Mikið ótrúlega var gaman í gærdag. Pabbi var í fríi, Sigga Bára var í fríi og allir saman í stuði!! Morguninn hófst á því að mamma fór með Siggu Báru í foreldraviðtal í skólanum. Það gekk svona vel og daman er að standa sig með stakri prýði bæði námslega og félagslega - það er ekki hægt að óska sér meira og erum við foreldrarnir mikið stolt af dömunni okkar. Svo var farið með skottu litlu hana Auði Eddu í sprautur en því var svo slegið á frest í bili. Nema hvað svo var brunað heim, borðað, smurt brauð, hitað kakó á brúsa og brunað í Bláfjöllin. Sigga Bára söng alla leiðina og svo söng Auður Edda á bakinu á pabba í brekkunum. Frábær dagur og skíðavertíðin byrjar vel hmmmm krossum fingur.
Bless í bú










2 ummæli:
Kæra fjölskylda.
Til hamingju með góðan árangur Siggu Báru skólastúlku.
Hafið það alltaf sem best og vonandi komist þið oft og mikið á skíði í vetur.
Bestu kveðjur, Þórdís, Kristján, Hjalti og Hildur Björg.
Gaman að sjá hvað allir hafa skemmt sér vel....Auður Edda að sjá almennilegan snjó í fyrsta sinn...vildi hún ekki fara strax í svörtu brekkurnar...? hlýtur að vera ef hún er með hæfileika pabba síns..guðm. og edda
Skrifa ummæli