mánudagur, júlí 19, 2010

Stori dagurinn er runninn upp.

Það var mikil spenna þegar við vöknuðum í morgun vitandi að fjölskyldan myndi stækka innan fáeinna stunda. Við reyndum að fá okkur smá morgunverð en matarlyst okkar hefur eflaust alltaf verið meiri og betri en í morgun. Eftir að hafa tekið til dótið okkar og týnt til öll þau gögn og fylgidót sem þurfti þá fórum við niður í hótelafgreiðsluna til að bíða eftir að verða sótt.Lína leiðsögumaðurinn okkar var kominn og beið okkar ásamt bílstjóra.Ferðin á heimili Auðar Eddu sóttist vel, Lína skýrði út fyrir okkur hvað nöfn hennar merkja á kínversku en það hafði ekki gengið vel hjá okkur að fá góða merkingu í það áður. Wu hefur ekki sérstaka merkingu, Jin þýðir gull og Fang þýðir sætur ilmur af blómi. Það var gott að hafa þetta í huga þegar við komum á barnaheimilið. Það var fallegt heimili, vel hirt, snyrtilegt og umgjörð öll til fyrirmyndar. Tekið var á móti okkur og okkur vísað inn í biðherbergi. Þar var verið að ganga frá ættleiðingu fyrir þrjú önnur börn og ekki minnkaði spennan við það.Kalli var beðinn að byrja að fara yfir nauðsynleg gögn og undirrita einhverja tugi af pappírum sem okkur var sýnd þýðing af á ensku og síðan voru það táknin góðu sem skrifað var undir.Kannski veit maður síðar á lífsleiðinni hvað þetta þyðir allt saman námkvæmlega. Við urðum síðan bæði að undirrita fullt af eintökum og loks fór eitthvað að gerast, Brói og Edda biðu frammi og urðu þannig fyrst til að sjá hana þegar komið var með hana. Allt myndað í bak og fyrir og vonandi skilar það sér frá okkur fljótlega. Þvílík fegurð og þegar hún kom. Hún virtist þekkja okkur sem við teljum að sé vegna þess að við höfðum sent myndir af okkur öllum. Hún fór beint í fangið á Mömmu sinni og þaðan hefur hún varla farið aftur. Hún er alveg æðislega góð og falleg og blíð og það fyndna er að hún er svo lík stóru systir. Sigga Bára er svo blíð og góð við litlu systir. Auður Edda er orðin hluti af okkur og það er ólýsanleg tilfinning. Hún var leyst út með fallegum gjöfum, frá heimilinu, myndabók með myndum af henni og ýsum vinum. Þegar ferlinu lauk á heimiliu þá fórum við heim á hótelið og áttum góða stund þar sem hún lék við hvurn sinn fingur. Mamma fékk fyrsta kossinn í bílnum á leðinni en Pabba heima á hótelinu stuttu síðar.Hún reynir að herma eftir stóru systur með fullt af hlutum sem er virkilega flott að sjá.Hún er dundari og leikur sér með hluti í ró og næði og ELSKAR AÐ BORÐA. Fyrstu eftir stuttan lúr þá er hún komin á fullt aftur. Skrifum seinna á morgun.


Brói og Edda biðja að heilsa öllum og takk fyrir fallegar kveðjur það er svo gaman að lesa kveðjurnar!!

Bless í bú
Fyrsti dagurinn síðari hluti, þá eru þær systur sofnaðar, báðar að sjálfsögðu klæddar í eins náttföt sem þeirra yngri þótti virkilega flott, vildi reyndar fara í skónum upp í rúm líka sem kom ekki til greina að þessu sinni. Við héldum nú frekar rólegan dag á herberginu enda skiptir miklu núna að tengslamyndun okkar takist sem best. Mamman er vinsælust en Pabbinn og Sigga Bára fá smá athygli líka og Brói og Edda verða að halda aftur af sér í því að knúsa ekki í tætlur þessa sæta dömu. Hún er alveg ótrulega flott stúlka, leikur sér og dundar og raðar hlutum fram og til baka.Pabbinn sagði að þær þrjár prinsessurnar væru þá allar frekar ferkantaðar í háttum, vilja hafa alla hluti á réttum stað á réttum tíma. Sem betur fer eru ekki hringlaga takkar í lyftunni á hóteinu því annars kæmust þær ekki milli hæða. Kvöldmaturinn var ekki af verri kantinum við skelltum okkur bara á einn af veitingastöðum hótelsins og var það Japanskur veitingastaður sem varð fyrir valinu að þessu sinni. Frábær matur sem fyrr og sú stutta borðaði mjög vel og naut þess að láta mata sig. Sú athygli kallaði á þörf á því að slíkt hið sama yrði gert fyrir Siggu Báru sem Pabbinn tók því að sér. En semsagt núna eru gömlu hjónin farin að þreytast og fara að sigla í svefn því við vitum ekki hversu langur hann verður í kvöld. Á morgun verður haldið áfram að ganga frá pappírum, hittum einhverja sýslunarmenn og undirbúum með vegabréfið fyrir hana.Kannski verður myndin af henni jafn eftirminnileg og sú sem prýðir kínverska vegabréf Siggu Báru.

53 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með hvert annað. Yndislegt að lesa frá deginum ykkar og yndislegt að heyra hvernig Auður Edda tók ykkur, getur ekki verið betra.

knús og kossar yfir hafið og eigið sem bestan fyrsta dag saman, frábæra, flotta fjögurra manna fjölskylda :)
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb

Nafnlaus sagði...

Elsku vinir

Við sitjum hérna öll fjölskyldan við morgunverðarborðið með bros á vör og tár í augum. Ég var að lesa upp fyrir þau pistilinn og þurfti nokkrum sinnum að gera hlé á upplestrinum ;-)

Skoðuðum allar fallegu myndirnar og váááá, hún Auður Edda er FULLKOMIN.....svo yndisleg !

Innilegar hamingjuóskir með hvort annað, þið eruð æði :-)

Ykkar vinir
Gústi, Kristín, Matthildur og Karólína sem eru að leggja af stað á Snæfellsnesið í blíðunni...eins gott að við sáum myndir áður ;-)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með daginn elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára.. Þvílíkt yndi sem hún Auður Edda er, endalaust falleg og brosmild! Maður hreinlega finnur gleðina í gegnum myndirnar. Ég hugsa til ykkar og get ekki beðið eftir að fá ykkur öll heim. Knúsið mömmu og pabba frá okkur öllum:)

kveðja íris frænka

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju fallega fjölskylda. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þessu ævintýri.

Sendum baráttukveðjur til Siggu Báru. Hún stendur sig örugglega eins og hetja.

Heiðrún, Gestur og co

Nafnlaus sagði...

Elsku yndislega fjölskyla. TIL HAMINGJU með Auði Eddu. Mikið er hún falleg og yndislegt. Maður sér það og finnur í gegnum myndirnar. Og hún er sko alveg tilbúin til að fara heim til sín! Hér á Siglufirði sáust tár á hvarmi og Amma og afi vöknuðu snemma - sögðust finna að nú væri Auður Edda að koma í faðm foreldra og systur. Sumir segja að börnin velji sér fjölskyldu og ég er þess fullviss að val Auðar Eddu er hárétt! Ég meina hún ELSKAR AÐ BORÐA! Við hlökkum til að fá að knúsa hana og kyssa.
Hafið það sem allra best.
Þúsund kossar til ykkar.
Við á Siglufirði (amma, afi, Siggi Valur, Hermann og Þóra)
p.s. Hemmi segir að hún sé center!

Nafnlaus sagði...

Elsku besta fjölskylda!! Sit hér með tárin í augunum - að drekka kókómjólk í vinnunni -því að kíkja inn á bloggið ykkar var mitt fyrsta verk í morgun!
Yndislegt að heyra að allt gekk vel og hún Auður Edda er YNDI!! - og Sigga Bára fullkomin stóra systir (",)

Glökkum til að knúsa hana og ykkur þegar þið komið heim!

Hamingjuóskir

Álfrún, Viktor og Halla Elísabet

Unknown sagði...

Innilega til hamingju kæra fjölskylda. Hún er yndisleg! Þvílíkur gullmoli. Ótrúlegt að sjá hvað hún virðist sátt strax.

Eigið það sem allra best næstu daga.

Pálína

Nafnlaus sagði...

Jesús þetta er svo mikið æði að maður er bara klökkur ;) Til hamingju elsku systir Kalli og Sigga Bára og auðvitað Brói og Edda líka.... maður getur ekkert sagt nema ÆÐI ÆÐI. Kristbjörg frænka og Sigtryggur biðja að heilsa ykkur voða vel:))))))))))))

Knús á ykkur fra mér og mínu fólki

Þórhildur

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega flottar myndir og hamingja lýsir af hverju andliti. Hamingjuóskir og hlökkum til að fá ykkur heim!

Palli og Halla og co.

Erna Hrund sagði...

Gvuð! hún er svo falleg og svo lík stóru systur sinni! Sit hér hágrátandi af ánægju í vinnunni og hugsa til þess hvað ég hlakka til að fá að knúsa báðar fallegu Kínaprinsessufrænkurnar mínar:D Æðislegar myndir!! Eigið þið nú fullkominn dag yndislegust og innilega til hamingju með hann***

Þær eru svo Æðislegar og fallegar og frábærar dætur ykkar tvær***

Hugsum til ykkar

Erna Hrund og Aðasteinn:)

Nafnlaus sagði...

Það er nú bara ekki hægt annað en að tárast af gleði yfir fallegu myndunum og lýsingum á þessari stundu. Það er eins og Auður Edda hafi alltaf verið hjá ykkur og ekki leynir sér að stóra systir stendur sig súper vel (og auðvitað ómetanlegt að hafa Bróa og Eddu þarna líka)
Til hamingju með lífið og tilveruna og hvort annað :)
Gerður

Nafnlaus sagði...

Loksins!!!!!!! Flýtið ykkur nú bara heim : )
Bína og co.
P.s Koss á kinn frá okkur öllum.

Jóna sagði...

Elsku vinir
Innilega til hamingju með fallega og flotta stelpu.
Stóri dagurinn runninn upp, Auður Edda komin í faðm fjölskyldunnar, það féllu nú nokkur tár hér, hún er stórkostlega falleg og kát, held að hún finni hvað hún á yndislega fjölskyldu og stóra systir er að standa sig, hlökkum til að sjá ykkur á laugardag, þið eruð í huga okkar og bænum, höldum áframm að fylgjast með.
Kossar og knús til ykkar allra.
Jóna og Jói

Nafnlaus sagði...

Hún er svakalega flottur krakki, grallari - það verður ekkert mál fyrir Iðunni að kenna henni nokkra ósiði : ). Hún er nú nokkuð lík Siggu, samt held ég að karakterinn sé mjög ólíkur sem er áskorun fyrir ykkur. Hún er æði!!! Hvað annað. Hlakka hrikalega til að sjá hana (ykkur).
Bína

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með að vera loksins sameinuð!
Hún er yndisleg og frábært að sjá og heyra hvernig hún tekur þessu öllu.
Stóra systir er náttúrulega bara flott!
Sigga Bára til hamingju með litlu systur og að vera orðin stóra systir - þú ert svo dugleg!

Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðlimin :) Ekkert smá fallegar systurnar. Hlökkum til að sjá ykkur þegar þið komið heim.

Kveðja Bjarni og Hafrún

Nafnlaus sagði...

Sæl kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju hver með annað!!
Auður Edda er yndisleg, svo falleg og fín, okkur finnst hún líkjast mömmu sinni heilmikið.
Hafið það sem allra, allra best, hlökkum til að sjá ykkur "læf".
Bestu kveðjur, Hildur Björg, Þórdís og Kristján.

Ósk Reynalds sagði...

Elskurnar mínar mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd sit hérna hálf-vælandi og skoða myndirnar. Auður Edda er dásmlega falleg eins og systir hennar hún virðist á myndunum líka vera svo sterkur karakter, í góðu jafnvægi og bara glöð...ekki leiðinlegt það. Hélt ég ´myndi fá hjartastopp þegar ég sá myndirnar af ykkur fjórum þær voru svo flottar. Ég er svo glöð með að Edda og Guðmundur séu með ykkur til stuðnings það er ábyggilega ekki slæmt ; ) bið að heilsa öllum. kv. ósk

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára. Ég er svo snortin.Sit grátandi yfir myndunum, gæsahúð er búin að hríslast um mig alla.
Ykkar Kristbjörg Hrund

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára og Auður Edda,
mig langar til að gefa ykkur blóm. Má ég hoppa með ykkur á trampólíninu þegar þið komið heim?

Kær kveðja frá Íslandi,
Katrín Ágústa

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli, Sigga Bára og Auður Edda, hjartanlegar hamingjuóskir á þessum stóra degi. Gaman að heyra hvað allt gekk vel. Gangi ykkur vel að kynnast og knúsast, bestu kveðjur, Unnur V

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir,
innilega til hamingju með Auði Eddu, -fallegt nafn á fallegu barni. Hlökkum til að hitta ykur öll fljótlega,
Ágústa og fylgifiskar

Nafnlaus sagði...

Til hamingju kæra fjölskylda!
Hér er greinilegur stuðbolti á ferð !!- myndirnar af henni eru frábærar og frábært að heyra hvað allt hefur gengiði vel. Myndirnar eru svo skemmtilegar af henni og fyrstu systramyndirnar flottar. Það er svo gaman að sjá hana með mömmu sín og pabba.
Það eru skemmtilegir dagar framundan hjá ykkur - hlökkum til að fá fleiri myndir frá ykkur.
Njótið þessara daga í botn - ég væri alveg til í að skipta við Bróa og Eddu en bíð bara þolinmóð þar til þið komið heim.

Knúsið systurnar í kaf frá okkur í Gvendargeisla 92.
Kossar til ykkar allra.
Kveðja, Olga og famelía.

Nafnlaus sagði...

Alltaf er það jafn yndislegt og meir en orðum tekur að sjá/lesa um fjölskyldur sameinast og verða til! :o)
Innilega til hamingju með að vera búin að fá fallegu stelpuna ykkar í fangið, hún er dásamleg!! :-)
Ótrúlegt hvað hún tekur breytingunum sem hafa orðið vel, er bara með bros á vör en það er pottþétt að myndaalbúmið hefur hjálpað mikið til! :)
Auður Edda er lík systur sinni, til lukku með hana Sigga Bára! :)

Kær kveðja
Sigga, Bjössi, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Hrund og co sagði...

Loksin komumst við inn á síðuna ykkar!!! Innilega til hamingju með Auði Eddu elsku fjölskylda, hún er yndisleg eins og stóra systir! Hlökkum mikið til að sjá ykkur aftur í Beijing.
Hrund, Skarpi, Guðmundur og Ingvar Wu.

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju. Auður Edda er yndisleg og ótrúlegt hvað hún er afslöppuð. Hún finnur að hún er komin í góðar hendur, með frábæra stóru systur að auki. Hamingjan skín af henni og ykkur öllum. Þetta er YNDISLEGT. Hjartað mitt sló aukaslag yfir fegurðinni. Þær eru nú bara líkar systurnar :=)
Hafið það sem allra best og góða ferð heim.

Knús og kossar til ykkar allra
Rósa, Pétur og Atli Steinn

Nafnlaus sagði...

Það er hátíð á Íslandi - til hamingju með ykkur!

kv. Kiddi

Nafnlaus sagði...

Veit að það var eitthvað mál hjá Gunnu minni að komast inn á síðuna ykkar............svo móðir sendir bestu kveðjur frá henni til ykkar allra.


ÉG get ekki hætt að skoða myndirnar er alltaf að fara aftur og aftur inn og líka sýna vinum skoooo :))

Njótið tímans í Kína kv. Þórhildur

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda,
innilegar hamingjuóskir með daginn ykkar. Myndirnar af ykkur saman er ótrúlegar - alveg eins og Auður Edda hafi alltaf verið með ykkur.
Fullt af tárum hrundu niður þegar ég fletti í gegnum myndirnar af ykkur - samgleðst ykkur öllum og hjartans hamingjuóskir með hvert annað yndislega fjölskylda.
Eigið yndislega daga
kv. Día (grenjuskjóða) og fylgifiskarnir

Nafnlaus sagði...

Hæ, bíð eftir fleiri myndum og spennandi að heyra hvernig hennig gekk að sofna í faðimi fjölskyldunnar.
Sólarkveðja frá Olgu.

Nafnlaus sagði...

Henni líður greinilega vel með ykkur - ekkert mál að fara að sofa - þvílík prinsessa. Sigga Bára hlýtur að hugsa vel um systir sína.
Ég er farin út í sólbað.
Góða nótt og sofið rótt.
Kveðja, Olga.

Nafnlaus sagði...

Elsku, elsku fjölskylda - til hamingju með daginn ;o)
Sannarlega yndislegur gleðidagur og ykkur til heiðurs skín sólin í bongóblíðu hér heima á Fróni.
Erum öll fjölskyldan búin að sitja við tölvuna, dást að systurnum fallegu og foreldrunum, lesa pistlana og skæla, ja nema Anna Bíbí sem skilur eiginlega ekkert af hverju foreldrar hennar gráta gleðitárum ;o)
Frábært að sjá hvað vel gengur þennnan fyrsta sólarhring og Sigga Bára stóra systir er sannarlega algjör hetja, búin að standa sig svo vel í þessu stóra ferðalagi. Hún á örugglega eftir að verða bestasta og flottasta stóra systirin í heiminum ;o)
Njótið daganna sem eftir eru. Við erum á leið til Austurríkis í kvöld og vonandi getum við litið á fréttir af ykkur þaðan.
Fullt af kveðjum og knúsi, alla leið til Kína og aftur heim, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí sem er heilluð af fallegu systrunum ;o)

Nafnlaus sagði...

Mamma, Systa og ég bara tárumst yfir þessu öllu til lukku og yndislegt að sjá myndirnar hvað þið eruð öll glöð og sæl

Nafnlaus sagði...

Þórhildur systir aftur að kíkja hehehehh sé að næst verð ég að kaupa 2 karton af tyggjói!!!! eiga nóg í skápnum f þær báðar;) finnst þetta svo frábært allt saman ......vona að nóttin verði ljúf og góð hjá ykkur ..veit að ég gæti ekki sofnað nema á lyfjum eftir að vera komin með fallegan unga ásamt fögrum stærri unga---------þetta er að vera ríkur

Hætt að kíkja í bili og farin á pallinn í sólbað

Nafnlaus sagði...

Símalínurnar eru rauðglóandi, Landlystarfjölskyldan er svo hamingjusöm yfir nýju frænkunni. Búin að tala við Baddý og Adda, Þórhildi systur og Þ.Ýr, pabba o.fl. ofl.Pabbi var að spá í að flagga! Við bara hlæjum og skoðum myndirnar endalaust. Mikið stendur hún Sigga Bára sig vel og hugsar vel um systur sína. Knús og kossar
KHS

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára til hamingju með litlu systur. Er ekki gaman að vera orðin stóra systir?
Elsku Gyða og Kalli Hjartans hamingjuóskir með báðar dæturnar. Brosið hefur ekki dottið af manni síðan við sáum myndirnar af ykkur. Ótrúlegt að fá að fylgjast með stækkun fjölskyldunnar. Hugsum mikið til ykkar. Bestu kveðjur til frænda og Eddu
Hjartans kveðjur frá pabba og okkur Hrafnkeli
Þórhildur S

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda, innilegar hamingjuóskir með þessa fallegu prinsessu, vá hvað hún er falleg og þær systur saman ég sit hérna með tárin í augunum að skoða myndirnar, mikið hlakka ég til að sjá ykkur þegar þið komið heim :))
Hún er alveg dásamleg eins og systir sín , kær kveðja, Júlíana og Siggi

Nafnlaus sagði...

Við amma sitjum hér og prjónum á Auði Eddu. Spennandi peysa sem amma er að prjóna (vitum ekki alveg hvernig hún kemur út). Við erum búin að ganga um allan Siglufjörð og það er virkilega gaman að sjá Fjörðinn með augum Vals. Við hlökkum til á morgun þegar við fáum nýjar myndir.
Siglufjarðarkveðjur frá Þóru

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða og Kalli. Til hamingju með Auði Eddu. Ég hlakka til að sjá hana. Ég er mjög spenntur.
Kær kveðja,
Siggi Valur

kristinvald sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Jæja, þá er ég búin að taka kvöldrúntinn...búin að skoða myndirnar oft í dag og alltaf jafn heilluð af þessari litlu mannveru sem er komin inn í lífið ykkar, heilluð af Siggu Báru stóru systur sem stendur sig svona vel þó maður sjái alveg að þetta sé erfitt fyrir hana, heilluð af foreldrunum sem ljóma af gleði og hamingju, heilluð af þessari dásamlegu vísitölufjölskyldu :-)

Til hamingju Ísland !!!

Kristín V

Nafnlaus sagði...

Hún er algjört gull.. innilega til hamingju elsku fjölskylda!! Kveðja, Ásta SS

Nafnlaus sagði...

Innilegar hamingjuóskir með sameininguna elsku fjölskylda!:) Mikið sem hún Auður Edda er falleg og yndisleg að sjá ... alveg eins og stóra systirin!:)
Knús og kremjur frá okkur,
Gígja og María Mist.

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda voðalega er gaman að heyra hversu gaman var í gær hjá ykkur. bestu kveðjur frá Helenu :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju elsku fjölskylda...ég táraðist að lesa þetta. Gangi ykkur einstaklega vel það sem eftir er og knús á ykkur öll og bróa og eddu líka.

Knús frá Gurrý

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda. Við sendum innilega hamingjuóskir til ykkar. Þetta eru yndislega stelpur sem þið eigið. Hlökkum til að sjá ykkur. Skúli, Hildigunnur, Ásta og Einar Kristján

Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét sagði...

Kæru vinir.
Innilegar hamingjuóskir með nýja fjölskyldumeðliminn. Hún Auður Edda er glæsileg stúlka og heppin að fá að eignast ykkur sem fjölskyldu.
Frábært að lesa bloggið frá deginum og hvað allt hefur gengið einstaklega vel hjá ykkur.
Yndislegar myndir og flott fjölskylda og Sigga Bára "stóra systir" til hamingju með "litlu systur."

Kær kveðja Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét í blíðskaparveðri í Flókalundi :)

Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét sagði...

Kæru vinir
Innilegar hamingjuóskir með daginn og litlu dömuna ykkar. Frábært að sjá hvað allt hefur gengið vel og hvað Auður Edda er glöð og ánægð. Glæsileg stúlka.

Auður Edda er heppin að fá að eiga ykkur sem fjölskyldu.

Sigga Bára til hamingju með litlu systur og að vera orðin stóra systir. Þið eruð glæislegar systur.

Yndislegar myndir og hreint út sagt allt frábært.

Kær kveðja Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét úr blíðunni í Flókalundi

Ps. Hér eru líka Svava og Pálmi með dætur sínar og Hulda og Árni með sína dóttir og biðja kærlega að heilsa og senda hamingjuóskir.

Brandur sagði...

Hjartanlega til hamingju með Auði Eddu. Það hreinlega geislar hamingjan af hverri mynd :)
Gaman að fá svona gleði sem veganesti inn í daginn.
Guðbrandur Örn og Björk

Fanney,Hafsteinn og fjsk sagði...

Kæru vinir.
Okkar innilegustu hamingjuóskir.
Við bara tárumst og fáum gæsahúð af gleði yfir allri þessari hamingju. Auður Edda er yndisleg eins og þið öll.
Bestu kveðjur.
Fanney, Hafsteinn,Unnur og
Anna Kristín Ling.

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda! Guð hvað Auður Edda er falleg og þið öll. Sitjum hér og gleðitárin leka niður kinnar. Hlökkum svo mikið til að sjá ykkur.
Styrmir,Dóra og stelpurnar

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ - dámsamlegt að sjá nýjar myndir - og gaman að sjá Auði Eddu og hvað hún er glöð. Enn og aftur til hamingju - við vorum að reyna að senda ykkur kveðju í gær og í dag en vitum ekki hvort það hefur skilað sér.

Haldið áfram að njóta þessa dýrmæta tíma með nýju dömunni og þeirri stóru. Sigga Bára þú ert rosalega flott stóra systir


Kær kveðja, Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta allt saman !
kv
Erla frænka