.Jæja þá er fyrsti dagurinn að lokum kominn og ekki er laust við mikla gleði hjá okkur eftir hann. Fyrri plön voru lögð til hliðar vegna veðurs og í stað fyrir skoðunarferð fórum við verslunarferð sem var í raun ekki síður upplifun.Dömurnar í hópinum fengu kúrs eða skemmri skýrn hjá Jónu í hínum ýmsu verðum, hvað væri boðlegt að greiða fyrir sokkaparið eða undirföt áður en við fengum okkur góðan göngutúr á Silkimarkaðinn eða prúttmarkaðinn eins og réttar væri að kalla staðinn. Þetta var ótruleg upplifun, aftur hjá okkur sumum, en í fyrsta sinn hjá öðrum. Tilboðin yrðu ekki eingöngu á góðum flíkum heldur fengu „yngri „ menn og síðan þeir elstu „Brói“ tilboð sem voru frekar freistandi og verða ekki skýrð á prenti. Þessir miðaldra með barnavagna þóttu hins vegar ekki fýsilegir kostir enda hlóðst á vagninn pokar með ýmsu innihaldi.Sigga Bára var nú ekki að stressa sig á þessu heldur tók sér góðan lúr um miðjan dag enda leiðinlegt að fara hæð úr hæð og sjá alltaf það sama. Kúrs Jónu gengur út á að greiða amk ekki meira en ca 30% af uppseldu verði.Við teljum eftir daginnað þeir sem fæddir eru í Vestmannaeyjum eigi betur með að aðlagast þessum siðum enda vita allir sem vilja vita að þar ríki ekki sama sýn á réttarkerfið og á „norðureyjunni“. Misjöfn gleði ríkti meðal sölukvenna þegar hópurinn birtist með Jónu gleði hjá mörgum yfir væntanlegum kaupum en .líka greinilegt að þær vissu að það yrði ekki auðveldur gróði. Jóna er þvílikt á heimavelli hérna. Á heimferðinni voru við síðan elt uppi af einhverjum sölukonum sem höfðu ótrúleg tilboð á sokkum sem féll í góðan jarðveg eftir nokkuð mikið samningaþref.
Frábært lok á deginum var síðan kvöldverður á Thai stað sem er nýlega opnaður í hverfinu sem við búum þar sem við nutum veitinga og drykkja fyrir sanngjarnt verð á íslenskan mælikvarða. Yngstu meðlimir hópsins þau Gumundur (sonur Hrundar og Skarpa) og Sigga Bára fóru á kostum og hafa skemmt okkur eldri með skemmtilegum tilsvörum og sýn á hina ótrulegustu hluti. Þau luku síðan deginum með tilheyrandi hætti og horfðu á Kung fu Panda.
Frábær dagur að kvöldi kominn og allir glaðir og samkvæmt „læknisráði“ þá þarf að fá sér einn drykkk, eða tvo fyrir svefninn meðan ákveðið er endanlega hvað skal skoða á morgun. Hvað það verður kemur í ljós í næsta pistli.
Bless í bú
mánudagur, júlí 12, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
12 ummæli:
Æðislegar myndir! Gaman að fylgjast með ykkur*** Gyða ég vil svo fara að sjá snúningana í hárinu eins og við æfðum okkur:D
****
Vona að þú massir inn nærfötum :)nike skóm og meiru til.....argggg væri nú til í að vera þarna og prútta eða sólargeislinn sem er góður í þessu. Biðjum að heilsa ég og Þórdís keppur no 1. sem er hjá mér í gistingu hún á enga aðra að!!!!
kv. úr Kristaníu grænu fersku
Gaman að heyra að þið séuð komin til Kína og að allt gangi vel. Spennan magnast dag frá degi, verður yndislegt þegar Auður Edda kemst í mömmu og pabba fang og getur farið að leika við fallegu og skemmtilegu stóru systur :)
Bestu kveðjur og knús, Unnur
Gaman að fylgjast með:) Njótið lífsins í botn. Kossar og knús til allra
kv íris og einar
Hæ hæ ... við Gummi liggjum hér yfir myndunum og spáum í "Af hverju fórum við ekki á þennan stað á kryddmarkaðinn" - fórum þangað reyndar 2005". En það er svo gaman að fylgjast með ykkur og við kíkjum á bloggið á hverjum degi og bíðum spennt eftir "stóra deginum"
Knús til ykkar allra
Inga, Gummi, Þórunn Jenný Qingsu og Eva Margrét Qiuxiang.
Hjúkket að þið eruð með lækni með í för sem getur ráðlagt ykkur með svona drykkju ;-)
Yndislegt að fylgjast með ykkur og erum við alltaf að hugsa um hvað þið séuð að gera núna og Karólína spyr reglulega um Gyðu sína og Kalla sinn;-)
Æðislegt að skoða allar mannlífsmyndirnar frá Kína þó ég hlakka nú meira til að skoða allar myndirnar af systrunum sætu eftir viku !!!
knús á færibandi !!
Kristín og kó
Mikið er gaman að lesa um ævintýrin ykkar - ég bið að heilsa á Silkimarkaðinn en þau hljóta að muna eftir mér þar sem ég verslaði aðeins 35 skópör þar :)
Ráðlegg þér Gyða mín að fylgja í einu og öllu ráðleggingum læknisins.
Gaman að heyra að duglega Sigga Bára er að njóta sín.
knús til ykkar
kv. Día, Hörður og G.E.
ps. Okkur langar mikið að fá að kíkja á myndir af ferðinni - ef þið leyfið aðgang viltu þá senda mér lykilorið á diana@hafnarfjordur.is
Frábært að fá að fylgjast með ykkur og þessu ævintýri, það væri ekki verra að fá að skoða myndirnar líka ;) (gerdurp@gmail.com)
Bestu kveðjur og eins og einhver sagði: "shop till you dropp"
Gerður
Gott að heyra að allt gengur vel og Sigga Bára er að njóta sín! Gaman að upplifa Peking frá örðuvísi sjónarhóli en þessum hefðbundna skoðunarferða pakka ;)
Okkur langar mikið að fá að kíkja á myndir líka, eruði til í að senda okkur lykiorð á jensogkristin@simnet.is ef við megum fylgjast með þeim.
Kv. Kristín, Jens og Katrín Lára
Gaman að heyra frá ykkur, njótið í botn og farið endilega eftir "læknisráði" ykkur hefur nú varla leiðst að fá tilboð á markaðinum....; ) kv. ósk frænka
Ég er svo spennt að ég get ekki komið orðum að því. Frábær skemmtun að lesa ferðasöguna og myndirnar láta mig iða í stólnum mínum og hugsa um hvar passinn minn er niður kominn.
Einhvern tíma skálum við aftur í svona stórum bjór í Bejing ... verður að gerast.
Hlakka svo til með ykkur,
Dóra
Ég er svo spennt að ég get ekki komið orðum að því. Frábær skemmtun að lesa ferðasöguna og myndirnar láta mig iða í stólnum mínum og hugsa um hvar passinn minn er niður kominn.
Einhvern tíma skálum við aftur í svona stórum bjór í Bejing ... verður að gerast.
Hlakka svo til með ykkur,
Dóra
Skrifa ummæli