Það verður að segjast eins og er að það fylgir því ákveðinn léttir að loka töskunum. Í gærkvöldi vorum við búin að pakka öllu okkar dóti, svo hringdi Jói sem við munum gista hjá í Peking og sagði mér að fara aftur yfir töskurnar og taka upp helminginn!! Ég hlýddi honum auðvitað enda fyrrum yfirmaður minn og ég vön að hlýða! Satt að segja gat ég ekki með neinu móti fækkað kjólunum á dömurnar - hver og einn ómissandi en föt af mér og Kalla rötuðu aftur í sínar gömlu hillur og missa af því tækifæri að ferðast með okkur í þetta sinn.
Nema hvað núna liggur Sigga Bára uppi í rúmi að ræða málin við sína bestu vinkonu (hana sjálfa) það eru bara átta tímar þar til hún vaknar og fer til Finnlands og svo til Kína. Hún bætti við tveimur naglalökkum þessi elska rétt í þessu - hún kann að punta sig.
Ágústa vinkona mun sækja okkur í fyrramálið, skutla okkur til Bróa og Eddu þar sem Bjarni Davíð mun skutla þeim og svo verður ekið í einni halarófu upp á Leifsstöð þar sem við munum hitta snillingana Hrund, Skarpa og Guðmund ferðafélaga okkar.
Við biðjum því að heilsa í bili.
Bless í bú
föstudagur, júlí 09, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Elsku Gyða,Kalli og Sigga Bára,
Innilegar hamingjuóskir með Auði Eddu Min :) Óskum ykkur alls hins besta í ferðinni og hlökkum til að sjá myndir af allri fjölskyldunni. Hjartans kveðja, S&S
Kæru vinir, við sendum ykkur okkar bestu kveðjur og fylgjumst spennt með ferðalaginu ykkar.
Kærar kveðjur, Hafsteinn, Fanney, Unnur og Anna Kristín.
Oh hvað mig hlakkar til að heyra meir af ferðalaginu stóra... kv.
Auður Herdís Sig
Ótrúlega Góða FERÐ!! Elsku uppáhalds:) Hlökkum ótrúlega mikið að sjá ykkur öll fjögur LOKSINS! í lok júlí og ótrúlega er ég (erna hrund) stolt af litlu frænku minni sem er að verða stóra systir að taka flott naglalökk með sér út! Góðar kveðjur og mikill söknuður, ótrúlega góða ferð og biðjum öll að heilsa og hugsum til ykkar:) Hlökkum til að sjá myndir:D
Knús & Kram
Erna Hrund, Aðalsteinn og Mía frænkukisa****
GÓÐA FERÐ!!!! :-)
Sigga, Björn, Lóa Guðrún sem tók með sér alveg fullt, fullt af kjólum til Kína 2008 og Daníel Hrafn
Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára
Góða ferð alla leið til Kína og aftur heim. Það verður sannarlega yndislegt fyrir ykkur að fá fallegu, yndislegu Auði Eddu Min í fangið og hún er sannarlega heppin að hafa eignast ykkur. Hlökkum til að fylgjast með fallegu systrunum í framtíðinni.
Njótið ferðarinnar vel og drekkið Kína í ykkur.
Ferðaknús og kveðjur, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí sem biður mest að heilsa Siggu Báru ;o)
Elsku fjölskylda
Til hamingju með Auði Eddu Min. Gangi ykkur vel í ferðalaginu.
Bestu kveðjur frá gömlum grönnum Rós, Jói og Guðný Sigurrós
Góða ferð og gangi ykkur vel í þessari ævintýraferð ykkar!
Verður gaman að fá að fylgjast með ykkur.
Kv. Kristín Svala, Jens og Katrín Lára
Fylgist spennt med!:)
Gangi ykkur vel med allt i tessari storu ævintyraferd til Kina!:)
Audur Edda Jin er svo sannarlega heppin litil stulka!!!:)
Knus og kremjur af næturvaktinni,
Gigja.
Skrifa ummæli