mánudagur, júlí 26, 2010

Schengen áritun í höfn og vika síðan við fengum Auði Eddu Jin í fangið

Dagarnir eru taldir niður núna en mikið óskaplega er þetta samt gaman og þvílík forréttindi að fá að vera í felagskap með öllu þessu góða fólki.Við tókum daginn snemma og fórum í góðan göngutúr með dömurnar tvær og þá báðar í kerrum. Auður Edda var nú ekki alveg á því enda höfðum við ekki tekið þann slag við hana að vera í kerru, þvílíkur grátur en hann stóð stutt því það var hægt að lauma að henni smá mat og þá gleymdist a.m.k af og til hversu ósanngjarnt það væri að vera í kerru. Eftir daginn þá var hún bara nokkuð glöð með kerruna og þær systur sofnuðu báðar í kerrunum sínum og sváfu vært. Síðdegis var síðan þetta flotta boð hjá Kristínu sendiherra þar sem börnin fengu afhendar vegabréfsáritanir til að geta komið til Islands, ekki amalegt fyrir Auði Eddu að hafa allan tímann búið hjá Jóa í Peking, manninum sem gefur út áritanirnar fyrir Íslands hönd.Virkilega flott hjá þeim í sendiráðinu og skemmtilega stund og í alla staði til fyrirmyndar.Innan sendiráðsins eru þetta víst miklir tilhlökkunar dagar því það er svo mikil gleði yfir öllu.Sigga Bára og Guðmundur „ besti vinur“ lék sér saman og fengu marga gesti til að vera í feluleik við sig og þá var bústaður sendiherra undirlagður fyrir þau í þeim tilgangi. Auður Edda hins vegar var í sínu besta formi og það liggur fyrir að það er óþarfi fyrir hjónin að eiga eitthvað world class kort það er nóg að ætla að sér að elta dömuna sem fór amk 300 ferðir milli hæða og taldi tröppurnar ýmist á kínversku eða var að apa eftir íslensku tölunum. Hún var bara hlaðin orku og stoppar ekki sú stutta, alltaf á fullu og brosir út í eitt og svo eltum við og gefum henni fæðu til að hún geti nú örugglega haldið áfram. Hún fór algjörlega á kostum en var líka rosalega þreytt þegar heim var komið. Núna erum við byrjuð að pakka og gera klárt því á morgun er síðasti dagur, við förum í dýragarðinn og síðan í smá hádegisverð síðan er það loka pökkun.Brói og Edda ætla að fara í golf með Jóa og Jónu, ekki slor að hafa það á ferilskránni að hafa spilað golf í Kína. Það er ekki hægt að þakka þeim hjónum nægjanlega fyrir frábæran félagsskap,óendanlega þolinmæði og gleði.


Í dag á Olli afi afmæli sem hefði orðið 77 ára og langamma Bína hefði orðið 100 ára í dag. Hugur okkar eru hjá þeim ástvinum okkar sem hafa kvatt þennan heim.

Bless í bú

12 ummæli:

Ósk Reynalds sagði...

Takk fyrir frábæra fólk að leyfa okkur hér heima að fylgjast með ykkur. Dásamlegar frásagnir og frábærar myndir. Ég tek undir það að hugsa til þeirra ástvina okkar sem farin eru við verðum að varðveita minningu þeirra meðan við tórum sjálf. Við Þórhildur Ýr áttum góðan tíma saman í dag, veit að ykkar er beðið með óþreyju. Gangi ykkur vel á heimferðinn, farið varlega með djásninn ykkar. knús frá. Ósk frænku

Nafnlaus sagði...

Yndislegt að sjá hamingjuna á myndunum já farið að koma heim þetta er komið gott:))

Kissess í bú ykkar frá þórhildi Hrafnkeli og Gunnu auðvitað ;)

Nafnlaus sagði...

Maður hrekkur til baka í minningjasjóðinn að sjá myndirnar úr veislunni hjá sendiherranum, e-ð svo stutt síðan við vorum þarna en samt bráðum 2 ár! :-)
Gaman að sjá fleiri tilvonandi Íslendingum bregða fyrir! :)

K.Kv
Sigga og familí

aslaug & orn sagði...

Nýustu fréttir úr hverfinu:
Vinkona Sigríðar Báru fékk systur

Nafnlaus sagði...

Mikið verður gott að fá ykkur heim!!! Þórdís var viss um að þið kæmuð á morgun...en þarf víst að bíða aðeins lengur eins og við hin.
Brói flottur við flygilinn - hvað var spilað?
Mikið verður gaman að Auður Edda skuli vera svona mikill orkubolti - þau verða fín saman Auður Edda, Iðunn og Eyþór ;)
Góða ferð heim elsku öll 6 talsins. Við hlökkum ólýsanlega til að sjá ykkur.

Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir og greinilegt að allir skemmta sér vel.
Þessi vatnaveröld í verslunarmiðstöðinni er greinilega málið - amk. á þessum árstíma.

Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára

Nafnlaus sagði...

Það fyrsta sem Matthildur sagði í morgun....nánast áður en hún vaknaði var: Sigga Bára kemur heim á morgun !!!!

Góða ferð kæru vinir ! Það verður ÆÐISLEGT að fá ykkur heim en ekki laust við að maður þurfti smá afvötnun af þessari heimasíðu ;-)

Takk fyrir að hafa verið svona dugleg að skrifa skemmtilegar fréttir og sýna okkur myndir af sætustu systrunum og hamingjusömu foreldrunum !

Sjáumst fyrr en síðar
Kristín, Gústi, Matthildur og Karólína

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með hvert annað, Auður er greinilega ótrúlega skemmtilegur karakter. Gangi ykkur allt vel. Rós og kó

Nafnlaus sagði...

Góða ferð heim elsku þið! Ég hlakka rosssssssalega til að sjá ykkur.
Knús og kossar.
Þóra

Nafnlaus sagði...

Það er ekki eðlilegt að sitja á hverjum degi í vinnunni, fyrir framan tölvuskjáinn með kökkinn í hálsinum og kjánalegt bros á vörunum á meðan maður skoðar myndir af flottum systrum.
Gott að þið eruð að koma heim. Hlökkum mikið til hitta ykkur og góða ferð öllsaman!!

Bestu bestu

Álfrun & co

Nafnlaus sagði...

Gosbrunnamyndirnar flottar. Ég treysti því að Brói hafi tekið eitthvað sígilt sænskt vísnalag á píanóið, í anda uppáhaldssjónvarpsþáttar okkar, Allsång på Skansen.
En góða ferð heim öllsömul og hlökkum til að sjá ykkur!
palli

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda, mikið er nú búið að vera gaman að fá að fylgjast með ævintýrinu ykkar - þúsund þakkir fyrir það :) Góða ferð heim á morgun, hlakka til að sjá ykkur við tækifæri í Mosó :)
Bestu kveðjur og knús, Unnur V