mánudagur, febrúar 14, 2011

Hestar og fleira skemmtilegt


Það  er nú orðið nokkuð langt síðan við settum inn nýjar upplýsingar inná  síðuna  okkar. Afmælisveislan hennar Auðar Eddu gekk vonum framar og sú stutta var ánægð með daginn og ekki var gleði þeirra systra minni um jólin. Auður var reyndar hálf fegin þegar henni var sagt að jólasveinninn væri farinn aftur til fjalla. Gott að losna við þessa kalla úr byggð.
Farið er að síga á síðari hluta janúarmánaðar sem hefur verið viðburðaríkur hjá okkur. Mikið að gera afmælisveislur og ekki má gleyma upphafi skólagöngu hjá Auði Eddu sem byrjuð er í leikskóla. Hún er alsæl í skólanum og leikur við hvurn sinn fingur eins og sagt er.
Um helgina fóru við í heimsókn til Ásu og Gríms í hesthúsin en Sigga Bára hefur verið heilluð af hestum um nokkurt skeið. Og óhætt er að segja að heimsóknin í dag haf bætt um betur. Sigga fékk að fara reiðtúr með Ásu og sú var nú stolt á hestinum og hafði líka áður mokað út og aðstoðað við að setja hnakk og beisli á hestinn. Auður Edda fékk líka að setjast á bak og fannst gaman en vildi samt láta halda í sig, ekki alveg örugg með þetta.
Nú að lokum var að koma í ljós að Sigga er að fá þessar fallegu fullorðins framtennur. Frekar stolt enda fullt tilefni til.
Við reynum að vera duglegri að setja inn nýjar fréttir

sunnudagur, desember 19, 2010

Afmæli í dag






Það er búin að vera viðburðarrík helgi hjá okkur á Hofteigi. Hápunkturinn auðvitað að Auður Edda Jin átti 3 ára afmæli í dag 19. desember. Við tókum föstudaginn í lokaundirbúning en mikil undirbúningur hefur átt sér stað á heimilinu undanfarna daga og vikur. Það var sérstakt markmið okkar að hafa sem mest heimagert á boðstólum. Ákveðið hafði verið að taka forskot á sæluna og halda veisluna degi fyrr. Laugardagurinn rann upp frekar snemma og þá var hafist handa við að skreyta afmælistertuna og var fengin sérstök ráðgjöf frá Hrund við það verkefni og ekki sjáum við eftir þvi. Úr varð hið myndarlegasta jólatré, sem skreytt var með rauðum borðum og fullt af pökkum sem Sigríður Bára tók að sér að skreyta líka. Gesti tók að streyma að síðdegis og var mikið fjör hjá Auði enda „aueddaammalidaaag“. Eftir ljúfa afmælissöng undir öruggri stjórn Sigga Vals heyrðist mikill hávaði að utan og kom í ljós að Hurðaskellir var að leita inngönguleiðar í húsið öllum ungviði og mæðrum til mikillar gleði. Heimsókninn féll almennt í góðan jarðveg en afmælisbarnið sjálft virtist ósköp fegin þegar sveinninn fór brott og andaði léttar í kjölfarið. Hjónin á bænum voru bara nokkuð þreytt á því eftir annríkið og strangan dag og áttum verðskuldaða GT stund fyrir svefninn.

Afmælisdagurinn sjálfur rann síðan upp ekki síðri og eftir góða fjölskyldustund var haldið í sunnudagaskólann þar sem afmælisbarnið fékk að njóta sín undir góðri leiðsögn Siggu Báru. Halla Elísabet frænka kom síðan í heimsókn eftir kirkjustundina og náðu þær að leika sér vel saman og undirbúa sig síðan undir jólatréskemmtun með afa Val og ömmu Ernu. Það vantar ekki liði í dagskránna þessa dagana. Hjónin gátu leyft sér að ganga í kuldanum í miðbænum, skoða í búðir og láta sig dreyma, barnalaus í tvo tíma eða svo. Kvöldinu lauk síðan með myndarlegri matarveislu þar sem afi og amma og Erna Hrund komu til veisluborðs. Um að gera að taka smá forskot á jólaátið, þetta verður hvort sem er svo stutt „ þessi jólin „ Takk fyrir allar kveðjunar og gjafirnar kæra fjölskylda og vinir.

Mamma, pabbi og Sigga Bára eru mikið þakklát fyrir yndislegu afmælisdraumadísina!

Bless í bú

miðvikudagur, desember 01, 2010

Súkkulaði í morgunmat, klipping og hátíð í skólanum.





Það var eins gott að Sigga Bára var vel vakandi í morgun en það munaði engu að foreldrarnir hefðu gleymt því að láta dömurnar opna súkkulaðidagatölin sín. Mikið þótti þeim gott að fá sér mola svona í morgunsárið enda dætur mömmu sinnar. Auður Edda fór svo í sína fyrstu klippingu hér á landi og kom hún mömmu sinni mikið á óvart með því að sitja kyrr í stólnum og kurteisin uppmáluð enda vissi hún upp á hár að hún var í "bjútí trítment" með naglalakk á fingrum og tám. Um hádegið var svo arkað nýklippt og flott í skólann til Siggu Báru þar sem skólinn fékk umhverfisstaðal í dag og var sungið, trallað og kökur í boði. Eins og þetta hafi ekki verið nægjanleg gleði yfir daginn og jafnvel vikuna þá komu Blómvangssystur í pössun, Kristín mamma þeirra svo í heimsókn og að lokum afi og amma sem komu færandi hendi. Núna hangir líka heimagert jóladagatal fyrir systurnar með fallega innpökkuðum pökkum hangandi á hringjum. Það verða viðbrigði að vakna þann 25. desember þegar dömurnar hafa verið vandar á svona dekur.
Bless í bú

fimmtudagur, nóvember 18, 2010

Bláfjöllin í fyrsta sinn og bara gleði sem ríkti










Mikið ótrúlega var gaman í gærdag. Pabbi var í fríi, Sigga Bára var í fríi og allir saman í stuði!! Morguninn hófst á því að mamma fór með Siggu Báru í foreldraviðtal í skólanum. Það gekk svona vel og daman er að standa sig með stakri prýði bæði námslega og félagslega - það er ekki hægt að óska sér meira og erum við foreldrarnir mikið stolt af dömunni okkar. Svo var farið með skottu litlu hana Auði Eddu í sprautur en því var svo slegið á frest í bili. Nema hvað svo var brunað heim, borðað, smurt brauð, hitað kakó á brúsa og brunað í Bláfjöllin. Sigga Bára söng alla leiðina og svo söng Auður Edda á bakinu á pabba í brekkunum. Frábær dagur og skíðavertíðin byrjar vel hmmmm krossum fingur.
Bless í bú

miðvikudagur, nóvember 10, 2010

Hamingjudagurinn

Þessi dagur í dag hefur verið langþráður hjá Siggu Báru enda gengið undir nafninu Hamingjudagurinn. Hún var löngu búin að ákveða fötin sem hún ætlaði að vera klædd í á hamingjudaginn, hvernig hárið myndi vera og allt annað þaulskipulagt. Hvað var svona merkilegt við hamingjudaginn? Jú það var fyrsta bekkjakvöldið - já bekkjakvöld. Mætt var klukkan 18 og leikið og borðað í tvær dýrmætar stundir. Svo var farið að skipuleggja vinahópahittinga en sá fyrsti verður næskomandi föstudag. Þetta er svo gott fólk sem standa að baki þessum frábæra bekk og börnin bara snilld.
Auður Edda var heima á meðan mamma, pabbi og Sigga Bára fóru á bekkjakvöld. Hún var í góðum félagsskap ömmu, afa og Ernu Hrund, saknaði foreldra ekki mikið enda var farið í bað og naglalökkuð ásamt fleiru. Ingvar vinur kom í dag og það var hlegið og hoppað í rúminu af fullum krafti - þau eru snilldin ein saman þessi tvö og svo eru þau farin að tala svona líka mikið saman, þessir snillingar.
Jæja meira síðar
Hamingjudagskveðjur til allra - til hamingju með daginn!!!
Bless í bú

þriðjudagur, október 19, 2010

Það hafa liðið þrír mánuðir


Það eru liðnir þrír mánuðir í dag frá því við fengum Auði Eddu í fangið. Þessir þrír mánuðir hafa liðið hratt um leið og okkur hefur fundist hún hafa verið hér hjá okkur frá því hún dró andann fyrst í þessum heimi. Auður Edda Jin hefur haldið sínum karakter og ef eitthvað er bætt miklu kryddi í hann síðustu vikurnar. Hún er alltaf glöð, vaknar svo sæl og þyrstir í nýjan dag svo mikið að hún smitar alla hér heima þannig að ef einhver hafi einhverntímann verið þungur á morgnanna þá heyrir það sögunni til. Svo er hún farin að syngja nokkur lög og eitt þeirra hefur stóra systir kennt henni en það er HM lagið í fótbolta - tær snilld með kínverskum hreim.

Systurnar eru miklir vinir, Sigga Bára er mjög natin við hana og mikil hetja í okkar augum. Það getur ekki verið auðvelt að fá allt í einu þriggja ára skottu inn í lífið manns, eina sem veit hvað hún vill og sækir fast að því að ná sínu fram. Sem verðlaun hefur Sigga Bára fengið nokkuð oft að vaka lengur og þá er dekurstund fyrir prinsessuna stóru - í kvöld voru lakkaðar neglur á tám og fingrum auk þess sem smá lakkrís var maulaður á meðan herlegheitin þornuðu. Svona á lífið að vera.
Bless í bú

þriðjudagur, október 05, 2010

Nokkrar myndir fyrir þá sem hafa kvartað undan myndleysi á vefnum.



Posted by Picasa

Haustið komið en bara sumar í hjarta


Það er ótrúlegt hvað tíminn líður þegar það er gaman. Dagarnir hér ganga sinn vanagang að mestu en þó er enginn eins þegar dæturnar eru annarsvegar. Auður Edda Jin er kraftmikil stúlka sem er alltaf að vinna. Gengur hér um heima hjá sér með nokkra poka fulla af allskonar dóti, flytur það á milli staða, tekur það upp og endurraðar - þetta er ritual sem tekið getur klukkustund ef ekki meira. Hún er líka farin að tala alveg ótrúlega mikið og söngla lög á íslensku með sínum fallega kínverska hreim og takti.
Sigga Bára er dugleg í skólanum og líður vel þar, kemur glöð heim á hverjum degi, vill eiginlega sjaldan koma heim þegar hún er sótt því félagarnir eru svo skemmtilegir. Ein tönn í viðbót fauk þegar mamman var að tannbursta hana einn morguninn, þessi mjúka mamma!!
Setjum hér nokkrar myndir af þessum gersemum sem eru orðnar svo góðar vinkonur og hrein unun að fylgjast með þegar Auðru Edda skriðdreki vekur stóru systir á morgnanna - þær eru snilldin ein!!
Bless í bú 






Posted by Picasa

sunnudagur, september 19, 2010

Enn ein tönnin farin úr stóru systur og Auður Edda reynir að losa nokkrar úr sínum munni










Hér líður tíminn hratt og ekkert verið sett inn á þessa síðu í nokkrar vikur. Sigga Bára hefur misst enn eina tönnina og hún Auður Edda reynir sitt besta til að ýta á sínar tennur svo þær fari nú að losna. Þær systur eru svo góðar vinkonur og nýtur Sigga Bára þess mikið að eiga sér hinn fullkomna aðdáenda sem sér ekki sólina fyrir henni. Búið er að fara í veiðiferð með Hemma, Þóru, Magga Val, ömmu og afa sem var frábær þó enginn fiskur hafi komið með heim. Skólinn gengur vel hjá Siggu Báru og mamma og Auður Edda eru duglegar að flækjast um á daginn í góðum félagsskap.
Það verður líka að koma fram að Auður Edda hefur þyngst um eitt kíló frá komu og lengst um einn sentimeter sem við erum auðvitað bara ánægð með.  Það væri gaman ef allir í fjölskyldunni yrðu glaðir með þyngdaraukningu!!
Bless í bú
Posted by Picasa

mánudagur, september 06, 2010

Heimalærdómur hjá Siggu Báru og Auður Edda sefur í eigin rúmi





Það er einhvernveginn allt svo ljúft hér hjá okkur að maður nánast stenst það ekki að monta sig. Siggu Báru líður mjög vel í skólanum, margir bekkjafélagar koma frá sama leikskóla og svo er hún búin að kynnast nýjum félögum. Fiðluskólinn er líka kominn á fullt skrið og var fyrsti hóptíminn síðastliðinn laugardag. Þar fékk Sigga Bára að vita að hún væri búin að stækka svo mikið að komið væri að því að hún þyrfti stærri fiðlu. Hún er svo heppin að þekkja snillingana Júníu og Laufey sem ætla að lána henni fiðluna sem hún á að nota í dag!
Af Auði Eddu er það að frétta helst að hún svaf í sínu rúmi í nótt og svaf svo vel að mömmu fannst hún heyra hroturnar í henni, en kannski var það dúkkan hennar sem lét svona hátt. Hún talar meira og meira hvern daginn sem líður, er farin að hjóla á þríhjóli og það nýjasta er hlaupahjólið hennar Siggu (það gamla með þremur hjólum) sem hún vill helst hafa í fanginu allar stundir. Mikið er því hermt eftir Siggu Báru stóru systur og ekki efi í okkar huga að hún hjálpi litlu systir mikið við að komast á rétt ról. Auður Edda er meira svona framkvæmdar týpan af grófari gerð þ.e. bolti, hjól, skrúfa, púkast og á það ekki við hana að sitja og lita eða leira. Þarna eru þær ólíkar systurnar!
Bless í bú

mánudagur, ágúst 30, 2010

Framtönn fauk í dag


 
Það kom loksins að því að fyrri framtönnin fór en þessa tíma hefur verið beðið um nokkra vikna skeið. Sigga Bára var mjög stolt og hún hefur auðvitað stækkað mikið við þessi tímamót eins og vænta mátti. Litla systir þurfti að sýna og leika líka að hún hefði misst tönn og tók á móti Pabba sínum með því að benda á tennurnar og opna muninn. Það þarf allt að vera eins núna og enginn að vera eftirbátur í neinu. Ingvar Wu og Hrund komu í heimsókn í morgun og mikið var gaman að fylgjast með þeim Auði Eddu og Ingvari. Þau voru virkilega að leika sér saman og herma eftir hvort öðru. Það er nú meiri snilldin hvað við erum búin að kynnast góðu fólki í gegnum þessar "fæðingar" dætra okkar.
Eftir góðan dag fórum við í heimsókn og kvöldverð til Laufeyjar og Júníu , Lin Wei og Jóns og fengum alvöru Kínamat og nutum góðrar kvöldstundar. Það klikkar nú ekki í slíkum félagsskap.
Ekki má gleyma því að við vorum síðastliðnu helgi í Suðursveit með stórfjölskyldunni. Það klikkar ekki að eyða helgi með föðurfjölskyldunni. Við stefnum á að skella inn myndum í heildaralbúmi fyrir hvern mánuð fyrir sig þá vonandi í vikunni ef mamman fær lausa stund, það er bara allt of mikið að gera í svona fæðingarorlofi!! Mamman er ekki enn byrjuð að bródera fallegu Kínamyndina sem Jóna gaf mömmunni - það hlýtur að fara að koma laus stund bráðum er það ekki?
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 25, 2010

Skólinn stóðst væntingar




Það var  stolt stúlka sem gekk í skólann í dag, með litla systur sér við hlið sem neitaði að fara út nema hafa líka bakpoka meðferðis. Sigga Bára er í hópi sem kallast Hrafnarnir (eins og fuglinn) en þar eru margir góðir vinir. Á sama borðaklasa situr Elísabet vinkona og Huginn þannig að þetta er allt saman mjög þægilegt. Henni fannst gaman að fara í tvær frímínútur en var ekki alveg sátt við að fara ekki í Selið (frístundarheimilið) með hinum krökkunum - en það kemur að því. Auk þess var steikti fiskurinn mjög góður en mín bara gleymdi að fá sér grænmeti, ekki alveg viss um að það sé rétt skýring hjá dömunni en hún fær að njóta vafans svona fyrsta daginn.
Auður Edda leit við í vinnuna hjá mömmu sem var bara gaman enda vandfundið svona skemmtilegt fólk eins og þar er að finna.
Þegar Sigga Bára var búin í skólanum skelltum við mæðgur á okkur hjólahjálmana, hjóluðum í ísbúðina til hennar Lóu þar sem dæturnar sleiktu ís í veðurblíðunni en mamman sötraði vatn. Já þeim er misskipt lífsgæðunum.
Bless í bú

þriðjudagur, ágúst 24, 2010

Skólinn hefst á morgunn...

Skólaganga Siggu Báru í grunnskóla hefst í fyrramálið. Mikið óskaplega er gaman að fá að upplifa eftirvæntinguna og gleðina með Siggu Báru, hún er svo tær, heilög og sönn. Hún er þess fullviss að það verði alltaf gaman í skólanum og allir verði vinir. Hún átti erfitt með að sofna í kvöld, spurði í sífellu hvað það væru margir klukkutímar í að hún ætti að vakna og svarið var sofna fyrst unga dama. Skólafötin liggja tilbúin en hún valdi samsetninguna sjálf því hvað er verra en að mæta í skólann í fötum sem mamma velur og finnast maður púkó - kannast einhver við þá tilfinningu?
Auður Edda er alltaf jafn fjörug og skemmtileg. Vaknar brosandi og sofnar ekki eins brosandi. Orðin hrannast inn hjá henni, skilningurinn flottur, mikil sundkona og bara elskar að vera úti að moka, fékk meira að segja að moka með krökkunum á Hofi í dag þegar Sigga Bára kom í heimsókn til að monta sig með litlu systur.
Lífið er semsagt að komast í "rútínu", Kalli farinn að vinna og mamma er í mömmó!
Bless í bú

sunnudagur, ágúst 22, 2010

Latabæjarhlaupið – engin leti þar




Við fórum fjölskyldan í gær niður í bæ eins og svo margir. Búið var að skrá Siggu Báru í Latabæjarhlaupið og var mikil stemming yfir þátttökunni, síðast þegar hún fór í það var hún þriggja ára og man ekkert eftir því!! Þarna hittum við marga vini og var mikil gleði. Sigga Bára vissi það að það myndu allir vinna í þessu hlaupi og var sú setning endurtekin nokkrum sinnum við ráslínuna þar sem hún stóð auðvitað fremst. Mamma hljóp með henni þessa 1,5 km. á meðan pabbi og Auður Edda voru í hópi hvetjara á hliðarlínunni. Til að gera langa sögu stutta þá við marklínuna bauðst Sigga Bára til að draga mömmu í mark – jebb hún hefur þolið í lagi hún Sigga Bára.

Eftir hreyfinguna var labbað niður á torg, drukkið kaffi í Ráðhúsinu með Olgu, Olla og Eyþóri en þar sem vindur hafði rokið upp og kuldi farinn að hrjá mannskapinn var farið á skyndibitastað borðað mikið óhollt, brunað á videoleigu og svo var horft á Harry Potter með popp í skál. Sigga Bára er nefnilega að byrja á Harry Potter bókunum – pabbi les fyrir mæðgurnar á kvöldin og svo er horft á viðeigandi mynd. Hann kann að dekra við dömurnar sínar hann Kalli!

Bless í bú

mánudagur, ágúst 16, 2010

Hjólað um bæinn.

Við létum það ekki á okkur fá að einhverjir óprúttnir kappar töldu sig geta tekið frá okkur ekki bara eitt reiðhjól heldur tvö slík farartæki. Við festum kaup á einu hjóli og fengum síðan þennan líka flotta stól fyrir litlu dömuna þannig að núna er bara hjólað um bæinn. Heimsóttum Höllu afmælisbarn og Palla í gær í Kópavoginn og létum rigningu ekki á okkur fá heldur bættum bara við einum hlífðarfatnaðinum. Síðan var farið í þennan flotta hjólareiðaleiðangur í dag. Auður vaknaði af einhverjum ástæðum rúmlega fimm í morgun og eftir morgunleikfimi frúinnar þá var smurt og pakkað í bakpoka. Við héldum upp í Elliðaárdal og borðuðum nesti, hjólunum síðan áfram og fórum og skoðuðum Árbæjarsafnið sem er frábært svæði til að fara með börn. Flott safn og skemmtilegt að koma þarna. Sigga Bára er þvílík hetja hjólaði þetta allt og þrjóskaðist við í mestu brekkunum með því að tuða „ ég get þetta, ég get þetta“ ekki hægt annað en horfa til hennar full aðdáunar. Vonandi viðrar vel næstu daga til að halda áfram að skoða bæinn og kannski einhver ný hverfi, hver veit ?
Bless í bú

laugardagur, ágúst 14, 2010

Laugardagur til lukku

Morguninn var tekinn rólega í dag hjá fjölskyldunni eða þar til við litum út um gluggann og sáum þrestina gera árás á rifsberjarunnana!! Kalli og Auður Edda ruku út í rigninguna og týndu rifsber eins og enginn væri morgundagurinn. Svo litu Anna Kristín, Fanney og Hafsteinn við hjá okkur, alltaf gaman að hitta þau. Svo var farið á róló og mikið ótrúlega er gaman að sjá hvað Auður Edda er búin að læra margt og hvað Sigga Bára er alltaf að verða ábyrgari og natnari við systur sína. Palli, Halla og Halla Elísabet hittu okkur á róló. Hemmi, Þóra og börn litu við, Aggi vinur og að lokum Olga og börn. Við erum rík að eiga svona góða fjölskyldu!!
Auður Edda er farin að mynda mörg orð eins og  hími (sími), pissa, mata, gisa (kisa) og svo koma nöfn fjölskyldumeðlima auk þess sem verið er að rugla pínu með augu, nef, munn og eyru. Snillingar sem við eigum hér á bæ.
Bless í bú