sunnudagur, júlí 25, 2010

Gosbrunnar og gleði

Það er farið að styttast í brottför og töskurnar bíða hálfopnar og næstum hálftómar, trúir þessu einhver ? En grínlaust þá höfum við ekki nennt að taka upp úr töskunum eftir komuna frá Shanghæ enda finnst okkur svo stutt í næstu brottför. Í dag var dagurinn tekinn snemma og við fórum alveg svakalega skemmtilega verslunarmiðstöð þar sem búið er að útbúa gosbrunnasvæði sem krakkar elska.Eitthvað sem svo sannarlega væri gaman að sjá heima á Íslandi. Hrund og Skarpi voru með okkur og það voru fagnaðarfundir þegar Sigga Bára og Guðmundur Góði þeirra hittust aftur.Þau fóru beint að leika sér og voru á fullu í dag í vatninu og það var ekki þurr þráður á þeim eftir daginn. Ingvar nýji fjölskyldumeðlimur þeirra hjóna var frumsýndur og fegurðin er þvílík að ekki eru til orð til að lýsa. Auður Edda var fyrst smá stessuð yfir vatnssullinu en eftir smá stund var hún farin að hlæja og tók næstum bakföll af hlátri. Myndirnar segja vonandi sýna sögu. Þarna hittum við eitthvað af Íslendingum meðal annars sendiherrann hana Kristínu sem var glöð og kát sem fyrr en við erum boðin í veislu til hennar á morgun. Síðan fórum Brói og Kalli með dömunrnar í hús meðan hinar konurnar fóru að kanna með verslunarframboðið. Auður lék við hvurn sinn fingur áfram og glöddu okkur gömlu mennina ótrúlega mikið. Hún fór amk 300 ferðir milli okkar herbergis og stofunar með dótið sitt fram og til baka og var að dunda sér endalaust, hún er alveg yndisleg þessi stúlka það er svo gaman af henni og það er svo gaman að sjá púkaglottið sem kemur fram hjá henni þegar verið er að banna henni og setja henni mörk. Hún má þó eiga það að hún virðir þegar henni er bannað. Kvöldið fór síðan í að sjá alveg hreint út sagt frábæra fjölleikasýningu sem er ólýsanlegt upplifa. Þvílíkt listafólk sem þarna er á ferðinni alveg hreint út sagt frábær skemmtun og Sigga Bára og Guðmundur Góði nutu þess í botn. Mamman og Auður Edda áttu notalega stund saman á meðan.


Bless í bú

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku þið öll.
Gaman að sjá. Held samt að allir verið fegnir að koma heim, a.m.k stóri bróðir : ) Hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku.
Bína og co

Sigrún og Sara Xiao sagði...

Frábært að sjá hvað allt gengur vel og systurnar glaðar:)
Góða ferð heim kæru vinir,
Kær kveðja, S&S

Nafnlaus sagði...

Guð hvað það hefur verið gaman hjá krökkunum í gosbrunninum, gleði og fjör skín frá þeim í gegnum myndirnar. Með hverjum degi styttist í heimkomuna, það verður svo gaman að fá ykkur heim. Bráðum fær Auður Edda að sjá nýja landið sitt! Knús og kossar frá mér.
Þóra

Nafnlaus sagði...

Myndirnar eru æði. Allir biðja að heilsa. Amma Ása, afi Örn, Íris, Einar og Bjarni og Hafrún:)

Nafnlaus sagði...

Myndirnar í dag og í gær unaður og æði af ykkur öllum :) allir svo happy enda ekki annað hægt :))

kv frá holtinu 81

Nafnlaus sagði...

Gyða...hálftómar töskur !! Eins gott að þú hafir 2 daga í viðbót til að redda því ;-)

Yndislegar gosbrunnamyndirnar, þær systur eru náttúrulega bara æði !!

knús og sakn....á eftir að eiga mjög erfitt með mig að naga ekki þröskuldinn hjá ykkur eftir að heim er komið...hehe...en ég kann nú að hemja mig :-)

Kristín og kó

Nafnlaus sagði...

kvitterí kvitt eftir að hafa skoðað frábærar myndir af fögrum og glöðum systrum. Gaman að sjá hvað allt gengur vel og foreldrarnir geisla af hamingju.
Gangi ykkur vel þessa síðustu daga og mikið verður gott að fá ykkur heim.
knús
Día og co

Nafnlaus sagði...

Elsku! æðislegar myndir:) systurnar skemmtu sér greinilega vel í gosbrunninum, styttist sífellt í heimkomuna hlökkum mikið til að sjá ykkur***

erna hrund, aðalsteinn og mía:D

Fanney og fjsk. sagði...

Kæru vinir. Við höfum svo sannarlega notið þess að fylgjast með ferðinni ykkar. Frábærar myndir og frásögn. Óskum ykkur góðrar ferðar heim og við hlökkum til að hitta ykkur.
Bestu kveðjur,
Fanney, Hafsteinn og fjsk.

elinhenriks sagði...

Kæra fjölskylda.
Guð hvað myndirnar eru allar yndislegar og litla daman dásamleg og auðvitað Sigga Bára líka. Þið eruð heppin öll fjögur, það er pottþétt. Vona að ykkur gangi vel á síðustu metrunum og mikið verður svo gaman að hitta ykkur saman við tækifæri.

Knús til ykkar allra,
Elín

Nafnlaus sagði...

Ohhh frábærar gleði-gosbrunnamyndir! :)
Endalaust hægt að skoða og lesa, dásamlegt! :)

B.Kv
Sigga og familían

Nafnlaus sagði...

Bara aðeins að líta við og dást og dást og dást ...
Knúsur og kveðjur - Sigurbjörg og feðginin

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

Þið eruð öll svo flott, fjölskyldan. Það sést sannarlega vel á myndunum að þið hafið eignast annan skínandi gullmola. Auður Edda er greinilega bráð skemmtilegur húmoristi! Við hlökkum mjög mikið til að hitta hana og ykkur öll saman.

Bless, takk og góða ferð heim,
Dóra, Styrmir, Sunna og Högna Sólveig