þriðjudagur, júlí 20, 2010

Fyrstu orðin á íslensku komin og það var KEX.

Það tók ekki langan tíma að kenna henni Auði Eddu fyrstu orðin sín á íslensku. Hún er mikill matáhugamaður og því kemur það okkur ekki á óvart að það varð Kex sem hún nefndi fyrst og síðan endurtók í sífellu þegar henni var gefið uppáhaldskexið sitt. En þegar leið á daginn þá fylgdu fleiri orð á eftir, þar á meðal Sigga Báa og Auður Edda og svo er hún farin að herma eftir á fullu og þá einkum því sem stóra systir gerir. Hún er rosalega dugleg og heldur endalaust áfram og passar vel upp á sitt.Fyrsta baðið var frekar stutt því var ekki vel tekið og var því frekar styttra en tilefni stóð til. Annars var það þannig að dagurinn í dag fór í ýmsa vinnu sem tengist frágangi á ættleiðingunni við héldum áfram að undirrita hina ýmsu pappíra í tugum eintaka og síðan fengum við vegabréfið hennar og slatta af myndum til að nota þegar kemur að því að fá áritun fyrir hana heim. Smá mistök urðu í frágangi á endanlega pappírnum um ættleiðinguna þar sem smá stafsetningarvilla hafði lætt sér inn í kerfið svo við fáum það gagn ekki fyrr en síðar í vikunni.Samt er formlega búið að óska okkur til hamingju með allt. Sigríður Bára stendur sig sem hetja og fékk að taka Bróa og Pabba í sund og nutum við þess að synda og þræða hina ymsu potta og gufur sem eru á svæðinu. Síðan var farið út að borða sem fyrr og eins og alltaf þá urðum við ekki fyrir vonbrigðum þar, það er frábær matur hérna er menn á annað borð eru hrifnir af asíumat. Þessi borg er svo hreinleg og þrifaleg og ekki síður en í Peking þá liður manni vel og öryggistilfinningin er bara jafnvel meiri en í Teigunum. Morgundagurinn verður rólegur, reynum að sofa út ef það tekst, það var frekar stuttur svefn í gær, sú stutta vaknaði nokkuð oft og hafði skilað kröftulega frá þér góðum málsverði þannig að ráðast varð i smá aðgerðir af þeim sökum, það hefur síðan heldur lagast þegar leið á daginn. Eftir kvöldverðin gengum við heim á leið og Sigga Bára spurði um það hvort við værum ekki að koma í kalda húsið. En þar er vísað til þess að loftkælingin á hótelinu er með þeim kröftugri. Auður Edda og Sigga Bára liggja núna báðar sofandi í rúminu hlið við hlið og mikið er það falleg sjón. Þessar dömur eru fjársjóðurinn okkar.


Bless í bú

27 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er allt alveg ótrúlegt ævintýri - yndislegt að heyra að allt gengur svona vonum framar - bros, hlátur, kossar, orð á íslensku - algjört kraftaverk þessi litla stúlka ykkar.
Og efast ekki um að þáttur Siggu Bára er stór í þessu öllu saman, þú ert duglegust Sigga Bára.
Hlakka óendanlega til að fá að hitta þær sæstu systur, get rétt ímyndað mér að foreldrahjörtun séu að springa úr gleði við að horfa á þær svona hlið við hlið sofnandi.
Hafið það sem allra best og gangi ykkur sem allra best áfram
knús úr Hafnarfirðinum
Día, Hörður og Guðrún Edda

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir, innilega til hamingju með prinsessuna. Það er dýrðlegt að fá að taka þátt í lífi ykkar þessa dagana og fylgjast með þessari fallegu fæðingu. Guð geymi ykkur.
Sigtryggur Helgason

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda. Myndirnar segja allt sem segja þarf. Ást, kærleikur, umhyggja. Mikið óskaplega eru Sigga Bára og Auður Edda í góðu jafnvægi. Þær eru æðislegar, eins klæddar! Flott græna spennan Gyða :)
Luve you all, KHS

Stefanía sagði...

Til hamingju með hana Auði Eddu! þær systur eru alveg yndislegar :)
Ég hlakka mikið til að fá þessu sætu nágranna aftur á Hofteiginn
hafið það sem allra best í Kína
-Stefanía :)

Nafnlaus sagði...

Mikið er þetta yndislegur lestur!
Innilega til hamingju með ykkur öll. Hjartans kveðjur til ykkar allra

kv.
Sigurlaug

Valentína sagði...

Elsku vinir enn og aftur yndislegt að fá að fylgjast með ykkur,og sjá allar þessar skemmtilegu myndir af sætustu systrunum. Mikið eru þær fínar saman !!
Takk takk takk þetta er svo skemmtilegt.
Hafið það sem allrabest gangi ykkur vel.
Luv
Valentína

Nafnlaus sagði...

Hæ, hæ. Flottar myndir eftir daginn og það er gott að lesa hvað allt gengur vel.
Frábært hvað Auður Edda tekur vel við sér - farin að segja íslensk orð og allt - Sigga Bára á eftir að kenna henni margt, það er víst.

Við erum aftur á leið út úr bænum - ætlum á Laugarvatn og koma aftur á föstudag svo þá verður nóg af myndum til að skoða og hlökkum til að lesa um hvernig gengur og hvað þið eruð að bralla.
Kossar og knús til ykkar allra!
Olga og famelía.

Nafnlaus sagði...

Æði..búin að bíða í allan dag eftir nýrri færslu:) gott að vita að allt gangi vel. Kveðja Íris Huld og co

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda
Hér er setið með bros á vör og lesnar flottar færslur og skoðaðar dásamlegar myndir :)
Dömurnar ykkar eru yndislegar og yndislegt að sjá þær saman og ykkur öll.
knús og kossar
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ tek undir með Sigtryggi að þetta er falleg fæðing að fylgjast með. Ég naglinn verð meir/meyr (veit ekki stafsetninguna betur en þetta kennarinn) Myndirnar af ykkur æðislegar og þetta eru bara gullmolar sem þið eigið ......ekki hægt að segja mikið meira en dásemd eins og Landlystarættin segir það segir allt:))) Góða nótt til ykkar allra í Kína knús og kossar og ekki gleyma Bróa og Eddu með kveðju frá okkur í Holtinu græna sólríka ........kv. Þórhildur

Nafnlaus sagði...

Yndislegt að sjá og lesa hvað allt gengur vel. Mikið er hún glaðlynd stúlka hún Auður Edda. Hún er nánast alltaf hlæjandi á myndunum. Hún stendur undir nafninu Gull - algjör gullmoli. Við erum búin að vera í yndislegu veðri hér á Siglufirði. Ég og tengdamamma erum farnar að banka upp á hjá prjónakonum hér á Sigló. Mættum á elliheimilið í dag! Valur sagði að Siggi mætti ekki fara inn því það væri ekki víst að hann kæmist út aftur :-)Við Hemmi förum til Egilsstaða á morgun þannig að þið fáið kveðju næst þaðan.
Knús frá okkur öllum
Þóra

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú meiri dýrðin og meira að segja kallar eins og ég verða meyrir, enda löngum verið fint fölende. Systurnar báðar ljóma og samstaðan og félagsandinn skín í gegn af myndunum.
En hvenær komið þið aftur heim?

Bestu kveðjur, palli.

Ósk Reynalds sagði...

Frábært að sjá hvað gengur vel, Auður Edda í miklu jafnvægi og þær systur báðar því eflaust reynir þetta meira á þær en við höldum??
Bíð spennt á hverjum morgni að skoða nýjustu færslur. Þið eruð öll frábær og mikið eru þessar stúlkur heppnar að fá ykkur sem foreldra. kv. Ósk

Nafnlaus sagði...

Gyða mynd no 63 er geðveik af ykkur :)) .............sé að ég hangi of mikið í tölvunni en gleymdi að segja hæ frá Gunnu minni líka .......þá er það komið í bili heheheh Kv. Þórhildur

Nafnlaus sagði...

Yndislegar myndir!Yndislegar systur! Við Halla Elísabet sitjum hér með bros á vör og Halla rak fljótt augun í að Auður Edda er með bleyju eins og hún ;)
Halla saknar Siggu Báru mikið og við hlökkum til að kynnast Auði og lita með henni.

kossar&knús

Álfrún, Viktor og Halla

Nafnlaus sagði...

Held bara að hún Sigga Bára sé með flottari stórusystrum sem ég hef séð og hef ég nú séð þær margar
knús Arndís

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ Sigga Bára vinkona mín

Hún Auður Edda er rosalega sæt og þið eigið ótrúlega flott náttföt.
Finnst þér ekki gaman í Kína? Ég hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim og leika og púkast, kannski getur þú gist aftur :-)

þín vinkona
Matthildur

Nafnlaus sagði...

myndirnar eru æðislegar- varð smá klökk :) get ekki beðið eftir að sjá ykkur öll og smellið rembingskossum á litlu sætu frænkur mínar Min og Jin ;*

Kveðja Gunna frænka

Nafnlaus sagði...

Halló Auður Edda

Ég heiti Karólína og ég er frá Kína alveg eins og þú. Vilt þú vera vinkona mín? Ég vona það. Mér finnst nefnilega voðalega gaman að leika og brasa...og mér finnst alveg rosalega gott að borða eins og þér ;-)

Hlakka rosalega til að hitta þig þegar þú kemur heim til Íslands og leika!

Þín vinkona
Karólína

Nafnlaus sagði...

Elsku þið öll! Mikið erum við glöð yfir hvað það gangi vel. Telma vill helst sitja við tölvuna og skoða myndir og ímynda sér hversu góð frænka hún verður : ) Okkur hlakkar mikið til að hitta ykkur.
Bína og co

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með Auði Eddu. Flottar myndir og gaman að lesa um ferðalagið. Mikið ævintýri greinilega. Gangi ykkur vel.
Bestu kveðjur úr blíðviðrinu á Brautarholti.
Tobbi og Emilía.

Nafnlaus sagði...

Þær eru yndislegar systurnar! Og mikið er Auður Edda dugleg! Farin að segja íslensk orð! Og svo kát og glöð! Eins og þið öll! Ég bara ræð mér ekki! -og er alveg á innsoginu af kæti!
Góða skemmtun gott fólk og gangi ykkur vel,
Ágústa

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með yndislegu litlu hnátuna ykkar! Hún er alveg frábær og gleðin og hamingjan skín úr andlitum allra. Svona getur lífið verið dásamlegt! Sigga Bára stendur sig greinilega eins og hetja.

Hugsum til ykkar og njótum þess að lesa ferðasöguna og skoða myndirnar, þvílíkt ævintýri:-)

Hafið það sem allra best áfram.

Kærar kveðjur og extra knús til Eddu og Guðmundar.

Ásdís og Siggi

Nafnlaus sagði...

Frábært að sjá hvað þetta gengur vel hjá ykkur. Auður Edda er yndislega sæt og mér finnst skína af henni að hún er alveg frábær karakter og mikill dugnaðarforkur. Yndislegt að sjá systurnar saman. Þið eruð að standa ykkur alveg glimrandi vel í þessu öllu saman. Húrra, húrra, húrraaaa : )
Heidi

Nafnlaus sagði...

Elsku hjartans fjölskylda, innilegar hamingjuóskir!!! Guð hvað hún er dásamleg! Og dugleg! Og brosið...! Jahérna. Ég á ekki orð. Hér renna bara tárin ótt og títt. Það er yndislegt að fá að fylgjast með ykkur og sjá hamingjuna sem skín alla leið frá Kína.

Megi gæfan leiða ykkur kæra fallega fjölskylda.

Hlýjar kveðjur,
Ingibjörg, Jónas og Kría.

Nafnlaus sagði...

Þetta er algört kraftaverk !! Auður Edda átti svo sannarlega að fá ykkur sem fjölskyldu. Það er eins og þið hafið alltaf verið saman. Yndislegt að sjá hamingjuna sem skín af ykkur öllum. Maður getur ekki annað en tárast. Svo er hún svo heppin að eiga duglegu Siggu Báru sem stórusystur. Hún stendur sig eins og hetja. Þær eru bara sætastar !! Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með og hafið það sem best áfram. Knús til ykkar allra. Rósa, Pétur og Atli Steinn

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

Þið eruð öll falleg! Inní og utaná.
Blessi ykkur,
Dóra.