Dagurinn byrjaði vel hjá okkur, dömurnar sváfu vel í nótt og vöknuðu með bros á vör sem fyrr. Eftir góðan morgunverð þá fórum við í ferð með leiðsögumanni okkar henni Línu eins og hún heitir. Við fórum í það sem kallað er hér gamli hluti borgarinnar og hefur staðið hér í einhver hundruð ára. Þetta er „ekta Kína“ eins og sagt er byggingar með þessu flotta kínverska lagi með flottum og útskornum dýrum. Við fórum í Yuyuan Gardens sem er miðpunkturinn þar og er í raun listigarður af fegurstu gerð og er alveg nauðsynlegt að sjá fannst okkur. Falleg hús og tjarnir og listilega vel útfærðir garðar. Hitinn var reyndar óbærilegur og við drukkum mikið af vatni, urðum líka að bera dömurnar báðar því ekki var hægt að vera með kerru bæði vegna mannfjölda og eins vegna þess hversu grófar gangstéttirnar eru en þær eru stundum sjálfar hreint listaverk. Eftir góða stund í þessum garði var okkur boðið í miðdegisverð sem endaði í einhverjum 10 réttum sem hver toppaði hinn fyrri. Alveg frábært og að því loknu smá meiri skoðun. Síðan tók við tea hús þar sem við keyptum smá af tei og smökkuðum hin ýmsu afbrigði sem eiga að virka bæði til að auka meltingu (förum ekki nánar út í það) minnka uppþembu, blóðsykur,karlmennsku og langlífi svo fátt eitt sé talið á löngum lista. Við munum af tilliti til fjölskyldunar ekki greina frá því hvaða te við keyptum að þessu sinni. Litla daman er alltaf flottari og flottari og er orðin virkilega háð mömmu sinni og vill lítið koma til pabbans nema hann hafi Kex eða eitthvað matarkyns svo.það þarf að aðlagast því. Þvílíkt matargat hún er bara óstöðvandi. Núna eru dömurnar allar og Brói í sundi spa og sauna sem líklega er álíka heit og að standa úti á bílastæði en það dugar nú ekki. Sú stutta er sofandi og síðdegið er ófrágangið. Lína leiðsögumaður hló mikið af því á hvaða veitingastað við fórum í gær, sagði að það gæti ekki orðið meira staðbundið en þetta og sagði að foreldrar hennar sem væru gamlir eða eitthvað um fimmtugt (ok náðum því) færu stundum þarna þegar þau gerðu sér dagamun og maturinn væri ok. Henni fannst virkilega fyndið að heyra lýsingu okkar á þessu öllu saman og var stolt af því að við skyldum finna þennan stað því kínverskara verður það nú varla við erum búin að hlæja svo mikið að þessu hjá okkur að það er ólýsanlegt. Núna er bara einn heill dagur eftir í borginni og snemmaá laugardag þá förum við aftur yfir til Peking og okkur hlakkar mikið til að hitta Jóa og Jónu og síðan íslenska hópinn. Aftur og enn þá hafa Brói og Edda létt okkur lífið ótrúlega í þessari ferð – vitum ekki hvernig þetta hafi farið án þeirra!!!
Til hamingju með daginn Geiri
Bless í bú
fimmtudagur, júlí 22, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
13 ummæli:
Kæra fjölskylda,
vorum að skoða myndirnar. Innilega til hamingju með Auði Eddu. Yndislegar myndir og Sigga Bára til hamingju með að vera orðin stóra systir.
Hlökkum til að sjá ykkur öll.
bestu kveðjur,
Kristín, Reynir og Tóta
alltaf gaman að lesa pistilinn ykkar og það er frábært að sja ungana lúlla saman og allt gangi vel. Væri nú til í að vera með ykkur þarna :) hugsum til ykkar miljón sinnum á dag.
Góða nótt og knús til allra
Er að fara á ættarmót norður á morgun svo ég sé ekkert fyrr en á sunnudaginn næstu færslur --verið dugleg að negla inn myndum og skrif.
kv. Þórhildur og Hrafnkell
Kínverjarnir, þessi elsta menningarþjóð heimsins, vita að gott og reglulegt varp er lykill að velsæld og vellíðan. Þess vegna er gott að heyra að þið eruð orðin meðvituð um mikilvægi þess að ná staðgóðu frumvarpi að morgni hvers dags, hið minnsta.
Annars bestu kveðjur og við hlökkum til að sjá ykkur öll.
kv. palli
Frábært að heyra hvað allt gengur vel, Auður Edda er barasta yndið eina og Sigga Bára ótrúlega dugleg stóra systir, þetta er sko ríkidæmi :) Gangi ykkur áfram vel og njótið daganna í Kína :) Bestu kveðjur, Unnur V
Elsku vinir, ég er á síðunni ykkar allan daginn og svo ánægð að allt gengur vel, en að sjá þessar elskur sofa svona saman er hreint út sagt stórkostlegt,þið eruð svo rík og eigið það svo sannarlega skilið, þið eruð yndisleg og getum við ekki beðið eftir að sjá ykkur á laugardaginn,en þangað til verðið þið í huga okkar og bænum. Kossar og knús til ykkar allra.
Jóna og Jói
hæ og hó!
Gaman að sjá skvísurnar kúrandi saman, þær eru bara yndislegar.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn, þá geta krílin borið saman bækur sínar eftir þessa skrítnu reynslu ;)
Wuhan gengið
Er alveg eðlilegt fyrir fullorðna konu að fara að grenja þegar hún sér tvær systur í alveg eins náttfötum lúlla saman....já, það held ég nú bara...það er nefnilega ekkert fallegra;-)
Pabbinn í Blómvanginum veit nú alveg hvað pabbinn á Hofteignum er að ganga í gegnum en vonandi gengur betur að aðlaga dömuna pabbanum en á þessum bænum !!
Frábærar myndir af ævintýrinu ykkar og skemmtilegar frásagnir. Maður er með ykkur í anda daga og nætur....dreymdi ykkur nefnilega síðustu nótt að þið væruð komin heim :-)
milljón knús og kossar
Kristín, Gústi, Matthildur og Karólína
Innilegar hamingjuóskir elsku fjölskylda með litlu systur. Myndirnar eru yndislegar :) Kær kv, S&S
Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með stúlkuna ykkar. Ég er búin að sitja og lesa frábæru pistlana ykkar, gaman að sjá hvað gengur vel. Mikið er Sigga Bára búin að standa sig vel í ferðalaginu, hún Auður Edda er heppin að eiga svona flotta stóra systur.
Bestu kveðjur til ykkar allra frá Akureyri,
Helga og Sigríður Anna Dan (sem hittust í Nanchang fyrir rétt að verða 6 árum síðan - tíminn flýgur svo áfram :)
Eftir 2 daga tölvufjarveru er þetta með því fyrsta sem verður að gera þegar komið er heim og það er að kíkja við hjá ykkur og upplifa og upplifa, já þvílíkt ævintýri sem þetta er!
Auður Edda hreinlega blómstrar og líður vel, pabbinn á örugglega eftir að vinna hana á sitt band, ekki spurning, spurning um tíma! :)
Sigga Bára flottust og duglegust, megið sko vera hreykin af henni! :)
Shanghai er ekkert smá flott og gaman að sjá myndirnar frá gamala Kína, hitinn hlýtur að taka á, var einmitt alveg hræðilega heitt á okkur í Chongqing 2008, úff! ;o)
Kærar þakkir fyrir að fá að fylgjast með! :)
Bestu kveðjur
Sigga, Bjössi, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn
Hæ elskurnar Alltaf jafn gaman og mikið tilhlökkunarefni að lesa ferðasöguna. Yndislegt að sjá þær systur saman. Kína er greinilega upplifun. Maður fær vatn í munninn af lýsingum af matnum. Mér finnst Guðsþakkarvert hvað Auður Edda tengist ykkur öllum strax vel - mamman er auðvitað aðal í byrjun en Kalli minn "þinn tími mun koma"! Ég geri líka ráð fyrir að Sigga Bára þurfi mikið á pabba sínum að halda. Enn og aftur hjartansþakkir fyrir að fá að fylgjast með
Ykkar frænka Þórhildur S.
Sofandi systur í eins náttfötum - frábær mynd !! Þær eru gullmolar!
bestu bestu
Álfrún &co
p.s gat skeð að pabbi gat komið að varpsögum í kommentakerfið (",)
Hæ hæ - erum að skoða myndirnar - greinilega frábær ferð hjá ykkur. Bestu kveðjur, Inga, Gummi og dætur
Skrifa ummæli