miðvikudagur, júlí 28, 2010

Komin heim á Hofteig.

 Já þá er þessu magnaða ferðalagi okkar lokið þvílík ferð hún gekk svo vel í alla staði að það er hreinlega ótrúlegt. Ekki hægt að hugsa sér betra tilefni til að leggja land undir rfót en að eignast barn og að allt annað skyldi síðan ganga svona vel. Ferðafélagarnir voru nátturulega þeir besti í heimi og síðan allt þetta góða fólk sem við vorum með í ferðalaginu og þá auðvitað standa Jói og Jóna uppúr og þáttur þeirra verður seint fullþakkað fyrir, algjörlegar ólýsalegt hversu gott og gaman það var að vera með þeim á þessum nýja heimavelli í hinni mögnuðu borg Peking. Ferðalagið sjálft gekk vonum framar eftir að við komumst um borð en það voru ýmis innritunarvandamál sem þurfti að leysa þótt það hafi ekki verið beint hjá okkur en við höfum ætlað okkur að eiga nægan tími í flugstöðinni og skála í síðasta sinn í bili í Peking, en það tókst ekki heldur fórum nánast á handahlaupum um borð. Auður Edda var frábær í fluginu stillt og góð, svaf smá en var annars sem hugur manns. Að vísu urðum við fyrir því í fysta sinn að kvartað var undan okkur en par sem sat sæti fyrir framan okkur kvataði því eftir að kellan hafði sofið amk í 5 tíma óáreitt þá tók Auður Edda upp á því að fara að lita og gerði það með þeim hætti að smá heyrðist meira í pennanum sem notaður var en alla jafnan heyrist. Mjög þarfur fegrunarsvefn kellu styttist sem þessu nam og flugfreyja kom til að tala við okkur. Eftir að þær áttuðu sig á staðreyndum þá sendu þær parinu illt auga og við gerðum lítið í því að draga úr athafnaþörfinni. Lífið sjálft sér um að skapa svona fólki rétt umhverfi. Við getum hiklaust mælt með þessari ferðaleið með Finnair í gegnum Helsinki því það var síðan rúmur klukkutimi þar í litilli en góðri flugstöð og ekki sama stress og þegar farið er í gegnum margmennið í Kaupmannahöfn, auk þess sem ferðarlagið tekur skemmri tíma. Siðasti leggurinn er nátturulega alltaf magnaður að byrja að sjá Island birtast undan skýjum og síðan að komast á áfangastað heilu og höldnu. Móttökunefnd kom á völlinn og ekki var viðgjörningurinn verri þegar komið var heim. Amma hafði bakað margar kökur og komið með fullt af mat fyrir okkur, færði okkur öllum rósir og svo fékk Auður Edda það sem allar ömmustelpurnar fá gull hjarta men! Takk amma og afi fyrir allt. Við fórum síðan snemma í háttin enda dauðþreytt eftir tæpan sólarhring og síðan vöknuðum við eldsnemma til að taka á móti nýjum degi. Sigga og pabbi vöknuðu háf fjögur, mamma fjögur og Auður Edda kl. 5!!!


Takk allir fyrir hlýjar, fallegar og uppbyggilegar kveðjur til okkar meðan á ferðinni stóð.

Myndirnar sýna svo ferðina í dýragarðinn, síðasta kvöldið hjá Jóa og Jónu (seint hægt að fullþakka þeim hjónum!!) og flugferðin. Það er ein mynd af Siggu Báru í fangi eins kínversks manns en það er einmitt bílstjórinn sem keyrði okkur í Peking þegar við sóttum Siggu Báru árið 2005- við eigum aðra mynd af þeim frá þeim tíma – svona er Kína lítið!!!

Bless í bú

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ elsku fjölskylda.
Yndislegt að allt gekk vel hjá ykkur heim,söknum ykkar, takk fyrir skemmtila heimsókn og dásamlegar dætur fallegastar og bestar, verið dugleg að blogga svo við getum filst með.Þið munið vera áfram í huga okkar og bænum.
Kærar kveðjur frá Kína
Jóna og Jói

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda

Velkomin heim í kotið ykkar, yndislegt að sjá myndir af ykkur öllum á Hofteignum !

knús í hús
Blómvangurinn

Nafnlaus sagði...

...já og gaman að sjá myndir af Mr Go :-)

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli, Sigga Bára og Auður Edda velkomin heim.
Njótið þessara yndislegu fyrstu daga heima -
Enn og aftur hamingjuóskir með ykkar flottu dætur.
knús
día og co

Nafnlaus sagði...

Elsku yndislega fjölskylda - velkomin heim !!!
Gott að sjá að heimferðin hefur gengið vel og þið séuð komin heim. Njótið þess nú að hvílast, knúsast og kynnast í rólegheitunum. Það hefur verið frábært að fylgjast með ferðinni ykkar og fá að taka þátt í þessu öllu héðan að heiman.
Knúsur og kveðjur í hús, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

Nafnlaus sagði...

En yndislegt! Hlakka svo til að koma og knúsa ykkur öll fjögur! Búin að sakna litlu frænku minnar alltof mikið og krefst þess að fá hana sem fyrst í smá frænkudekur**

Hlökkum til að sjá ykkur:D

erna hrund og alli

Nafnlaus sagði...

p.s. Vá hvað þú ert í æðislegum kjól á hofteigarmyndunum elsku Gyða***

erna hrund

Sigrún og Sara Xiao sagði...

Velkomin heim elsku Gyða, Kalli og fallegu dætur, frábært að sjá myndirnar heima! kær kv, S&S

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim elsku fjögurra manna fjölskylda!! Hlökkum mikið að hitta ykkur og mér skilst að Auður Edda og Halla Elísabet eigi eftir að verða góðar saman (",)

Bestu bestu

Álfrún & co

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda, velkomin heim :)
Mikið er búið að vera gaman að fylgjast með ykkur í ferðinni ykkar, ferð sem hlýtur að vera ógleymanleg og uppfull af ævintýrum, upplifunum og góðum minningum.
Takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa og setja inn myndir, maður er oft búinn að ferðast til Kína í huganum síðustu daga.
Gangi ykkur vel að koma öllu á rétt ról hér heima.
knús og kossar
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára,
velkomin heim í kotið ykkar Auðar Eddu og fjölskyldu.
Litla systir þín er sæt og krúttleg.
Hlökkum til að sjá ykkur seinna.
Flottar myndir af panda björninum sem þið tókuð.
bestu kveðjur
Guðrún Edda

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Velkomin heim.
Frábært hve allt gekk vel á heimleiðinni.
Njótið samverunnar.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim kæra fjölskylda,
og takk kærlega fyrir að hafa fengið að fylgjast með bæði í gegnum lestur skemmtilegra pistla og fallegra mynda! :-)
Gangi ykkur sem allra best á næstu dögum og vikum með fallega og nýja fjölskyldumeðliminn, dásamlegar prinsessurnar ykkar!! :o)

Bestu kveðjur
Sigga og fjölsk.

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim elsku vinir. Það er búið að vera æði að fylgjast með ferðasögunni. Takk fyrir að vera svona dugleg að blogga og setja inn myndir svo við getum upplifað þessa einstöku lífsreynslu með ykkur.
Hlökkum til að sjá ykkur - vonandi fljótlega.
Okkar allra bestu kveðjur,
Einar, Inga Lára, Hildur Sigrún og Hrannar.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Ísland!

Hjartanlega velkomin heim kæra fjölskylda. Megi himininn, hafið og fjöllin faðma þig blítt litla fallega Auður Edda.

Hlýjar kveðjur,
- Ingibjörg, Jónas og Kría

Nafnlaus sagði...

Elskulega fjölskylda!

Verið innilega velkominn heim. Maður tárast bara við að lesa síðuna ykkar og skoða myndirnar....ýndislegir gullmolar sem þið eigið!:-)
Gangi ykkur sem allra best og hlakka til að skoða meira..
B.kv.
Alda