Síðasti dagurinn í Peking í bili.Það er farið að styttast verulega veru okkar hérna í Peking í bili núna er verið að leggja lokahönd á pökkun á öllu og mikil spenna í gangi hjá öllum.Dagurinn var frábær í alla staði, við fórum með dömurnar með hópinum í dýragarðinn sem er frábær a.m.k fyrir okkar dömur sem nutu þess í botn. Það var samt full stuttur tími og reyndar sáu við ekki mikið meira en óæðri enda af Pöndunum en við ættum að geta gert okkur í hugarlund hvernig þær líta út í raun. Brói og Edda fóru í golf með Jóa og Jónu og þótti það frábært í alla staði þótt hitinn hafi verið góð afsökun fyrir því að skorið sé ekki gefið upp opinberlega. Við viljum þakka öllum fyrir góða strauma og skemmtilegar athugasemdir og allan þann hlýhug sem okkur hefur verið sýnd meðan við höfum verið hérna í Peking. Svo sjáumst við og heyrumst þegar við erum komin á leiðarenda heim sem verður fljótlega. Engar myndir verða settar inn í dag – hér er setið og spjallað. Kærar þakkir Jói og Jóna fyrir okkur.
Bless í bú
þriðjudagur, júlí 27, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
arrrrrrrrrrgggg gleði góða ferð öll sem eitt frá Holtinu
Góða ferð heim kæra fjölskylda!
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þessari ævintýraferð ykkar - búið að vera yndislegt að upplifa þetta með ykkur.
Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára
Elsku fjölskylda
Góða ferð og vonandi gengur allt vel í því langa ferðalagi sem framundan er. Höfum verið á faraldsfæti en fylgst með öllu ferðalaginu þegar við höfum komist í netsamband. Það verður dásamlegt fyrir ykkur að komast heim í kotið með Auði Eddu og ykkur öll. Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þessu ævintýri ykkar sem við þekkjum svo vel. Þetta er búin að vera dásamleg ferðasaga.
Kær keðja frá okkur,
Inga, Gummi, Þórunn Jenný og Eva Margrét.
Knús og kveðjur til ykkar ríka fjölskylda!:)
Gígja og María Mist.
Elsku Sigga Bára
velkomin heim - til hamingju með litlu systur þína hún er sæt.
Flottur pandabjörn sem þið tókuð mynd af.
Frá Guðrúnu Eddu
Skrifa ummæli