Þá er fyrsti hluti ferðalagsins heim að baki og við komin til Peking, þvílíkur unaður og Sigga Bára ljómaði þegar hún sú Jóa og Jónu bíða eftir okkur. Það var skýtin tilfinning að fara með Auði Eddu burtu úr borginni sinni a.m.k tímabundið. Ferðalagið tókst vel það var smá seinkun hjá okkur en flugið sjálft gott, systurnar stóðu sig vel og Auður Edda var eins og hetja í sínu fyrsta flugi, það er eins og börn átti sig á því að við sumar aðstæður þá er ekki ráðrúm til þess að ganga mikið um og sprella eins og venjulega. Hún borðaði vel, nema hvað, og sofnaði síðan og svaf meiri hluta flugsins og sama má segja um Siggu Báru en eins og margir vita þá virðist hún eiga voðalega auðvelt að sofna einkum í farartækjum og nægir yfirleitt að ræsa bílvél til að augnlok hennar þyngist verulega og ekki verði aftur snúið. Við skelltum þeim systrum í sturtu og núna er kósy tími eins og Sigga kallar það og litli unginn virðist sáttur við það. Við erum að skoða hvað við gerum á morgun og stefnt er að því að leyfa Siggu að fara í tivoli og sjá gosbrunna sem má hoppa út í og vonandi verður hitinn viðráðanlegur fyrir okkur eldri. Þvílík forréttindi að fá að gista hjá Jóa og Jónu okkur líður strax eins og við séum komin heim svo ólíkt því að vera á hóteli þótt ekki hafi verið hægt að kvarta undan aðbúnaði þar þá er það bara svolítið annað. Þau hjónin sóttu okkur á flugvöllin og þegar við komum heim beið eftir dömunum demantar Kína eða Jade hálsmen fyrir þær báðar. Þetta eru fegurstu hálsmen sem eiga að boða þeim gæfu og hafa þau hjón núna gefið systrunum minningu frá Kína sem mun vernda þær um aldur og ævi.
Við tókum reyndar eftir því í vikunni að við sáum kunnuglega undirskift á fallegu verki í anddyri hótelsins og reyndist það vera undirritun frá Vigdísi forseta en hún hefur gist á þessum hóteli þegar hún fór til Kína og þarna virðist Davíð og frú hafa gist líka.
Jæja núna er er klukkan orðin rúmlega 22 og dömurnar sofnaðar. Jói, Jóna, Brói og Edda eru úti en hér heima sofa dýrmætu dömurnar okkar værum svefni. Á morgun fáum við vonandi að hitta Ingvar,Guðmund og foreldra – mikill spenningur að fá að hitta þau öll fjögur.
Bless í bú
laugardagur, júlí 24, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
16 ummæli:
ohhh...gott að vita af ykkur í Peking...nánast bara hálfnuð heim :-)
Njótið nú síðustu daganna í landinu fallega sem hefur gefið okkur svo mikið.
knús
Kristín og kó
p.s. flott barnabókabúð í Peking ef ykkur vantar eitthvað að gera:
http://www.poplar.com.cn/?lg=en
Gott að heyra.
Njótið síðustu daganna í Kína og góða nótt :)
Mikið eru þið heppin að eiga svona góða vini, Jóa og frú.
Okkar bestu kveðjur,
Bína og co
ps. flottar hláturmyndirnar af ykkur fjölskyldunni....
Dásamlegt hvað allt gengur vel ;)
Gerður
Vááá rosalega eruð þið rík!!! :-)
Myndirnar eru alveg æðislegar, ótrúlegt en magnað hvað gengur vel með yngri prinsessuna! :-)
Góð tilfinning að vera komin til Peking, styttra heim! :)
Kær kveðja
Sigga og familí
Æðislegar fjölskyldu og feðgina myndir!
Hlakka til að sjá ykkur****
Svakalega fínar og skemmtilegar myndir. Auður Edda hlær og skríkir með stóru systur sinni, mömmu og pabba, eins og hún hafi alltaf tilheyrt þessari fjölskyldu. Frábært alveg hreint og mikil tilhlökkun að fá ykkur heim.
Bestu kveðjur, palli.
Yndislega fjölskylda! Mikið var gott að koma heim úr Íslandshringferðinni og sjá allar þessar fallegu myndir af þessari fallegu fjölskyldu. Gott að vita að heimferðin langa sé hafin því ég hlakka svo til að fá ykkur heim. Knús og kossar frá mér.
Þóra
Dásamlegar myndir dagsins :) Segja allt sem segja þarf !!!
knús og kossar
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Æðislegar myndir, við sitjum bara og brosum hringinn:) kv Íris og Einar
Elsku vinir. Stórkostlegt að sjá myndirnar af ykkur.
Svona getur tilveran verið dásamleg. Allt í haginn!
Styrmir og Dóra
Yndislegt að fylgjast með ykkur, kíkja á pistlana og dást að fallegu dætrum ykkar. Frábært að sjá hvað sú stutta er borubrött og dugleg og auðvitað stendur Sigga sig eins og hetja.
Njótið þess að drekka Kína í ykkur dagana sem eftir eru. Hlökkum svo mikið til að fylgjast með ykkur heima ;o)
Sólarkveðjur frá Austurríki, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára.
Vorum að koma úr þvælingi um landið og mikið er búið að vera yndislegt að lesa ferðasöguna ykkar að sækja litla gullið ykkar. Gaman væri að fá að sjá myndirnar líka :-) Hjartanlega til hamingju með að vera sameinuð öll fjögur, bara yndislegt og lítið meira hægt að segja um það. Gangi ykkur voðalega vel síðustu dagana.
Bestu kveðjur,
Elín og fjölskylda
elinh14@gmail.com
Mikið er gaman að heyra frá ykkur hvað allt gengur vel. Við komum frá Siglufirði í gærkvöldi og fórum beint inn á tölvuna til að sjá myndirnar með eigin augum, en Erna Hrund hefur lesið textana fyrir okkur, svo við gátum fylgst með.
Þið eruð alveg sérstaklega heppin og Auður Edda virðist falla vel inn a´fjölskylduna
Við erum full tilhlökkunar að hitta ykkur á miðvikudaginn.
Bestu kveðjur frá öllum hérna
Afi. Amma og Siggi Valur
.
Skrifa ummæli