miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Okkar Kjarval - okkar eigin Kjarval



Varð að setja þessa fallegu mynd af Óla Prik sem Sigga teiknaði alveg ein með nýja pennanum frá honum afa - Jólasveina penna, jebb...... Það er margt framundan hjá stúlkunni næstu daga en það verður farið í piparkökumálun í leikskólanum, hittum vinkonurnar úr hópi 12 og svo er það aðventukaffið hjá Hemma frænda ;-D Mamman verður bara þreytt á öllu þessu plani en svona er það að eiga selskapsljón eins og hún Sigga Bára er - það líka tilheyrir þessu listamannalífi.
Blessi í bú

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Snjórinn er kominn - jibbý

Halló við verðum bara að láta vita hvað það var ótrúlega gaman á furðufataballinu í gær. Sigga Bára skemmti sér konunglega og sýndi mikið sjálfstæði og öryggi á ballinu. Hún skokkaði um allt dansgólfið, dansaði og dillaði sér í takt við frábær lög. Svo var þetta allt toppað með því að um kvöldið kom Erna Hrun frænka og passaði hana - mikið fannst Siggu Báru það gaman. Í morgun vaknaði snjóátari Íslands, varla búin að opna augun þegar rokið var út í glugga og lítil hendi stakk fingrunum út á gluggakarminn og náði sér í vænan lófa af snjó - já það var borðað mikið af snjó í dag.
Bless í bú

laugardagur, nóvember 18, 2006

Furðufataball og Gunna 17 ára!!!!



Já í dag er 18. nóvember og það er mikill merkisdagur. Í dag eru 17 ár frá því að frænka mín hún Guðrún Helga leit fyrst dagsins ljós og finnst mömmu eins það hafi gerst í gær. Mikið vonum við að Sigga Bára verði ekki allt í einu orðin 17 ára áður en við deplum auga!! Nema hvað að Sigga Bára er núna að undirbúa sig fyrir sundnámskeiðið sitt í þessum skrifuðu orðum og svo verður farið á Furðufataball Íslenskrar Ættleiðingar seinnipartinn - það verður spennandi og vonum við að vinkonur úr hópi 12 komi sem flestar. Sigga Bára ætlar að vera fiðrildi, bleikt og fallegt :-D Við setjum svo inn myndir af ballinu síðar.
Bless í bú

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Söngurinn lengir lífið

Okkur hefur verið bent á að það sé nú æskilegt að hafa aðeins tíðari skrif á síðuna okkar en verið hefur undanfarið. Efaust eru þetta réttar ábendingar sérstaklega þegar mikið af hlutum eru að gerast hjá okkur og margar sögur sem hægt væri að segja af Siggu Báru. Hún blómstrar sem aldrei fyrr í leikskólanum og er sko alveg tilbúin að fara þangað þegar henni hefur þóknast að vakna. Það er nefnilega kominn upp smá "unglingaveiki" finnst okkur í hana, þar sem hún hoppar ekki alltaf brosandi á fætur þegar hún er vakin heldur hið minnsta sendir föður sínum tóninn um að fara fram þegar henni finnst harkalega er gengið á eftir því að hún vakni. Við verðum bara að taka þessu og láta ekki mikið bera á þegar við brosum út af eyrum yfir sjálfstæði hennar og aga svo notuð séu sérstaklega jákvæð orð um þessa hegðun. Núna er svo söngtímabilið að byrja og það er frekar fyndið og skemmtilegt. Hún vill auðvitað að við tökum öll þátt í söngnum og fylgjum hennar leiðbeiningum um lög og áherslur sem stundum eru á þá leið að hálft lag dugar alveg eða jafnvel nokkrar línur, enda eru þessi lög ekki öll eins skemmtileg eða hvað :-). Því miður höfum við ekki getað tekið myndir af henni þar sem fingralangur Breti náði að eignast vélina okkar gegn okkar vilja þegar húsfrúin fór í orlof til Bretlands um daginn. Vonandi stendur það til bóta innan fárra daga. Við höfum verið að nálgast Siggu með það hvort hana langi nú ekki að eignast systur eða bróðir og höfum fengið bæði skemmtilegan svip og svör frá þeirri stuttu. " Sigga alveg nóg" hefur hún þá sagt þegar hún á annað borð hefur séð sér fært að tjá sig um þetta efni. Hún veit þó ekki að við erum að vinna ötulega að því að safna saman öllum gögnum sem þarf til að skila inn umsókn eftir að hafa fengið samþykki frá þeim yfirvöldum sem til þarf. Vonandi tekst okkur á þeim tíma sem frammundan er að sannfæra Siggu um að það sé ekki svo slæmt að stækka fjölskylduna. Við látum nú þetta duga í bili og biðjum kærlega að heilsa

laugardagur, október 21, 2006

Tíminn flýgur hratt......

Við höfum verið spurð hvort þessi síða sé að lognast út af - svarið er Nei - bara foreldrar sem eru pínu latir við að skrifa. Það sem er að frétta síðan síðast er að daman stendur sig svona afbragðs vel í skólanum. Það var foreldrafundur og þar kom fram að Sigga hafi verið tekin í þroska próf í skólanum sem kom vel út. Hún er mjög dugleg við að hjálpa kennurum á deildinni að taka til, grípur sópinn um leið og á að fara að sópa, leyfir stóru stelpunum að vera með henni í mömmó - hún leikur þá litla barnið og er mjög dugleg að leika sér úti. Stúlkan okkar stendur sig semsagt SUPER. Þetta er svona ego, Sigga frábæra æðislega færsla (hmmm eins og hinar hundrað) en maður er bara að springa af stolti yfir því að hafa þessa stúlku í okkar lífi. Núna er hún komin á biðlista að læra fiðlu, þetta var okkur sagt að gera þar sem það er um það bil 1 ár í bið að komast í tónlistaskólann. Jæja, sláum nú endann í þessa lofræðu - þökkum fyrir ritfrelsið
bless í bú

mánudagur, september 25, 2006

Ég nenni ekki......



Já hún Sigga hún er bara búin að læra trilljón ný orð í leikskólanum - allt í einu segir hún; ég nenni ekki út, ég nenni ekki bað, ógeðslega gott, ógeðslega vont, ógeðslega ljótt, láttu mig vera, ekki stríða, allir saman......... Það er alveg frábært að fylgjast með litla unganum sem núna er svo ánægð með leikskólann að hún varla hefur tíma til að kveðja foreldrana á morgnanna. Þegar hún er sótt þarf oft að bíða því hún er bara ekki alveg búin að púsla auk þess sem hún þarf að sýna margt. Í dag blasti við fögur sjón - Sigga var að leika við vinkonu sína úti, þær hlupu um allt svæðið og hlógu saman - þetta hefur hún ekki gert hingað til. Er ekki gaman að fá að upplifa þetta allt með henni Siggu Báru sjarmörínu línu?
Bless í bú

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Þetta er allt að koma



Já hún Sigga er öll að koma til. Stúlkan er búin að vera lasin meira eða minna síðan á laugardag með hita, hálsbólgu og almennt kvef eins og það gerist best. Í dag var því farið í leikskólann í fyrsta sinn í þessar viku og hélt mamman að við færum 8 skref afturábak í aðlöguninni. En viti menn - það þurfti ekki að hafa áhyggjur af þessum degi. Þegar Sigga Bára var sótt í leikskólann í dag fékk mamman gleðifréttir - STÚLKAN SVAF Í HVÍLDINNI, BORÐAÐI VEL OG NÁÐI AÐ LEIKA SÉR!! Getur maður beðið um annað. Við foreldrarnir vitum vel hvað býr í þessari duglegu stúlku og hlökkum mikið til þegar kennarar hennar fara að sjá þá hlið á henni. Annars þá verð ég að taka hattin ofan fyrir kennurum Siggu Báru - þær hafa verið svo góðar og þolinmóðar við okkur, þá ekki síður foreldrana en Siggu Báru. Við segjum bara takk, takk, takk fyrir allt.
Hér eru myndir af fallegasta sjúklingi kjúklingi landsins og barasta heimsins
Bless í bú

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Vikan búin og næsta að hefjast




Já vikan sem er að líða gekk vel hjá Sigríði Báru - að frátöldum þeim klukkutímum sem hún grét í leikskólanum. Já hún hefur ekki alveg brosað hringinn allan daginn þessa dagana - það er gaman að leika sér með krökkunum, gaman að borða með krökkunum, gaman að labba í skólann á morgnanna en EKKI AÐ FÁ SÉR LÚR. Okkur skilst að þrátt fyrir allar heimsins aðferðir til að fá unga til að taka lúrinn hafa engar þær haft áhrif á Siggu Báru - hún grætur og grætur og grætur þessi engill en hættir um leið og farið er út að leika. Sigga Bára er sem sagt mjög þrjósk - það vitum við foreldrarnir líka og það er einmitt þannig sem við viljum hafa hana Siggu Báru - þrjóska og með skap - það verður bara enn meiri sigur þegar maður hefur unnið hana á sitt band.
Sigga Bára tók sig til allt í einu á föstudaginn eftir skóla, skellti sér á fjórar fætur og lyfti annarri upp og kallaði "sjái sjái latibær" Svo dró hún okkur gömlu á gólfið og allir farnir í Latabæjar stuð eins og henni einni er lagið!!!

En ljósið sefur núna ljúfum svefni enda búin að hafa nóg að gera í dag. Farið var í Grafarholtið til móðursystranna og farið í góða göngu um holt og hæðir. Það finnast ber í Reykjavíkinni góðu en hvar segjum við ekki :-D
Bless í bú
gydao@simnet.is

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Bíddu - hef ég ekki verið hér áður???




Fyrsti leikskóla dagurinn var nú eiginlega þannig að það var eins og Sigga Bára hafi verið þarna áður. Sú stutta gekk inn eins og hún ætti skólann, ekkert sjálfsagðara en að hengja upp úlpuna og töskuna á nýja kisu snagann og tölta sér inn á ganginn. Á móti okkur tók Sigrún skólastjóri og þær Sigga Bára skoðuðu fiskabúrið sem hefur fjársjóð á botninum!!!!! Svo hittum við hana Láru sem er svo indæl og þær Sigga fengu sér síðar labbitúr og leiddust hönd í hönd. Svona til að gera langa sögu stutta þá fór Sigga Bára að gráta þegar móðirin þurfti að fara með hana heim!!!! Svona var þetta nú - svo héldum við upp á daginn með því að fara í bakaríið og fara með skúffuköku til ömmu og afa - Sigga Bára var orðin stór stelpa.
Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir - það er svo gaman að lesa orðsendingarnar frá ykkur!!!
Bless í bú - á morgun verður snæddur morgunmatur með öllum krökkunum ............

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Það verður leikskóli á morgun



Já núna fer að styttast óðum í að litla daman labbi sér yfir götuna og byrji á leikskólanum. Á morgun er fyrsti aðlögunar dagurinn og mikil spenna búin að magnast hér á heimilinu bæði hjá Siggu Báru og foreldrunum. Við erum viss um að þetta gangi vel þar sem Sigga Bára hefur fengið að fara nokkrum sinnum út að leika þegar leikskólinn er með útiveru á morgnanna. Sigga Bára hefur meira að segja ekki alltaf viljað fara heim með þeirri gömlu heldur viljað fara beint inn að leika!!!!!
Annars hefur ágúst mánuður einkennst af miklum heimsóknum út á land. Við eyddum nokkrum dögum í sumarbústað með Bínu, Olgu og stórfjölskyldum sem var hreint út sagt frábært auk þess sem við fórum í heimsókn til ömmu, afa og Sigga Val þar sem þau voru í bústað. Auðvitað var svo farið á tónleika með Stuðmönnum um verslunarmannahelgina. Sigga Bára sofnaði að vísu yfir honum Valgeiri en ..............
Jæja látum þetta nægja í bili
Bless í bú!!!!!

mánudagur, júlí 31, 2006

Stórafmæli haldið hjá Söru og Sigrúnu TAKK



Foreldrar Siggu vita mæta vel að þau hafa ekki verið dugleg að skrifa upp á síðkastið. Ástæður eru margvíslegar og margar - aðallega þær að við höfum verið mikið iðin við að fara í stutt ferðalög, hitta vini og njóta síðustu daga Siggu Báru og mömmu í barnsburðarleyfinu.
Sigga Bára og fjölskylda fóru í frábæra veislu um helgina til Söru og mömmu hennar. Þar mættust allar stelpurnar úr hópi 12 og héldu upp á afmælin sín eins og þeim einum er lagið. Mæting kl. 15 og farið heim 21 - sannkölluð partýljón!!!! Þetta var hreint út sagt frábær veisla og allir, þá aðallega afmælisbörnin, voru í svo góðu skapi að það hálfa hefði verið nóg. Þær voru duglegar að leika saman úti, meira en venjulega, mikið búnar að þroskast og svo er ein hætt að nota bleyju!!!!! Já svona eru þetta flottar stelpur. Við viljum bara nota tækifærið og þakka öllum vinum okkar fyrir þennan frábæra dag saman og vonandi hittumst við fljótt aftur.
Núna eru bara 10 dagar þar til Sigga Bára byrjar á leikskólanum - hún segist bara hlakka til og kveður mömmu stundum á daginn, þykist labba út um dyrnar og segir " Bess mama e farin leiskolan" - púff og sjúkk
Bless í bú

mánudagur, júlí 10, 2006

Eitt ár liðið






Það er í eitt ár liðið frá því við fengum sólargeislann í lífi okkar. Lítill ungi sem saug fingurna, strauk vinstra eyrað sitt og grét. Mikið var lagt á hana Siggu Báru þennan dag fyrir ári síðan, meira en okkur getur grunað. Hún grét allan þennan dag en leyfði okkur að halda á sér, hún gat gleymt sér við að maula mat í stutta stund en áður en við vissum af kom gráturinn aftur og benti hún á hurðina – út vildi hún. En það hefur mikið vatn runnið til sjávar og gráturinn hefur breyst. Í dag grætur Sigga ef hún fær ekki sínu fram eða grætur vegna þess að við erum ekki hjá henni. Það er stór munur á þeim gráti í Kína. Elsku litla Sigga hefur vaxið og dafnað. Hún hefur glatt hjörtu margra en þó mest foreldra sinna. Takk fyrir þetta fyrsta ár kæra dóttir – fyrst við gátum þennan dag í fyrra getum við allt saman ;-)

sunnudagur, júlí 09, 2006

Fyrsta/Frysta útilegan



Sigga Bára hefur farið í sína fyrstu útilegu. Það var löngu ákveðið að fjölskyldan ætlaði sér að fara á útilegu Íslenskrar Ættleiðingar sama hvernig veðurspá yrði. Þetta var frábær ferð, fórum samferða Matthildi og fjölskyldu og hittum fullt af skemmtilegu fólki . Við tjölduðum við skólann á Reykhólum og þar var öll aðstaða til fyrirmyndar stórt leiksvæði fyrir ungana að hlaupa á, gæsluvöllur fyrir neðan húsið, leikfimissalur sem var fullnýttur allan tímann og frábær aðstaða inn í skólanum(stærðar matsalur, eldhús, sjónvarpskrókur og salernisaðstaða). Veðrið var ágætt og þó..... há sumar og ábyggilega rúmlega 4 stiga hiti og talsverð rigning allan tímann, það var nátturulega "bara skítkalt" alla vega fyrstu nóttina. Talið var að hátt í 150 manns voru á svæðinu þegar leikar stóðu sem hæst og rífandi stemming. Þegar fjölskyldan hafði verið á Reykhólum frá föstudegi fram á laugardagskvöld var ákveðið að kveðja þennan fallega stað. Það hafði verið svo kallt fyrstu nóttina að við hreinlega lögðum ekki í aðra nótt með prinsessuna í tjaldið. En mikið var gaman og viljum við þakka öllum fyrir frábæra skemmtun og samveru.

sunnudagur, júlí 02, 2006

Orðin fullorðin eins og Fríllinn


Já núna er Sigga Bára búin að ná því að vera tveggja ára og okkur foreldrunum finnst eins og við höfum séð hana breytast á einum sólarhring ( svona næstum). Við skelltum okkur eftir afmælið í smá ferðalag til Stínu, Kalla og Valentínu en þau eiga hreint yndislegan bústað í Grímsnesinu. Þar var tekið höfðinglega á móti okkur svo vægt sé til orða tekið og fólk sem þekkir okkur veit að ef okkur líður vel einhverstaðar förum við seint þaðan og upplifðu gestgjafar okkar það - komum ekki í bæinn aftur fyrr en um miðnætti!!!!! Við vorum úti í náttúrunni, skelltum okkur í laugina, borðuðum góðan - frekar bestan mat framreiddan af fagfólki og nutum félagskaparins. Takk fyrir okkur vinir ;-)

En daginn eftir var okkur svo boðið aftur í gill - í þetta sinnið til Sunnu, Sölku, Dóru og Styrmis!!! Þar svignuðu borðin undan kræsingum sem Dóra (ég meina þetta Dóra !!) hafði útbúið en litla fallega Sunna hafði verið skírð á laugardeginum og slegið því saman við afmælið hennar. Þarna mættu allar kínasystur fyrir utan Stínu mína sem var upptekin í bústaði foreldra sinna. Mikið er gaman að sjá þessa litlu unga okkar og breytingarnar sem hafa orðið á þeim. Hver annari fallegri, hver annari sjálfstæðari, hver annari blíðari og hver annari yndislegri. Já mikið erum við öll rík. Takk fyrir heimboðið fjölskylda - það er alltaf svo gott að koma til ykkar. Annars hafa undanfarnir dagar einkennst af tíðum sundferðum okkar, við höfum örugglega öll verið selir í fyrra lífi því dagurinn er ekki fullkomnaður nema við séum aðeins búin að kíkja í laugina. Sigga er mikið núna að leika sér í tjaldinu sem hún fékk í afmælisgjöf og hafa frændsystkini hennar verið dugleg að koma og leika með henni í því.
Næst á dagskrá er útilega Íslenskrar Ættleiðingar - veðrið getur ekki versnað þannig að maður segir bara eins og Lúðvík í Samfylkingunni talaði um gengi flokksins - "Ef maður er kominn á botninn er bara ein leið upp"

Bless í bú

laugardagur, júní 24, 2006

Hún Sigga Bára Min á afmæli í dag




Elsku hjartans dóttir okkar á afmæli í dag og er orðin tveggja ára!!!!! Foreldrarnir eru núna að bíða eftir því að gestirnir banki á dyrnar - stoltir og ánægðir. Hún Sigga Bára fattar alveg að hún á afmæli - búin að opna nokkra pakkana og fengið s.s. vörubíl (frá Þórhildi feminista), útilegustól, garðáhöld og ekki má gleyma stóra sandkassanum sem afi og amma gáfu prinsessunni af tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn hjartans dóttir okkar!!!!!!!

fimmtudagur, júní 22, 2006

Komin heim





Fjölskyldan er komin heim úr sumarfríinu. Við skelltum okkur til Ítalíu í tvær vikur og dvöldumst þar ásamt Palla og fjölskyldu á yndislegum stað í Toscana héraði. Hitinn var góður og naut Sigga þess að vera léttklædd, skoða maurana, eðlurnar og svo auðvitað að borða kirsuber - þau voru í miklu uppáhaldi. Við létum ekki staðar numið þar og heimsóttum vinkonu okkar hana Ágústu, Floris manninn hennar og yndislegu dóttur þeirra hana Katrínu Ágústu. Þau búa semsagt í Amsterdam og fengum við frábæra leiðsögn um borgina, fórum á markaði en toppurinn í ferðinni fyrir hana Siggu var dagur sem farið var í fallegan garð þar sem hún fékk að fara á hestbak - ekki bara einu sinni - nebb - hún fékk að fara tvisvar eftir að hafa sannfært pabba sinn um það. Hún vissi að hún var eins og Lína eða LUWE eins og hún ber það fram af miklum krafti. Sigga hefur engu gleymt frá síðustu flugferðum var eins og ljós - eða réttara svaf eins og ljós í öllum þeim flugum sem við fórum í. Þetta var sem sagt draumur í dós enda ekki annað hægt með svona líka frábæra ferðafélaga þau Palla, Höllu, Védísi og Steinunni Völu - takk fyrir okkur!!!!
Jæja látum þetta duga í bili
Bless í bú
gydao@simnet.is

fimmtudagur, júní 01, 2006

Eitt ár liðið frá því við fengum myndirnar!!!




Hugsa sér að það sé liðið eitt ár síðan við Kalli fengum upplýsingamyndirnar frá Kína af henni Siggu Báru okkar. Við erum að tala um 365 daga sem hafa liðið ótrúlega hratt en einhvernveginn samt svo langt síðan því okkur finnst hún Sigga hafa verið með okkur alveg frá upphafi. Við erum þakklát fyrir að lífið hafi verið svona gjafmilt og leitt okkur öll saman . Hér eru myndirnar frá því fyrir akkúrat einu ári síðan og svo dömunni í dag. Þú ert best Sigga Min!!!

mánudagur, maí 29, 2006

Sauðburður yfirstaðin og Björn bóndi kominn í borgina



Sigga er búin að vera mjög dugleg frá síðustu skýrslu hér á síðunni. Hún fór nefnilega í sveitina og fékk að fylgjast með nýfæddum lömbum - gaf þeim meira að segja nebbaknús sem ekki allir fá frá frökeninni. Það var tekið á móti okkur á Hvammi í Landsveit eins og höfðingjum hjá Pálma og fjölskyldu - þúsund þakkir fyrir okkur kæra fjölskylda.
Nú síðan liðu dagarnir og kosningar voru á næsta leiti. Hann Hemmi frændi hennar Siggu var í framboði fyrir Vinstri græna og tókst honum að snúa öllum í fjölskyldunni sér í hag og vann flokkurinn mikin sigur - til hamingju Hemmi frændi :-) Við tölum svo ekki um nýmyndaða borgarstjórn þar sem það á ekki heima hér á síðu fallegrar stúlku.
Svo verður að minnast á heimsókn í nýja húsið hennar Elvu Gests en það var svo gaman að heimsækja hana og Heiðrúnu vinkonu sem er að bíða eftir að lítill ungi komi í heiminn ;-) Spennandi Heidi eða hvað!!!!
Nú pabbi hennar Siggu Báru er að útskrifast á laugardaginn og erum við að hefjast handa við að undirbúa móttöku hér á bæ - Sigga Bára er búin að vera svo dugleg að vinna í garðinum og er hann bara orðinn flottur hjá henni. Mamma er ánægð með skottu.
Jæja höfum þetta ekki lengra í bili og takk fyrir allar kveðjur kæru vinir!!!!!!
Bless í bú

mánudagur, maí 15, 2006

Núna er það bara hjóla, hjóla og hjóla



Já hún Sigga Bára fékk að upplifa um helgina að sitja aftaná hjólinu hennar mömmu og var það gleði, gleði, gleði, gleði alla tíð................ Hún er annars að þroskast mikið eða bara góð að herma efitr því um leið og þau gömlu segja "jæja það eru að koma fréttir" rýkur hún af stað skríður upp í sófa á besta staðinn og liggur þar og flatmagar og segir "frétttir"!!!!!
Í dag var farinn maraþon hjólreiðahringur með þeim mæðgum Kristínu og Matthildi sem endaði þannig að dæturnar ákölluðu kerrurnar sínar og þegar heim var komið og kerrurnar komnar í augsýn komu tár á hvarma og þær hlógu uppgefnum hlátri - jú hviss og bang sofnaðar á nóinu.
Jæja höfum það ekki lengra í bili
Bless í bú

föstudagur, maí 12, 2006

Cherry blossom eða hérumbil





Við mæðgur fórum í morgun snemma út að labba - það var svo fallegt veður - en kalt. Við mælum með því að fá sér göngutúr í Grasagarðinn þar sem tré eru farin að blómgast og mannlífið með. Kellurnar tvær tóku með sér nesti og settust inn í tjaldið stóra í Húsdýragarðinum lásu Moggann og spjölluðu. Núna er litla daman sofandi og mamma að fara að mannna sig upp í að vekja hana, því það er sama hve blíðlega við foreldrarnir vekjum hana þá er mín alltaf stúrin svona fyrsta stundarfjórðunginn eða svo!!!!
Bless í bú