fimmtudagur, júlí 15, 2010

Missti tönn á Kínamúrnum

Kínamúrinn skoðaður.Fátt er það í Kína sem er betur þekkt en Kínamúrinn sjálfur. Það er alveg ólýsanleg tilfinning að sjá múrinn og hvað þá að eiga tækifæri á því að klífa hann og ganga.Að þessu sinni gekk fremur hægt hjá okkur að komast á leiðarenda, fyrst tókum við reyndar einn hring um Olympiusvæðið og Hreiðrið er magnað að sjá auk þess sem blái ísklumburinn sem er sundstaðurinn er magnaður að sjá.Kínverjar mega eiga það að þeir greinilega leyfa arkitektum að framkvæma hugmyndir og þessi gamla ímynd af köldum gráum kubbahúsum á amk ekki við um Peking. Okkar tilfinning er að þetta er mögnuð borg sem flestir ættu að setja sér markmið um að heimsækja.En þetta var útidúr því við vorum á leiðinni að skoða kínamúrinn.Það var mikil umferð og tafir þannig að ferðinn uppeftir sóttist hægt auk þess sem það byrjaði að rigna í þokkabót.Heldur var því útsýnið dapurt en það varð einhvern veginn magnþrungið engu að síður.Þessi tilfinning að ganga á þessu mannvirki sem byggt var af mörgum höndum en fábrotnum verkfærum og hlykkjast um hæðir og hóla. Við fórum ansi hátt og nutum þess í botn. Hápunkturinn var síðan þegar Keisaraynjan eftir nokkra áskorun kippti úr sér einni tönn því það er flott að vera fyrst til að missa tönn á múrnum, toppið það !. Síðan var gert stutt stopp og einn góður kínverskur bjór eða tveir drukknir og smá leikið sér sem ferðamenn og keypt aðeins af smáhlutum sem tengjast landi og þjóð. Heimferðin gekk mun betur hjá okkur en við vorkenndum mörgum sem við mættum sem sátu fastir á leiðinni vegna umferðartafa. Eftir að í borgina var komið þá fórum við á veitingastað sem í minningu okkar var með bestu Pekingönd sem við höfðum fengið og minningin var rétt, þvílíkur unaður. Þetta er staður sem við höfðum farið á 2005 og verið svo forsjál að taka upplýsingar með okkur.Við fengum gott herbergi fyrir okkur og mæltum okkur mót við Hrund, Skarpa og Guðmund. Góður matur og góður félagsskapur, klikkar ekki.Eftir það þá var haldið í smá sýnisferð um borgina að kvöldlagi. Við fórum á stað þar sem næturmatur er eldaður á götu úti og þar mátti fá sér snáka, engissprettur, silkiorma svo fátteitt sé talið, lyktin oft óbærileg en forvitnilegt að sjá svona framandi grillpinna. Eitthvað rafmagnsleysi var í bænum þannig að torgið og jafnvel Maó máttu njóta kvöldsins án lýsingar sem eflaust er ekki að gerast oft. En núna er að nálgast miðnætti og við höldum í koju þreytt og sæl eftir daginn. Á morgun ætlarSigga Bára í Sædýrasafnið en það verður síðasti dagur í Peking í bili en á laugardaginn verður flogið í heimaborg Auðar Eddu – Shanghai.


Bless í bú!!

14 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hér í Blómvangi er setið á refresh takkanum frá kl. 14 á daginn en þá er klukkan orðin 22 hjá ykkur og þá vitum við að von er á færslu bráðlega...erum svo spennt !!

Til lukku Sigga Bára með tannmissinn....verst að Matthildur vinkona þín gat ekki verið með þér í þetta skiptið :-)

Eins og alltaf, frábærar myndir og við sáum að kerran er komin í leitirnar ;-)

knús og kossar frá okkur í blíðunni, erum að fara að græja okkur fyrir útileguna á morgun.

Blómvangsstelpurnar og strákurinn sem er að detta í frí

Erna Hrund sagði...

Til hamingju Sigga Bára með tönnina!! Sakna þín mikið bleiki sandurinn er ekki eins án þín
KNÚS****

-Halla Elísabet frænka

p.s. Siggi Valur biður að heilsa:)

Nafnlaus sagði...

Er hægt að toppa að missa tönn á Kínamúrnum ?? Varla....
svolítið svakalega myndirnar af matarmarkaðinum, ótrúlegt að sjá þetta :)
Frábært að fylgjast með ykkur og fyrsta verk á sunnudaginn þegar að heim er komið, er að skutlast í tölvu og lesa og skoða myndir.
Eigið frábæra helgi og gangi ykkur vel á leiðinni til Shanghai

knús og kossar
STína, Nonni og Friðrik Daði Deb

Nafnlaus sagði...

hæhæ gaman að sjá ykkur á myndum og vona að þið hafið keypt ykkur grillpinna með þessum vibba bara til að smakka er það ekki??

Hér heima geðveikt veður búin að vera í sólbaði frá 10-18 og með bullandi hausverk enda álpappirinn mikill vinur!!!!!!!!!!! ááii

Nema go go go að hafa það gaman öll sem eitt njótið vel:)))
kv. ........Ein brún hver er það!!?

Nafnlaus sagði...

flottar myndir hjá ykkur. Fór ekki tönnin milli steina í múrnum? Skilja eitthvað eftir í Kína. Guðumundur fer á kostum Kína en ég dauð öfunda þau af alvöru kommunista húfum.

Hermann

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda!

Hjartans hamingjuóskir með stóra ævintýrið ykkar! Hún er svoooo yndislega falleg litla daman ykkar sem bíður í Shanghai - og skemmtilega lík systur sinni! Og innilegar hamingjuóskir með fallega nafnið hennar! Lífið er gott.

Frábært að komast í tölvu til að kíkja á ferðalagið ykkar - og lesa stóru fréttirnar um fyrstu tönnina á Múrnum! Eftirminnilegt!

Eigið góðan dag á morgun og góða ferð til Shanghai.

Hlýjar kveðjur og sterkir straumar,
- Ingibjörg, Jónas og Kría

Nafnlaus sagði...

Jess Sigga Bára, til lukku, hvað varð svo af tönninni?
Kínamúrinn er alltaf jafn magnaður, við höfum verið þarna í fimbulkulda og alveg í hina áttina, skiptir ekki máli, tilfinningin er mögnuð! :-)
Horfði með hryllingi á miður geðslega grillpinna, allavega suma...!:)

Bestu kveðjur og alltaf styttist í fallegu Auði Eddi jin...
Sigga, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Nafnlaus sagði...

Elskulega fjölskylda,
Frábært að fylgjast með Kínareisu ykkar. Þetta er örugglega mikið ævintýri hjá ykkur. frábærar myndir og við á Hofteignum fylgjumst spennt með áframhaldandi skrifum.
Knús&kram, Adda, Óskar og fylgifiskar
PS. Dreki biður sérlega vel að heilsa Siggu Báru

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku systir og fjölskylda. Við komum heim úr ferðalaginu í gærkvöldi svo nú er ég búin að lesa ferðasöguna sem komin er á netið og skoða myndirnar - Olgeir tók sér góðan tíma í að ráða í hvaða dýr væru á þessum annars fínu grillspjótum! Ég verða bara spenntari með hverjum degi sem líður og það verður gaman að sjá fyrstu myndir af ykkur með Auði Eddu koma inn.

Til hamingju Sigga Bára með tannmissinn og það uppi á sjálfum Kínamúrnum...það er ekki að spyrja að því! Eitthvað hlýtur tannálfurinn að borga fyrir svona tönn sem fer undir koddann enda ekki um neina ómerkistönn ræða í þetta skipti - gastu ekki misst fleiri í einu?

Knús og kossar til ykkar allra og Bróa og Eddu líka! Góða ferð til Auðar Eddu!
Bestu kveðjur frá Olgu og famelíu :)

Nafnlaus sagði...

Kæru vinir,
takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með. Þið eruð frábærir myndasmiðir. Katrín fylltist lotningu þegar hún sá myndina af Siggu Báru og tönninni. Gangi ykkur vel-nú er svo stutt þangað til þið fáið Auði Eddu í fangið!
pussar och kramar,
Ágústa, Floris og Katrín

Nafnlaus sagði...

Endalaust gaman að skoða myndirnar af hinu dásamlega Kína -
Og fögur var fjölskyldan þegar hún lagði af stað til Kína en svei mér þá mér finnst þið verða fegurri og fegurri með hverjum deginum sem líður ...... enda ótrúlega stutt í Auði Eddu sem sennilega á sök á þessari brosmildu fjölskyldu sinni.
Til hamingju með tannmissinn duglega Sigga Bára - ekki hægt að toppa þennan tannmissi :)
Gangi ykkur vel í næsta ferðalagi og og góða skemmtun í sædýrasafninu.
kv. Día, Hörður og G.E.

Nafnlaus sagði...

æðislegt að fylgjast með:) Góða ferð í dag, hlakka til að sjá myndir á næstu dögum!! Allt er gott að frétta úr RVK, þið skilið því til mömmu og pabba:) Knús Íris Huld og co

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með tönnina Sigga Bára :)
Biðjum að heilsa öllum.

Kveðja Bjarni og Hafrún

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta. Eins og á fleirri bæjum er beðið með óþreyju eftir nýjum fjölskyldumeðlimi - Telma ætlar að verða enn betri stóra frænka í þetta skipti og Iðunn mun kenna frænku sinni ósiði af bestu sort : ) Hugsum til ykkar úr sumarblíðunni.
Bína og co