miðvikudagur, júlí 21, 2010

Sú stutta heldur áfram að koma á óvart.

Það eru búnir að vera hreint út sagt frábærir dagar með Auði Eddu. Hún heldur áfram að koma okkur á óvart, er mjög skörp á því að fylgjast með og herma eftir, tók til dæmis fjarstýringuna af sjónvarpinu og beindi henni að réttu horni sjónvarpsins eins og stóra systir hafði verið að gera. Síðan tók hún fötin sín og braut þau bara nokkuð vel saman og vildi setja þau í skúffuna þar sem fötin eru geymd en toppurinn var samt þegar hún hafði haldið rusli í annarri hendi um nokkurt skeið og fór síðan með í ruslafötuna. Hreint út frábær dama sem vill hafa allt á sínum stað. Það má ekki gleyma því hversu frábært það er búið að vera að hafa Bróa og Eddu með okkur i þessari ferð.Þau eru ekki bara skemmtilegir ferðafélagar heldur einstakir vinir enda hefur ferðalagið verið svo skemmtilega að það er ólýsanlegt í alla staði en núna eru við samt nokkuð mikið farin að hugsa að komast heim í „okkar „ umhverfi en það eru bara 6 dagar því við komum þann 28 heim þá er ferðadagurinn langi sem hefst að morgni hér í Kína og líkur síðdegis þann sama dag á íslensku tímabelti ca 14 tímum síðar eða svo.


Systurnar sváfu vel í nótt og við urðum að vekja þær um hálf átta til að fara í morgunmat. Auður Edda vaknaði með bros á vör og Sigga Bára líka auðvitað. Við tókum okkur góðan tíma en fórum síðan með leigubíl að The Bund sem er strandlengja meðfram ánni Huangpu sem skiptir borginni í helstu hverfi. Hún er stór og mikil og upp hana sigla skemmtiferðaskip sem dæmi. Sagt er að sjái maður ekki þetta svæði meðan á dvöl í borginni stendur sé það svipað og að sjá ekki Forboðnu borgina eða Múrinn þegar dvalið er í Peking. Við tökum undir þetta, því strandlengjan er ótrúlega flott þar sem útsýnið er stórfenglegt með skýjakljúfum og minnismerkjum í allar áttir. Það er líka merkilega saga þarna að baki því þetta svæði er hluti af sögusviði hins svokallaða Opíum stríðs sem ríkti milli Evrópumanna og Kínverja síðari hluta 18 aldar ef við munum rétt. Verjum ekki tíma okkar að greina frekar frá því en kannski er það í takt við stöðu heimsins í dag að hús sem Bretar hertóku og notuðu sem bækistöð sína í þeim aðgerðum hýsir nú höfuðstöðvar Bank of China en Bretar eru á bak og burt sem fátækt lénsveldi sem fellur þeim vel. The Bund er í raun stórt göngusvæði sem í dag var yfirfullt af fólki sem notaði regnhlífar til að skýla sér frá þessu ca 40 stiga hita og sól og raka ekki má gleyma því. Við gáfumst upp eftir klukkustund, búin að drekka allt vatn sem tekið var með og orðin nær gegnsæ af svita svo það lak niður enni okkar. Þegar heim var komið í Kalda Húsið þá náðum við að láta Auði Eddu taka stuttan lúr. Í kvöld var svo farið á ríkisrekinn veitingastað sem mælt hafði verið með í ferðamannahandbók. Það var ólýsanleg upplifun, einkum að vita að Maó hafi líklega sjálfur valið matseðilinn – sérstaklega andarvængir og fætur sem við óvart pöntuðum en Gyða var við það að fara að naga eitt bein þegar það kom í ljós að þetta voru þessi fallegu fit sem breiddust út eins og blævængur sem Siggu Báru fannst voða töff að skoða nánar – þarna var Attenborough live!!

Síðan var gengin sama leið og fyrr í dag nema núna í kvöldblænum ásamt hundruðum þúsunda íbúa og ljósadýrðin milljónir Osrampera!!

Bless í bú

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alltaf gaman að heyra frá ykkur! Hvað á ég að baka fyrir skírnaveisluna? Er ekki farið að plana það??? Hlökkum til 28 júlí : )
Bína og co.

Ósk Reynalds sagði...

Frábærar myndir,,,vá ótrúlegar byggingar og lýsingar á kvöldin, en illa líst mér á hitastigið á nóg með þessi 15 stig sem eru hérna. Frábærar systur gaman að sjá hvað þær dunda sér saman. Auður Edda, ég sá það strax á fyrstu myndunum hvað hún er skýr segir gamla frænkan sem er reynslubolti í uppeldismálum og þar að auki með gráðu til að sýna....

Nafnlaus sagði...

Fegurð vex með hverjum degi sé ég á nýja unga tala nú ekki um þann eldri :)Frábærar myndir og vá maður sér svitann þokkalega hehehehhe frábærar myndir af Bróa og Eddu með sólhlífarnar...........svo æðislegt að vita að allt sé svona flott hjá ykkur í alla staði og það er nú þokkalegt að hafa B og E með í för þau eru auðvitað bara frábær.

Góða nótt til Kína og ég hlakka til morgundagsins e meira bloggi og myndum ..........Amen

kv. Þórhildur og co

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega gengur þetta allt vel fyrir sig. Stórkostlegt. Auður Edda geyslar af hamingju. Flott spennan og jarðaberið. Hún virðist elska bangsann sinn. Fattaði ekki sólhlífarnar, hélt að þetta væru regnhlífar ;)Guðmundur og Edda rokka feitt! Sigga Bára mín, rosalega hugsar þú vel um litlu systur þína. Allir ættingjar þínir og vinir á Íslandi eru rosalega stoltir af þér. Þetta er örugglega smá erfitt stundum, það er nú bara eðlilegt. Veist þú að mörgum krökkum finnst erfitt að eignast systkini. Rosalega er gaman að skoða allar fallegu myndirnar af þér og sjá fínu kjólana þína. Þú ert svo flott og falleg prinsessa.
Knús og kossa
KHS og co

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa svona skemmtilega pistla og setja inn myndir fyrir okkur hér heima sem eigum okkur ekkert líf núna annað en að fylgjast meðævintýraför ykkar :)
Yndislegt að sjá myndir af þeim systrum - yndisfríðar, glaðar og duglegar að takast á við nýjar aðstæður - hreint ótrúlegar báðar tvær.
Æðislegar myndirnar úr borginni -
bestu kveðjur til ykkar kæru vinir,
kv Díana, Hörður og Guðrún Edda

Nafnlaus sagði...

Eins og allir - alltaf að kíkja : ) Og svo brosir maður bara hringinn !! þetta er svo frábært!!! Litli gullmolinn, þvílíkt að finna öryggið í fanginu á ykkur.

Erum líka alltaf að hugsa til ykkar og sendum ykkur fullt, fullt af gleði- og hamingjukossum til Kína!
Kristín og kó

Nafnlaus sagði...

Alltaf gaman að kíkja hér og sjá myndir og frásagnir - frábærar stelpur sem þið eigið!

Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára

Nafnlaus sagði...

Síðan þeirra systra er orðin partur af daglegri rútínu hjá okkur Höllu Elísabetu. Komum heim og dáumst að nýjum myndum af fegurðardísunum!

Kærar kveðjur yfir hnöttinn

Álfrún&Halla

Adda og Óskar sagði...

kæru nágrannar
til hamingju með litlu dömuna. Hún er dásamleg:) gaman að skoða þessar flottu myndir af þeim systrum. Það verður gaman að fá ykkur aftur á hofteginn
Adda og Óskar

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Frábært að sjá allar flottu myndirnar og greinilegt að hitinn er mikill, nógur var hann í Oktober sl.

Ég vissi vel að " Brói væri ekki skemmtilegur ferðafélagi" :-) en vinur er hann sannur og kona hans hún Edda alveg sæmileg líka.

Gaman að sjá að allir brosa og fjölskyldan öll umlykin hamingju og gleði. Biðjum að heilsa úr fumheimum Grafarholts
Hrafnkell og Þórhildur O

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda, Guðmundur og Edda,
hjartans hamingjuóskir með yndislega dóttur, litlu systur, frænku og nöfnu. Undun að sjá hve Auður Edda er glaðleg á öllum myndum og ekki annað hægt að sjá en að hún sé jafn himinlifandi með ykkur sem þið með hana - alveg frábært að sjá.
Pistlarnir ykkar eru svo frábærir og myndirnar setja auðvitað puntinn yfir i-ið.
Bestu kveðjur frá Sollu og Gunna.

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda, Guðmundur og Edda,
hjartans hamingjuóskir með yndislega dóttur, litlu systur, frænku og nöfnu. Undun að sjá hve Auður Edda er glaðleg á öllum myndum og ekki annað hægt að sjá en að hún sé jafn himinlifandi með ykkur sem þið með hana - alveg frábært að sjá.
Pistlarnir ykkar eru svo frábærir og myndirnar setja auðvitað puntinn yfir i-ið.
Bestu kveðjur frá Sollu og Gunna.

Nafnlaus sagði...

Sérlega er gaman að sjá ykkur fjölskylduna blómstra í Shanghai. Yndislegar myndir af yndislegum skottum í fallegri borg. Og svo mikil gleði! :) Frábært að fylgjast með ykkur!

Hlýjar kveðjur,
- Ingibjörg, Jónas og Kría.

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára - hjartanlega til hamingju með hana Auði Eddu. Ég var að finna bloggsíðun ykkar og er búin að lesa hana upp til agna með kökk í hálsinum og tár á hvarmi :o) Þetta er svo dásamlegt og frábært hvað það gengur vel með systurnar báðar. Ég er alveg með ykkur í anda í þessu frábæra landi. Verð að viðurkenna að ég er soldið spæld að komast ekki í myndirnar - er að drepast úr spenningi yfir að fá að sjá Auði Eddu og þær systur saman. Hlakka endalaust mikið til að halda áfram að lesa næstu daga. Bestu kveðjur til ykkar allra og gangi ykkur áfram vel.
Ásta í sveitinni (aminoff@simnet.is)

Nafnlaus sagði...

Við erum að leggja af stað á ættarmót í Dýrafirði. Fylgist með gangi mála gegnum ættingja. Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur KHS, Skapti & co