Fórum í frábæra kvöldgöngu í gærkvöldi eftir að hafa fengið okkur heldur fábreyttan kvöldverð en forðinn var ennþá til staðar eftir hádegisverðin góða.Við gengum út í ennþá einn garðinn sem heitir Taipingqiao Park og er í um 30 mín göngu frá hótelinu en þá er gengið í gengum flott verslunarhverfi og við fengum okkur einn hressandi og svalandi Starbucks kaffidrykk. Sú stutta var í svonefndum sixpack poka sem situr framan á magavöðvum og þar leið dömunni vel þótt nokkuð hafi verið grátíð í upphafi þar sem hún hafði ætlað sér að hvíla framan á mútter. Hún lék á alls oddi og söng fyrir okkur kínversk lög sem er hrikalega fallegt að heyra og vonandi tekst okkur að viðhalda því hjá henni. Þessi garður sem er dæmigerður fyrir fjölmarga sambærilega eru fullur af fólki á kvöldin sem sitja við tjarnir og ræða málin, karlar gjarnan háværari (ólíkt með löndunum) og spila en konurnar eru öllu nettari í sínu spjalli.Þarna eru börn að leik þótt áliðið sé en í raun er það skynsamlegt því tæplega er hægt vera úti yfir miðjan daginn. Ólýsanlegt var síðan þegar við byrjuðum að heyra fjölbreyttan söng yfir tjörnina sem við sátum við og þegar við lukum göngutúrnum komumst við að því að þar sat einn eldri maður á vélhjólastól með þvílíkan karokee útbúnað að veitingastaðir væru stoltir af. Hópur hafði safnast saman hjá kallinum og tóku lagið þannig sannast að það er ekki bara fyrrverandi forseti þeirra Kínverja sem elskar að syngja fyrir fólk heldur eru það fleiri landsmenn sem það elska svo sannarlega. Hitinn var æðislegur í kvöld ábyggilega rétt um 25 stig eða svo, sem er mikill munur miðað við rétt um 40 stig að degi til. Síðan var gengið heim og þá þarf að passa sig í umferðinni því gangandi vegfarendur eru ekki réttháir hérna. Þó er umferðinni hérna í Shanghæ nokkuð betri en í Peking þar sem hún er nú eiginlega hrikaleg það verður bara að viðurkennast.
Við tókum daginn snemma eftir að systurnar höfðu báðar vaknað með bros á vör. Við fengum okkur göngutúr út í nærliggjandi garð í þeim tilgangi að geta fylgst með morgunleikfimi. Líklega vorum við aðeins of sein á ferðinni því það voru ekki margir í slíkum æfingum að þessu sinni, kannski náum við að upplifa það í Peking um helgina. Við vorum síðan sótt af Línu leiðsögumanni og við fórum til að skoða Buddha hof sem var alveg frábært að upplifa, þvílík fegurð ró og friður, eiginlega alveg magnað hvað fylgir mikil innri ró. Það voru margir innfæddir við trúariðkun og virtust ekki kippa sér mikið upp við fjölda ferðamanna sem fór um með leiftrandi myndavélaglampa í sífellu. Munir þeirra eru virkilega fallegir og allt útskorið og síðan miklar gillingar á öllu. Eftir góða stund létum við listamann á svæðinu skrifa upp nafnið á Auði Eddu á kínversku þeas kínverska nafnið hennar og fallegan boðskap til hennar frá okkur. Smá af minjagripum voru keyptir en leiðin lá síðan að silkiverksmiðju sem er ríkisrekin og þar fengum við sögu þess hvernig silki er unnið úr silkiormum eða púpunni þeirra öllu heldur. Virkilega fræðandi og skemmtilegt að fá að sjá. Eitthvað smotterí datt í innkaupakörfur okkar og sama var á næsta stoppustöð sem var Ríkisrekna perluverksmiðjan þar sem við keyptum sambærilega hluti fyrir Auði Eddu og við höfðum keypt á sínum tíma fyrir Siggu Báru. Á leiðinni hótelið var stutt stopp hjá sýslumanni þar sem við fengum afhent síðustu eintökin af pappírum frá Kína vegna ættleiðingarinnar og núna er því Auður Edda Jin formlega orðin hluti af okkar fjölskyldu og sómir sér vel. Húrra. Hún hefur verið alvega frábær í dag, var í burðarpokanum hjá Pabba sínum og kvartaði ekki neitt heldur hló og skríkti og naut lífsins meðan sérstaklega þegar sá gamli læddi að henni einum og einum kexbita. Núna er að líða síðasti dagurinn og við erum farin að huga að því að pakka saman okkar hlutum, við kvöddum leiðsögumanninn en einhver annar mun fylgja okkur út á völl á morgun. Ekki er víst að neitt komi frá okkur á morgun því það er ferðadagurinn mikli og fróðlegt verður að vita hvernig sú stutta tekur fluginu. Við erum ekki alveg að sjá þess feimnu stúlku sem talað er um í pappírunum heldur er hún fjörug og stríðin hverjum sem það líkist nú. Að lokum til hamingju með afmælið Olgeir Þór hlökkum til að hitta þig í næstu viku!!
Bless í bú
fimmtudagur, júlí 22, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
17 ummæli:
Æðislegar myndir.. vá hvað maður bíður spenntur hérna heima eftir ykkur!! Farið nú að drífa ykkur heim:D Knús Íris og co
jæja ég náði þessu áður en ég er norður í dag:)) æði æði æði gangi ykkur öllum hrikalega vel þetta er bjútífúl við hlökkum til að fá liðið til baka heim:))))) þá er að smella sér í Laugar og kveðja bæbæbææbæb
kv. Þórhildur
Fráærar myndir, maður fann friðinn í gegnum myndirnar! :)
Ósköp var nú sætt og notalegt að sjá Auði Eddu svona sæla í poka hjá pabba sínum!! :-)
Góða ferð til Peking, gangi ykkur sem best! :)
kv.
Sigga og tríóið
Kæru Gyða og Karl!
Frábært að lesa ferðalýsingu ykkar. Ég var að lesa 19. júní. Það var magnað. Auður Edda er yndisleg á myndunum og fellur eins og sjálfkrafa inn í fjölskyldumyndina. Við Jóna Hrönn gleðjumst hjartanlega með ykkur, óskum ykkur góðrar heimkomu og hlökkum til að sjá ykkur í Ágúst. Við erum að leggja í hann norður í land og verðum utan þjónustusvæðis næstu þrjár vikur svo að framhald sögunnar fær maður síðar. Við biðjum góðan Guð að vernda ykkur og blessa á ferðalaginu.
Bjarni og Jóna Hrönn
Elsku vinir það er búið að vera frábært að fá að fylgjast með ferðalaginu mikla. Þið segið svo skemmtilega frá staðháttum og mannlífi,og allar þessar fínu myndir að einhvernveginn verður þetta allt svo ljóslifandi fyrir manni.
Allt er þetta umvafið ást og hamingju sem geislar af ykkur yndislega fjölskylda.
Góða ferð heim elskurnar, hlökkum til að hitta ykkur þegar að því kemur.
Ástarkveðja frá okkur
Valentína , Kalli og Stína.
Yndislegar myndir. Til hamingju með allt.
Pálína, Jökull og co
Æðislegt! Skemmtilegar myndirnar eins og venjulega gaman að sjá Auði Eddu danglast með flotta tuskudýrið frá ömmu sinni:D og að sjálfsögðu er ekki langt í stríðnina hjá henni, efast ekki um að hún hafi smitast um leið og hún hitti pabba sinn!
Amma hringir í mig núna á hverjum degi og ég les fyrir hana ævintýri ykkar í Kína:)
Hlökkum til að sjá ykkur***
knús yfir hafið:D
erna hrund og co;)
Góða ferð til Peking!
Bína og co
Jæja...nú viljum bara fara að fá ykkur heim !!! Góða ferð í fyrsta áfanganum til Peking.
Auður Edda verður góður félagi í púkafélaginu með stóru stelpunum og Karólínu....maður þarf að fara að passa tannkremstúburnar ;-)
Yndisleg myndin af Auði Eddu hjá pabba sínum :-)
knús í Kínahús
Kristín og kó
Elsku kæru vinir. Mikið óskaplega er þetta allt alveg hreinasta snilld. Það er svo gaman að fylgjast með ykkur og sjá hvað allt gengur vel. Maður heldur bara ekki af sér að tárast svolítið.
Guð blessi ykkur og verið meira en velkomin heim.
Geir Jón og allir hinir á stöðinni
Elsku Gyða, Kalli, Sigga Bára og Auður Edda. Innilega til hamingju með þetta allt :)
Takk kærlega fyrir að fá að vera með ykkur í frásögn og myndum.
Megið þið eiga góða heimferð.
Kveðja Ella Bogga
Kæra fjölskylda.
Erum búin að vera á ferðalagi úti á landi og auðvitað var það okkar fyrsta verk þegar við komum heim að kíkja á frábærar myndir af yndislegum systrum.
Þið eruð svo sannarlega rík.
Gangi ykkur sem allra, allra best.
Kær kveðja frá Hildi Björgu og foreldrum.
Gangi ykkur vel í fyrsta áfanga heim á leið!
Frábærar myndir af ykkur og mannlífinu.
Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára
Kæra fjölskylda
Yndislegt að fá að fylgjast með ykkur og ekki laust við að nokkur tár rynnu niður kinnarnar. Gaman að sjá hvað allt gengur vel og hvað þær systur eru líkar. Óska ykkur góðrar ferðar heim og kyssið Siggu Báru frá mér.
Kv. Sibba á Hofi
p.s. kjallarabúarnir biðja að heilsa
Elsku Gyða og famelía. Erum komin aftur og gaman að lesa um síðustu daga. Enn sem fyrr liggur maður yfir myndunum og spekúlerar og spáir en nú styttist óðum í heimkomuna.
Vona að allt hafi gengið vel á leiðinni yfir til Peking - litla skottan hefur örugglega séð til þess að hafa smá fjör í kringum sig...eða hvað ?)
Frænkukossa til systranna frá mér.
Kveðja, Olga og co.
Elsku Gyða, Kalli og dætur. Mikið rosalega er gaman að fá að fylgjast með ykkur og ég samgleðst ykkur svo innilega hvað þetta gengur allt vel - lygasögu líkast : )
Haldið áfram að skemmta ykkur og njóta lífsins!!
ykkar Heiðrún & the boys
PS: Ég bið kærlega að heilsa Jóa og Gestur biður að heila Hrund (sveitungar)
- og Edda og Brói koma sterk inn þannig að ég bið líka að heilsa þeim ;)
Æðislegar myndir -
æðislegar systur.
Yndislegt að heyra að allt gengur svona vel.
sendi ykkur knús og hlakka til að fá ykkur heim.
kv. Día, Hörður og G.E. sem eru stödd í sumarbústað með allt of hægt net :)
Jórunn og Alfa Malla biðja að heilsa með hamingjuóskum.
Skrifa ummæli