miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Söngurinn lengir lífið

Okkur hefur verið bent á að það sé nú æskilegt að hafa aðeins tíðari skrif á síðuna okkar en verið hefur undanfarið. Efaust eru þetta réttar ábendingar sérstaklega þegar mikið af hlutum eru að gerast hjá okkur og margar sögur sem hægt væri að segja af Siggu Báru. Hún blómstrar sem aldrei fyrr í leikskólanum og er sko alveg tilbúin að fara þangað þegar henni hefur þóknast að vakna. Það er nefnilega kominn upp smá "unglingaveiki" finnst okkur í hana, þar sem hún hoppar ekki alltaf brosandi á fætur þegar hún er vakin heldur hið minnsta sendir föður sínum tóninn um að fara fram þegar henni finnst harkalega er gengið á eftir því að hún vakni. Við verðum bara að taka þessu og láta ekki mikið bera á þegar við brosum út af eyrum yfir sjálfstæði hennar og aga svo notuð séu sérstaklega jákvæð orð um þessa hegðun. Núna er svo söngtímabilið að byrja og það er frekar fyndið og skemmtilegt. Hún vill auðvitað að við tökum öll þátt í söngnum og fylgjum hennar leiðbeiningum um lög og áherslur sem stundum eru á þá leið að hálft lag dugar alveg eða jafnvel nokkrar línur, enda eru þessi lög ekki öll eins skemmtileg eða hvað :-). Því miður höfum við ekki getað tekið myndir af henni þar sem fingralangur Breti náði að eignast vélina okkar gegn okkar vilja þegar húsfrúin fór í orlof til Bretlands um daginn. Vonandi stendur það til bóta innan fárra daga. Við höfum verið að nálgast Siggu með það hvort hana langi nú ekki að eignast systur eða bróðir og höfum fengið bæði skemmtilegan svip og svör frá þeirri stuttu. " Sigga alveg nóg" hefur hún þá sagt þegar hún á annað borð hefur séð sér fært að tjá sig um þetta efni. Hún veit þó ekki að við erum að vinna ötulega að því að safna saman öllum gögnum sem þarf til að skila inn umsókn eftir að hafa fengið samþykki frá þeim yfirvöldum sem til þarf. Vonandi tekst okkur á þeim tíma sem frammundan er að sannfæra Siggu um að það sé ekki svo slæmt að stækka fjölskylduna. Við látum nú þetta duga í bili og biðjum kærlega að heilsa

Engin ummæli: