Það var eins gott að Sigga Bára var vel vakandi í morgun en það munaði engu að foreldrarnir hefðu gleymt því að láta dömurnar opna súkkulaðidagatölin sín. Mikið þótti þeim gott að fá sér mola svona í morgunsárið enda dætur mömmu sinnar. Auður Edda fór svo í sína fyrstu klippingu hér á landi og kom hún mömmu sinni mikið á óvart með því að sitja kyrr í stólnum og kurteisin uppmáluð enda vissi hún upp á hár að hún var í "bjútí trítment" með naglalakk á fingrum og tám. Um hádegið var svo arkað nýklippt og flott í skólann til Siggu Báru þar sem skólinn fékk umhverfisstaðal í dag og var sungið, trallað og kökur í boði. Eins og þetta hafi ekki verið nægjanleg gleði yfir daginn og jafnvel vikuna þá komu Blómvangssystur í pössun, Kristín mamma þeirra svo í heimsókn og að lokum afi og amma sem komu færandi hendi. Núna hangir líka heimagert jóladagatal fyrir systurnar með fallega innpökkuðum pökkum hangandi á hringjum. Það verða viðbrigði að vakna þann 25. desember þegar dömurnar hafa verið vandar á svona dekur.
Bless í bú


4 ummæli:
Hvað engar myndir af piparkökubakstri þegar sú stutta bjó til piparkökustjörnur og sagði FRÁBÆRT! Flottar stelpur með súkkulaðidagatölin sín, svei mér þá ef þær eru ekki bara flottastar!
Kv.
Þóra
Vá, ekkert smá sem flotta Auður Edda breytist við klippinguna :)
Gaman að fá fréttir af dömunum dásamlegu
knús í hús
Stína og strákarnir
Oooohhhhh hvað hún er yndisleg sú stutta með nýju klippinguna sína!:) Búin að skoða svo fuuuuullt af fallegum systramyndum og lesa góðar fréttir ... takk fyrir mig!:)
Knús og kremjur til yndislegrar fjölskyldu,
Gígja.
Aðeins að kíkja í heimsókna :) Vá hvað Auður Edda er lík Siggu Báru svona nýklippt, þeir eru allar svo mikil bjútí þessar stelpurófur :)
aðventuknús, Unnur
Skrifa ummæli