Jæja þá er dagur að kveldi kominn og við loksins komin í hús eftir langa útiveru. Frábær dagur í alla staði hjá okkur við tókum daginn í Forboðnu borgina sem er auðvitað margra daga verk í raun en a.m.k vorum við að sjá miklu meira en við gerðum síðast þegar við vorum hérna. Jóna fór á kostum og sagði okkur skemmtilegar sögur og annað sem tilheyrði. Smá byrjunarerfiðleikar voru samt því leigubílinn fór með okkur að aðal útgangi forboðnu borgarinnar en ekki inngangi og þar á milli er ca 30 mín akstur sem þýddi að ferðin tafðist sem því nam. Þetta er hreint út sagt mögnuð upplifun að ganga þarna um en ennþá er innan við helmingur svæðisins sem er aðgengilegt almenningi. Eina sem hægt er segja er að þvílík gæfa að Maó og félagar höfðu styrk til að horfa á þetta svæði sem þess virði aðhalda því en ekki fylgja sterkri kröfu um að jafna það það við jörðu eins og talað var um að yrði að gera. Eftir ferðina um borgina þá tók við skoðunarferð um torgið himneska sem er ótruleg upplifun alltaf. Þar sem gömlu borgarhliðin kallast á við forboðnu borgina. Mikil öryggisgæsla er á svæðinu og meira áberandi núna en þegar við vorum hérna síðast og þarf að fara í gegnumlýsingu með farangur áður en farið er inn á torgið sjálft. Gengin upp að öxlum fórum við á hotelið hjá Skarpa og Hrund þangað sem Jói sótti okkur.
Síðan var okkur boðið í léttan málsverð hjá sendiherra og utanríkisráðherra ásamt starfsmönnum sendiráðsins sem var ótrúlega skemmtiegt, við sátum úti á verönd og áttum skemmtilegt spjall. Dagurinn á morgunn var lagður upp og núna látum við myndirnar tala sínu máli. Myndir á leiðinni.
Bless í bú
þriðjudagur, júlí 13, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
15 ummæli:
frábærar myndir .........sum af mínum kommentum birtast ekki svo sorry ef mörg koma á síðuna allt í einu.......ég geislinn þórdís og gunna segjum hæhæ og góða nótt til ykkar .xxxxxxxxx
Mikið eru þetta fallegar myndir sérstaklega af henni Siggu Báru. Þetta hlýtur að vera stórkostleg upplifun hjá ykkur. Gaman að fá að upplifa þetta með ykkur á þessu bloggi. Knús frá Þóru
Velkomin til Kína, gleymdi aðeins að kíkja í nokkra daga, úff alveg ferlegt!
Gaman að lesa pistlana og rifja upp í leiðinni!! :)
Gangi ykkur sem allra best!!
Kær kveðja
Sigga og fjölsk.
Mikið er gaman að vita af ykkur alla leið austur í Beijing. Við fylgjumst spennt með ferðasögunni miklu.
Pálína, Jökull og stelpurnar
Vá hvað þið eruð dugleg að skrifa og setja inn myndir :) Frábært að fá að skoða allar þessar myndir og fylgjast með þessu skemmtilega ferðalagi.
Greinilegt að þið eruð að njóta ykkar í botn og það er alveg frábært :)
Hver dagur færir ykkur nær elskulegu Auði Eddu og við hlökkum mikið til að fylgjast með stóra deginum ykkar.
knús og kossar yfir höf og yfir lönd
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Yndislegt að skoða myndirnar af ykkur og fá að upplifa þetta með ykkur. Sigga Bára er algjört sjarmatröll eins og sannri prinsessu sæmir.
gangi ykkur áfram sem best
knús Día og co
Hæ hæ
Langar mjög mikið að fá að skoða myndirnar ykkar þannig að ef þið eruð til í að deila þeim með mér þá er emailið mitt jana@kambur.is :)
Annars held ég áfram að fylgjast hér með og kíki á hverjum degi;)
Bestu kveðjur
Jana mamma Katrínar Rutar frá Kólumbíu
Svo gaman ad fylgjast med ferdinni ykkar og skoda myndirnar. Sigga Bára virdist skemmta sér vel.
KV. Sigrun i Sverige
Magnað að fá að fylgjast með ykkur.
Kveðjur frá okkur Jónu Hrönn
Bjarni
Sæl verið þið.
Frábært að lesa ferðasöguna ykkar, yndislegir daga. Og verða enn yndislegri...
Langar mikið til að skoða myndirnar ykkar, netfangið er thordisi@simnet.is ef þið viljið veita okkur aðgang:-)
Hafið það sem best.
Kær kveðja, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.
HÆ hó
Er þvílíkt með ykkur í anda að upplifa þessi stórkostlegheit !! Frábærara myndirnar og Sigga Bára þvílíkt fín með spöngina sína !!
5 dagar....bara aðeins að láta ykkur vita af því ;-)
knús og kossar
Kristín og kó
Sæl og blessuð. Mikið er gaman að fylgjast með ferðalaginu ykkar og það rifjast svo sannarlega upp góðar minningar frá ferðinni okkar fyrir 5 árum.
Kveðjur, Fanney, Hafsteinn og co.
E.s. Bið að heilsa Skarphéðni, var að vinna með honum á Mogganum.
Halló elsku Sigga Bára besta vinkona
Hvernig gengur úti í Kína, er gaman? Er góður matur úti í Kína, borðar þú með prjónum?
Ég er núna á hestanámskeiði og það er rosalega gaman. Hesturinn minn heitir Gikkur. Svo förum við í útilegu eftir 2 daga og þá á ég eftir sakna þín.
Knús og kossar
kveðja
Matthildur
Friðrik Daði bað um fá að skoða myndir af litlu stelpunni hans Kalla vinar síns.....hún er fín og flott og hann vill fá meiri myndir af henni !!! hann mun þó bíða þolinmóður eins og við hin og enda margt um að vera á næstu dögum.
Hann er mikið að spá í að Sigga Bára sé með úti, enda oft að spyrja hvenær hann megi fara til Indlands að ná í systkini (hann spurði reyndar hvort að þið væruð búin að "panta" Auði Eddu, það var nú reynt að útskýra það eins og hægt var að það væri nú ekki hægt að "panta" börn :) )
knús og kossar til ykkar allra, höldum áfram að njóta þess að fylgjast með og skoða Kína á hnetti
Stína og Friðrik Daði Deb
Frábært að sjá myndir af Kína - maður er komin í huganum ;)
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með !
Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára
Skrifa ummæli