laugardagur, október 21, 2006

Tíminn flýgur hratt......

Við höfum verið spurð hvort þessi síða sé að lognast út af - svarið er Nei - bara foreldrar sem eru pínu latir við að skrifa. Það sem er að frétta síðan síðast er að daman stendur sig svona afbragðs vel í skólanum. Það var foreldrafundur og þar kom fram að Sigga hafi verið tekin í þroska próf í skólanum sem kom vel út. Hún er mjög dugleg við að hjálpa kennurum á deildinni að taka til, grípur sópinn um leið og á að fara að sópa, leyfir stóru stelpunum að vera með henni í mömmó - hún leikur þá litla barnið og er mjög dugleg að leika sér úti. Stúlkan okkar stendur sig semsagt SUPER. Þetta er svona ego, Sigga frábæra æðislega færsla (hmmm eins og hinar hundrað) en maður er bara að springa af stolti yfir því að hafa þessa stúlku í okkar lífi. Núna er hún komin á biðlista að læra fiðlu, þetta var okkur sagt að gera þar sem það er um það bil 1 ár í bið að komast í tónlistaskólann. Jæja, sláum nú endann í þessa lofræðu - þökkum fyrir ritfrelsið
bless í bú

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló sætasta Sigga Bára

Okkur finnst þetta nú svoldið stutt lofræðufærsla um þig....við erum viss um að hún mamma þín hefði haldið áfram og áfram að skrifa um hve frábær þú ert.....það finnst okkur allavega ;-)

Þúsund kossar
Matthildur og mamman

Nafnlaus sagði...

Skrítið!!!
Af hverju engar myndir?
Veit hvers vegna.
Það er allt í lagi að skrifa lofsræðu um svona ljós - á það bara skilið.
Hitti ykkur sem fyrst.

Bína og co

Flintebakken fjölskyldan sagði...

Ef foreldrar hrósa ekki eigin börnum hver gerir það þá ???? Ég bara spyr ?

Við kíkjum alltaf reglulega á síðuna ykkur til að dáðst að Siggu og ykkur :D

Kveðjur frá Århus Tóta, Gummi og strákarnir

Nafnlaus sagði...

Hæhæ! Alltaf gaman að laumast hingað og skoða myndir og lesa sögur. Leiðinlegt að hafa ekki rekist á ykkur í dalnum, en það hafa svosem veikindi verið að halda okkur inni líka. Sjáumst vonandi fljótlega!

Skúli, Hildigunnur og Ásta (nágrannar).

Nafnlaus sagði...

Jæja fröken Sigga Bára og co. Á ekki að henda inn nýrri færslu????
Gaman að fyljgast með þér, hvernig þú dafnar og dafnar ó blómstrar og blómstrar! Vonandi fæ ég að hitta þig fljótlega!!! Stórt knús frá okkur öllum litla mús!!!!