er gaman að fylgjast með ferðasögunni ykkar. Þið ljomið öll á öllum myndunum :) Góða ferð áfram og bestu kveðjur til ykkar elsku fjölsk. og til Bróa og Eddu.
Bestu kveðjur, Gurrý
Mikið er gaman að sjá myndir og lesa um allt það sem þið eruð að gera. Þetta er meiriháttar upplifun eflaust en ekki leist mér nú vel á grillspjótin á torginu . Gaman að sjá ykkur öll svona kát enda tilefni til, gangi ykkur vel með framhaldið, hlakka til að fylgjast með ykkur áfram. kv. Ósk Frænka
Skrifa ummæli