sunnudagur, júlí 18, 2010

Fjölskyldan stækkar á morgun, þvílík spenna.

 Það er óhætt að segja að spennan sé að magnast og tilhlökkun okkar er mikil, loksins eftir bið í fjögur ár erkomið að því að fjölskyldan stækki og við fáum litlu Auði Eddu í hendur. Til að dreifa huganum aðeins fórum við að skoða Expo sem er hérna í Shanghæ, Jói hafði bjargað okkur(enn á ný!) aðgengi að Íslenska skálanum og gott betur. Hreinn tók á móti okkur og gaman var að hitta þá Íslendinga sem þarna vinna og starfa og mikið ofboðslega var þetta flott hjá þeim. Í samanburði við mörg önnur lönd sem við sáum þá er skáli íslands einn sá alflottasti og mest Cool svo notuð sé besta og nærtækasta samlíking. Biðröðin til að skoða skálann hlykkjast um utan við hann og þótt hann sé ekki efst á lista þeirra vinsælustu þá bíða menn klukkustundum saman. Það er þess virði og við eigum að vera stolt af því að taka þátt í þessu, það upplifir maður og finnur þegar maður kemur á staðinn.Það eru víst ekki nema um 500 þúsund sem fara í gengum sýninguna á dag en okkur láðist að spyrja hversu margir á dag heimsækja okkar skála. Hitinn var reyndar alveg að gera útaf við okkur rétt undir 40 stigu, sól og mikill raki (úðað var yfir fólk vatni til að kæla á vissum stöðum, sjá myndir). Við vitum ekki hversu margir lítrar af vatni fóru í gegnum líkamskerfið en þeir voru amk margir. Brói kom með læknisfræðilega skýringu á því hvernig við getum séð að við séum búin að ná jafnvægi á vatnsinnihaldi líkamans, en ég man það ekki betur en svo að það átti að vera eitthvað svipað á litinn og ljós bjór og þann lit þekkjum við nú bara ágætlega núna. Eftir góðan dag á Expó tókum við okkur smá hlé á herberginu og síðan út að borða.


Þegar þessi orð eru sett inn á vefinn er klukkan að ganga 23, Sigga Bára ljósið okkar og hetjan í þessari ferð sofandi uppi í rúmi og einhversstaðar annarsstaðar í þessari borg hvílir lítill ungi í síðasta sinn á sínu heimili og nýtt upphaf að hefjast í hennar lífi. Megi allir englar varðveita hana þessa nótt og allar nætur sem á eftir koma.

Elsku Auður og Heiðrún til hamingju með daginn!!

Bless í bú

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já á morgun er dagurinn stóri og við orðin ansi spennt fyrir ykkar hönd :)) sofið vel í nótt .........hugsum til ykkar allra

kv. Þórhildur brúnkaka og geislinn ;)

Ósk Reynalds sagði...

Gangi ykkur vel, þetta er orðið ótrúlega spennandi. Hlakka mikið til að sjá fyrstu myndirnar af þeim systrum...gaman..gaman. kv. Ósk

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir frábærar frásagnir og myndir, svo gaman að skoða og lesa!!:)
Og hugsa sér að litli engillinn er rétt handan við hornið, alveg að verða ykkar, dagurinn verður miklill gleði-dagur þó eflaust verði hann strembinn líka!

Bestu kveðjur
Sigga, Bjössi, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Erna Hrund sagði...

Ég get ekki líst því hvað ég hlakka mikið til að koma heim úr vinnunni á morgun og kíkja á bloggið ykkar, þá er venjulega komið nýtt blogg og myndir og tilhugsunin um að sjá elsku nýju frænku mína í faðmi ykkar yndislegu foreldra er ÆÐISLEG! ég get ekki beðið!!! Gangi ykkur ótrúlega vel á morgun dagurinn sem er loksins að koma eftir öll þessi ár, njótið dagsins og takið nóg af myndum! Hugsa til ykkar***

kv erna hrund skaðbrennda:)

Nafnlaus sagði...

Já hæ hæ, ekki er nú verra að hafa Expó sýningu til að dreifa huganum á meðan beðið er, ég hugsaði nú aðeins 10 ár aftur í tímann á Expó þá. Spennan hlýtur að vera orðin mikil, vonandi ekki óbærileg samt. Bestu kveðjur til Kína
Auður og Ásta

Nafnlaus sagði...

Jæja þá er komið að þessu hjá ykkur elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára. Við erum spennt þannig að við getum varla ímyndað okkur hvernig tilfinning þetta er fyrir ykkur. En við erum komin til Siglufjarðar. Hamborgararnir úr Kjöthöllinni gleymdust ásamt rækjunum sem áttu að fara í rækjusalatið. Hér er svartaþoka en vonandi léttir til á morgun. Húsið er frábært þótt það vanti nokkra góða prjónastóla. Það væri gaman ef allir væru hér en það er ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn með ykkur og ykkar fjögurramanna fjölskyldu! Nóg af blómum til að týna af litlum fallegum stelpum.
Við hugsum til ykkar á morgun.
Knús og kossar
Þóra, Hemmi, Siggi Valur og amma og afi.

Nafnlaus sagði...

Vá maður fær bara tár í augun og gæsahúð þegar maður les þetta. Við hugsum til ykkar og getum ekki beðið eftir næstu myndum.. Knús Íris og Einar

Nafnlaus sagði...

ekki þurrt auga á Grettisgötunni... hugsum til ykkar á þessum fallega degi. Auður Edda gæti bara ekki eignast betri fjölskyldu í öllum heiminum!!
Heiðrún, Gestur og co

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að sjá myndir á morgun knús arndis

Nafnlaus sagði...

OMG.....Today is Audur, stendur á síðunni ykkar !!

Í dag er dagurinn...enda klukkan orðin 7 hjá ykkur og þið örugglega vöknuð með hnút í maganum af tilhlökkun, spenningi og kvíða !!!
Ég á ekki eftir að geta farið að sofa á eftir....eða verð allavega vöknuð snemma í fyrramálið til að tékka á nýjum myndum :-)

Knúsið Siggu Báru sérstaklega mikið frá okkur hérna í Blómvangi...hún er hetja....og knúsið líka litlu Auði Eddu frá okkur því hún er líka hetja !! Já og auðvitað eru foreldrarnir líka hetjur..hehe
Við í Blómvanginum

Nafnlaus sagði...

Elsku systir, Kalli og Sigga, núna er klukkan komin yfir miðnætti hér heima og hugurinn er hjá ykkur. Þið eruð á þessari stundu örugglega löngu vöknuð (ef þið sváfuð þá nokkuð af ráði :) og komið er að stóra deginum. Ég sagði það við þig Gyða, áður en þú fórst að ég verð með ykkur í anda. Ég hugsa mikið til ykkar og velti fyrir mér hvernig ykkur líður og hvað þið eruð að hugsa fram að þeirri stund sem þið fáið Auði Eddu til ykkar. Lokaorðin fyrir sunnudagsbloggið gefa mér einhverja hugmynd um það ....sit svo bara skælandi og pikka inn í gluggann.

Við bíðum spennt eftir myndum og fréttum frá fyrsta degi Auðar Eddu með mömmu sinni, pabba og stóru systur.

Guð geymi litlu frænku og ykkur öll.
Kveðja, Olga.