miðvikudagur, júlí 07, 2010

Búið að pakka fyrir systurnar

Núna er búið að pakka niður í töskur fyrir systurnar. Sigga Bára tekur t.d. bara 12 kjóla með sér - er þetta eðlilegt - mamman átti bara einn kjól á hennar aldri!! Í dag fórum við fjölskyldan og fengum afhent vegabréfin sem voru skreytt fögrum áritunum og að sjálfsögðu öll gögn sem við þurfum að hafa meðferðis. Hrund ferðafélagi okkar gaf okkur svo táknmyndir með kínversku heitunum til að auðvelda tjáskiptin við Auði Eddu fyrstu dagana, takk fyrir það. Við erum búin að fá videovélar frá Þórhildi systir og sólargeislanum - takk líka fyrir það!! Og ekki má gleyma þeim 100 sögum og leikritum sem Kristín og Gústi létu Siggu Báru fá - þetta er allt komið í I-podinn - takk fyrir það. Sigurbjörg búin að galdra fram fegursta kúruteppi fyrir Auði Eddu - takk,takk.  ÞÚSUND ÞAKKIR allir sem hafa sýnt okkur hluttekningu, stuðning og þolinmæði. Hér er reynt að dveljast í þakklæti í stað þess að dveljast t.d. í stressi, flughræðslu eða öðru sem án efa verður ástandið á laugardagsmorgunn!!
Jæja G&T komin í heimsókn,
bless í bú

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda,

mikið er þetta allt spennandi. Það er ekki laust við að maður fái smá sting í hjartað við allar þessar frábæru fréttir. Enn og aftur innilega til hamingju með Auði Eddu og Sigga Bára með að vera orðin stóra systir. Það verður gaman að fá að njóta ferðarinnar með ykkur í huganum. Við hugsum til ykkar. Góða ferð:)

Kærar kveðjur,
Reynir, Kristín og Tóta

Kristín Vald sagði...

Hlakka bara til að sjá myndir af prinsessunni sem átti 365 kjóla...en tók bara 12 með sér til Kína ;-)

Nafnlaus sagði...

Gaman gaman, gangi ykkur rosalega vel og það verður sko fylgst vel með hér á síðunni ;)

Góða ferð!
Gerður
p.s. það er sko alveg NAUÐSLYNLEGT að eiga glás af kjólum, á sko eina kjólaprinsessu líka ;)

Nafnlaus sagði...

Endalaus fiðringur!!!!!!!!!:) Hlakka svo til að fylgjast með ykkur!!!:)
Knús og kremjur,
Gígja.

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda.
Þetta verður stórkostlegt. Við verðum með ykkur í huganum og hjartanu allan tímann.
Áfram lífið og kærleikurinn.

Knús og kremja.
Styrmir, Dóra og stelpurnar

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

Hjartans vinir,
mikið óskaplega er gaman að fá að fylgjast með ferðum ykkar! Þið eruð öll svo fín og yndisleg. Sigga Bára, þú ert að eignast litla systur! (ég tárast bara við að skrifa þetta). Við hlökkum öll svo mikið til að hitta ykkur öll saman og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þangað til.

Góða ferð, gæfan fylgi ykkur í hverju spori,
Dóra og stelpurnar

Es. Ég er ennþá að dr**** af löngun til að fara með -- í staðinn ætlar Dalla vinkona að koma í heimsókn og segja mér hvernig er að búa í Sjanghæ. Mikil sárabót að fá að fylgjast með.

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalla og Sigga Bára yfir kjólaprinsessa,
góða ferð og gangi ykkur sem allra best.
hlökkum til að sjá myndir og fá fregnir af ykkar stórkostlega ferðalagi.
knús
Díana, Hörður og Guðrún Edda

Nafnlaus sagði...

12 kjólar er bara gott mál ;o)
Þarf nokkuð að taka fram að það verður gaman að fylgjast með...! :)

Bestu kveðjur
Sigga, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Nafnlaus sagði...

Kveðja frá Helenu og Arndísi við fylgjumst spenntar með júha
Knús til ykkar allra