Ferðalagið gekk ótrúlega vel fyrir sig, flugið þægilegt og einstaklega flott að fara í gegnum Finnland. Við nýttum okkur að vera á lounge sem við erum með aðgangskort að sem kom sér vel, fínn matur og drykkur eins og hver vildi og þar má vera með börn líka. Flugið yfir til Kína er auðvitað ótrúlegt langt og ekki var nú mikið sofið, Sigga náði smá blundi sem betur fer en síðan fann hún fyrir ógleði við lendinguna og skilaði frá sér eithvað af annars góðum mat sem borin hafði verið fram. Við tók síðan ein flottasta flugstöð semvið höfum komið í og gekk þar allt skipulag fyrir sig og við komumst inn til Kina. Farangurinn skilaði sér allur vel nema kerran sem kom ekki og urðum við að leggja fram tilkynningu og fylla út einhverja pappíra og ennþá er kerran amk ekki komin í leitirnar og kínverjarnir telja að hún hafi jafnvel aldrei lagt af stað í ferðalagið með okkur heldur sé í keflavík, við sjáum hana eflaust aldrie aftur. Af þeim sökum þá skelltum við okkur í Friendship búð og keyptum ódýra kerru til að nota meðan við værum hérna. Sigríður varánægð með það og sofnaði sætt og vært og svaf mikið meðan með fengum okkur skemmtilegan göngutúr með Jóa og Jónu,Við fórum í hið svokallaða Hutong hverfi og sátum við vatn og fengum okkur hádegisverð, sterkan og góðan og horfðum á Pekingbúa njóta þess að sigla um á bátum á frekar skítugu vatni og menn voru jafnvel að synda í því sem við erum ekki alveg að ná. Þetta hverfi er byggt upp af fjölda smáhýsa sem eru í mesta lagi tvær hæðir og fullt af smáum götum hér og líf og fjör út um allt. Síðan fengum við okkur hressilega göngu upp í Drum Tower sem er frá 1272 og á rætur til keisaratímans þar sem drumburnar voru notaðar til að gefa borgarbúum tækifæri að vita hvað klukkan sló. Kínverjar notuðu hins vegar vatn til að vita nákvæmlega hvernig tíminn leið sem þeir höfðu byggt kerfi í kringumþað. Brói harkaði af sér og nýtti sér eitt af fjölmörgum almenningssalernum hérna en tæknin þar byggir á þessari fínu holu sem nýtt er til góðra verka. Best er að leyfa honum sjálfumað lýsa bæði aðbúnaði og samneyti við aðra gesti á staðnum, lyktin út ef næg minning fyrir okkur hin.
Að því loknu fórum við og gengum göngugötu sem er verslunargata önnur gömul og síðan ein sem byggð var sérstaklega fyrir Olympiuleikana.Við sjáum ýmilegar breytingar á borginni síðan 2005, búið að byggja mikið og gera ýmsar breytingar. Deginum var siðan lokað með góðum kvöldverði á stað sem Jói og Jóna völdu og buðu okkur með sér á.Frábær matur og góður félagsskapur en við vorum orðin virklega þreytt enda rúmur sólarhringur kominn í vöku. Þetta er ótrulega tilfinning að vera komin aftur hingað og okkur finnst ekki eins og fimm ár séu liðinn nánast upp á dag.Þetta er svo mikið ævintýraland og svo margt sem kallar athygli fyrir augu og eyru. Þetta er bara frábært.Sigga er auðvitað búin að standa sig vel, virkilega skemmtilegur ferðafélagi og ekki er laust við að hún njóti smá athygli hérna.
Síðan vöknuðu kalli og sigga til að horfa aðeins á úrslitaleikinn í fótbolta. Náðum að sjá lokahlutaleiksins og síðan framlengingu og sanngjarnan sigur Spánverja þótt við hefðum haldið með Hollandi því eins og Sigga sagði þar á Katrín Ágústa heima og þá heldur maður með þeim.
Við vitum ekki ennþá hvernig dagurinn verður því veðurspáin er slæm fyrir daginn í dag þannig að útlit er fyrir að fyrri áform um Sumarhöllina og Olympiusvæðið verður líklega að lúta í gras fyrir prúttmarkaði og verslunarferðum. Síðan á að batna veðrið þegar líður á vikuna. Það er búin að vera þokkalega rigning en samt hlýtt og gott veður eða um 29 stiga hiti.
Bless í bú
laugardagur, júlí 10, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
15 ummæli:
Gott að heyra - eigið góðan dag.
kv Díana
Gott að heyra að allt gekk vel amma er búin að hugsa mikið til Siggu Báru sinnar. Eg var svo spennt að heyra, kl. hér er bara sjö um morgun og ég sest við tölvu
mjög óvanalegt . Afi er að fara í ferð það verður tómlegt hjá ömmu enginn afi og engin Sigga Bára. Best kveðjur til allra
amma og afi
Gott að vita af ykkur á áfangastað kæru vinir ! Hafið það nú gott og drekkið í ykkur menningu Kína :-)
knús
Blómvangsgengið
Gott að vita af ykkur á áfangastað!
kv. Kiddi
Gott að vita að þið eruð komin út og að ferðalagið gekk vel. Ég var mjög spennt að vita um það.
Hafið það gott og við sjáumst eftir 2 vikur.
Heiða hóp 18
Gott að heyra að heyra að allt gekk vel í þessari löngu ferð. Hafið það sem allra best :-)
Knús
Þóra
Yndislegt að vita af ykkur komnum út - njótið ykkar ;o)
Knúsur frá okkur í Fannafoldinni ;o)
Velkomin! Gott að ferðin gekk vel og yndisleg mynd af uppgefnu stóru syturinni:) Knús og kossar***
flott að heyra :)) læt systur í ferðalagi vita þær eru í firðinum fagra núna...........knús á ykkur öll frá Græna Holtinu;) já sem sagt mér og sólargeislanum
Kæra fjölskylda.
Frétti af þessari síðu í gegnum sameiginlegan vin;)
Innilega til hamingju með stelpuna ykkar.
Vonandi gengur allt vel og ég hlakka voða til að fylgjast með því þegar þið loksins hittist og vonandi sjá myndir af dömunni ykkar:)
Gangi ykkur sem allra best.
Kveðja
Jana og Katrín Rut (Kólumbíuprinsessa)
Ástarkveðjur frá okkur útí móa :)
Fylgjumst spennt með
Kær kveðja
Valentína,Kalli og Stína
Gott ad vita af ykkur i godu yfirlæti i Peking:) Yndislegt ad fa ad fylgjast med ykkur:)
Knus og kvedjur til ykkar,
Gigja.
Ma eg skoda myndirnar ykkar? Hef ekki passwordid.
Megid senda mer tad (ef tid kærid ykkur um) a gigjapia@simnet.is :)
Knus,
Gigja.
Gangi ykkur allt í haginn.
Kær kveðja til Kína.
Einar S.
Gaman að fylgjast með hversu vel gengur, þið eruð algjörir snillingar öll sömul. Hugsa til ykkar, hafið það sem best og gangi ykkur vel með framhaldið. Hér er sól og sæla heitt og gott eflaust eitthvað svipað hjá ykkur ; ). kv. Ósk
Skrifa ummæli