laugardagur, júlí 17, 2010

Kominn til Shanghæ og biðinn styttist ótrúlega mikið

Við fórum fyrir hádegi í dag frá Peking, Jói keyrði okkur. Þetta er bara ólýsanlegt hvernig þau hafa tekið á móti okkur og stjanað við okkur frá morgni til kvölds! Við vorum komin farsælega á leiðarenda síðdegis í dag.Ferðin gekk vel, flott flug með breiðþotu þótt flugið sé ekki langt eða rétt tæpar tvær stundir. Við fengum smá sjokk vegna þess hversu mikill raki er hérna og miklu meiri en í Peking.Þetta eru óíkar borgir hafa báðar sinn sjarma – Peking er meira Kína.Þessi vestrænni og væri samsetning þeirra sem þú mætir með öðrum hætti þá teldir þú þig vera á Manhattan. Þetta er svo flott borg að það er alveg ótrúlegt skýjaklúfar eru á allar hliðar og byggingar virkilega flottar og ekki miklar það þegar líða tekur á kvöld og lýsingar taka völdin. Eftir smá streð með herbergin þá fengum við strax eitt flott herbergi og vonandi annað á morgun(fyrir Bróa og Eddu) en þau sem við fengum fyrst úthlutað voru ekki sæmandi fyrir 5 stjörnu hótel. Stefnan var síðan tekin á bæinn eftir að hafa fengið leiðbeiningar frá starfsmönnum um hvar væri að finna góða staði fyrir mat og drykk.Við fengum okkur góðan göngutúr og enduðum síðan á góðum og flottum veitingastað og sættum dýrindis máltið utan dyra. Við skáluðum fyrir Dóru frænku því hún hafði alltaf stutt okkur dyggilega í orði og verki enda stórkostlega kona eins og allir vissu sem henni kynntust.Sigtryggur hafði samband við okkur fyrir brottför og vildi fá að bjóða okkur í góðan kvöldverð því Dóra hafi fram á síðasta dag talað og hugað svo mikið um þessa ferð okkar.


Stefnan á morgun er síðan tekin á Expo til að gera amk heiðarlega tilraun til að leiða hugann að einhverju öðru en mánudeginum.Við fengum að vita í dag að við fáum Auði Eddu í hendur á mánudagsmorgunn, við erum ekkert eðilega spennt eins og gefur að skilja. Lina fararstjóri lofar góðu!

Bless í bú!!

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhhhhhhhh æði að lesa þetta allt :)) já það styttist í ungann nýja vá vá .......GLEIÐI GLEÐI .......bið að heilsa öllum og best að nýta álpappírinn aðeins betur úfffff heitt heitt hér á bæ ehhehehehe

Kv. Holtið græna og góða andrúmsloftið þar!!!!!!!!!!! þið fattið

Nafnlaus sagði...

Frábært hvað allt gengur vel og vonandi fá Brói og Edda gott herbergi á morgun. Við leggjum í hann á morgun, verðum komin til Siglufjarðar annað kvöld. Tengdamamma er búin að heimsækja Bjössa í Kjöthöllinni þannig að það er allt tilbúið! Húsið á Siglufirði er með þráðlausu neti þannig að við eigum vonandi auðvelt með að fylgjast með þessum yndislega mánudegi sem framundan er.
Enn og aftur knús frá mér til ykkar.
Þóra

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára. Takk fyrir skemmtilega ferðasögu og gangi ykkur sem allra best!
Kær kveðja frá Heiðrúnu & Co

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra hvað allt gengur vel og Sigga Bára er ótrúlega dugleg :) Nú eruð þið í sömu borg og Auður Edda, ekki á morgun heldur hinn :)
Bestu kveðjur og knús, Unnur Vald

skuli sagði...

Fylgjumst spennt með! Bestu kveðjur og straumar til ykkar.

Nafnlaus sagði...

Frábært að fylgjast með:) Bíðum spennt eftir næstu myndum..getum varla beðið eftir að sjá litlu frænku. 1000 knús og kossar. Íris og Einar:)

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að þið eruð komin til Shanhai - þetta styttist!
Gangi ykkur vel á morgunn!

Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára

Nafnlaus sagði...

Halla Elísabet vill skoða myndir af ykkur í tölvunni alla daga! Við erum líka að verða mjög spennt og sendum ykkur góða strauma fyrir morgundaginn!
Bestu Bestu
Halla Elísabet & Álfrún

Nafnlaus sagði...

Flott hjá ykkur! Anda inn - anda út - sofa eins vel og hægt er fyrir morgundaginn : )
Kv
Bína og co

Nafnlaus sagði...

úúúú....á mánudagsmorguninn...það þýðir að þegar við förum að sofa í KVÖLD eruð þið að fara að fá hana í fangið.....GEGGJAÐ !!

Elsku litla fallega Auður Edda Jin, ef þú bara vissir hvað biði þín. Þetta verður erfitt en þegar þú ert búin að ná þér kemst að því að þú ert búin að eignast bestu fjölskyldu í heimi sem á eftir að elska þig út af lífinu....og fullt af vinum líka sem bíða spennt eftir að fá að hitta þig ;-)

Gangi ykkur vel elsku vinir, verðum með ykkur í anda alla leið !

Kristín, Gústi, Matthildur og Karólína

p.s. útilegan var fín en mikið rok, Matthildur var svoldið vængbrotin að hafa ekki bestu vinkonu sína með en fann samt einhverja til að leika við ;-)

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur rosalega vel og hlakka til að sjá myndir af flottustu systrum í heimi!
Gerður

Nafnlaus sagði...

Velkomin til Shanghæ ..... get rétt ímyndað mér líðanina og spenninginn núna .... ótrúlega stutt í hana dásamlegu Auðu Eddu ykkar.
Bestu kveðjur og gangi ykkur vel á morgun.
Díana og co